Tímarit lögfræðinga - 01.06.1982, Qupperneq 37
handtöku framkvæmir, að skýra honum frá þessum rétti. Ég held,
að sá skilningur sé viðurkenndur í praksis, og ég dreg þá ályktun af
því sem ég hef séð og heyrt til.
Skv. 86. gr. opl. má sökunautur tala við réttargæslumann eða verj-
anda einslega, þegar sökunautur er í gæslu, nema dómari hafi sér-
stakt tilefni til að telja hættu á, að rannsókn torveldist fyrir það. Með
þessu eru sett nokkuð ströng skilyrði fyrir því að banna einsleg sam-
töl við réttargæslumann, og Rannsóknarlögregla ríkisins hefur sjaldn-
ast verið á móti slíkum viðtölum. Hins vegar hafa fíkniefnalögregla og
fíkniefnadómstóllinn verið tortryggin gagnvart einslegum samtölum
við réttargæslumann og komið á þeirri verklagsreglu, að sökunautur
getur fengið að tala við réttargæslumann einslega, áður en réttargæslu-
maðurinn fær að heyra forsendur gæsluvarðhaldsúrskurðar eða kynn-
ast málavöxtum, en ekki eftir það. Ég veit ekki betur en þessi afstaða
hafi mætt skilningi hjá lögmönnum, þar sem fíkniefnamálin hafa haft
nokkra sérstöðu. Smávegis upplýsingar til sökunauts geta þar skipt
sköpum. Þá getur verið eins gott fyrir réttargæslumanninn að liggja
ekki undir grun um að koma miður heppilegum upplýsingum á fram-
færi. Grunaður maður, sem fengið hefur skipaðan réttargæslumann,
á rétt á því, að réttargæslumaðurinn sé viðstaddur yfirheyrslur, enda
þyki það hættulaust vegna rannsóknar málsins. Dómari úrskurðar um
þetta atriði, ef ágreiningur verður. Svo segir í 2. mgr. 86. gr. opl.
Þetta er ágætt svo langt sem það nær, en ég er hræddur um, að grun-
uðum manni sé ekki alltaf kynntur þessi réttur, og réttargæslumenn
eru sjaldnast látnir vita, hvar og hvenær yfirheyrslur fara fram. Mönn-
Páll Arnór Pálsson lauk lagaprófi 1974 og hefur
verið starfandi lögmaður i Reykjavík síðan.
Hann varð hæstaréttarlögmaður 1981. — í grein
þeirri, sem hér birtist, ræðir Páll ýmis atriði,
er varða samskipti lögmanna og rannsóknar-
lögreglumanna og dómara. Getur hann réttar-
reglna á þessu sviði og þeirra venja, sem skap-
ast hafa. Greinin er byggð á erindi, sem flutt
var í Valhöll á Þingvöllum 9. maí 1981. Þar var
þá haldin námsstefna um réttarfar á vegum
lögmannafélagsins og dómarafélagsins. Hafði
greinarhöfundur framsögu um það efni, sem
greinin fjallar um, ásamt Hallvarði Einvarðs-
syni rannsóknarlögreglustjóra. Frá námsstefn-
unni er sagt í TL 2. hefti 1981, bls. 110.
31