Birtingur - 01.07.1956, Blaðsíða 3

Birtingur - 01.07.1956, Blaðsíða 3
SIGFÚS DAÐASON: Ljóð í djúpum vetrarins undir fornlegum feldum drukkum við úti öll jól yfir fákænni von nöturlegi betlari náhvíti trúður í djúpi hávetrar — hverrar umbunar hélztu þig ennþá verðan? Þríefldi hugsuður þumbaralegi sverðgleypir með þyrnikrýndan dvergshaus vorkunnsamur og margvís: bitur tönn framtiðarinnar tímans sljóa tönn við þaninn streng lífsvonar þinnar leika. Tötrum búinn Iíkami langminnugur aufúsu oflátrar blckkingar angurlausrar hvílu mæddur af blóðrás bugaður í járnum og blíðuhótin storkna í launung og þótta. Eða von eða minning margrar skuggelskrar borgar sleit hold þitt beinin nísti land þitt vitjað og litið í náð og minningu og von (um sannleik þessa hafs sífelldan og ramman). 1

x

Birtingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Birtingur
https://timarit.is/publication/823

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.