Hugur - 01.01.2008, Page 63

Hugur - 01.01.2008, Page 63
Siðferði, hugsun og ímyndunarafl 61 í hans augum var fimmtíu gráðu frost einmitt nákvæmlega fimmtíu gráðu frost. Aldrei hvarflaði að honum að það hefði einhverja dýpri þýðingu.30 Sögumaðurinn gerir hér greinarmun á tvennskonar næmi eða athygli; annars vegar á staðreyndir og hins vegar á merkingu staðreynda, og hann tengir þá síðarnefndu við hugarflug. Sögupersónuna skortir ekki athygli á staðreyndir en vantar með öllu næmi á merkingu þeirra. Nú má spyrja hvaða máli það skipti að sögupersónuna skorti næmi á „merkingu staðreynda“. Hvers vegna í ósköpunum ætti maðurinn að fara að hugleiða viðkvæmni sína sem vera háð hita, o.s.frv., í stað þess að ein- beita sér einfaldlega að þeim „köldu“ staðreyndum sem við honum blasa? Mér virðist svarið sem sagan geymir við slíkri spurningu vera að minnsta kosti tvíþætt. Annars vegar hefur náttúran „engin áhrif á manninn“ sem þýðir að hann er ekki fyllilega í sambandi við heiminn og kann ekki að meta gildi hans. Þetta má tengja við það sem Pierre Hadot kallar þverstæðu og hneyksli mannlegs hlutskiptis: „Maðurinn lifir í heiminum án þess að skynja heiminn";3' hann skynjar aðeins aðgreinda hluti og markmið. Hann sér ekki heiminn sem heim og sér því ekki staðreyndir sem hluta af þeirri dularfullu heild sem heimurinn er. Að þessu leyti þallar saga Londons um sólundun á mannlegri tilvist, tækifærinu til að lifa í vitund um heiminn, og hún sýnir okkur einnig hvernig umhugsun um hið víðara sam- hengi staðreynda er nauðsynlegur þáttur í næmi okkar fyrir þeim. Hitt svarið sem sagan geymir við þeirri spurningu hvers vegna mikilvægt er að veita merkingu staðreynda athygli er, eins og lok sögunnar leiða í ljós, að skortur á þessari tegund athygli getur beinlínis verið lífshættuleg. Sá sem ratað hefur f miklar raunir eða lífsháska hefur að minnsta kosti þá yfirburði yfir marga aðra að hann veit hve lítils maður getur mátt sín gagnvart náttúruöflunum. Hinn áhrifamikli kennari, lífs- reynslan, hefur að öllum líkindum gert þá vitneskju ljóslifandi fyrir honum. Fyrir hinn, sem ekki býr að beinni reynslu hvað þetta varðar, getur virkt ímyndunarafl verið eini verndarinn. Sá sem ekki getur sett aðstæður sínar í almennara samhengi og yfirvegað stöðu sína í heiminum gerir sér ef til vill ekki nægilega ljóst hvaða áhættu hann tekur, hann getur — jafnvel þótt hann veiti staðreyndum vissa athygli ~ skort þá auðmýkt og varúð sem þörf er á til dæmis til að hlusta á ráðleggingar annarra og ofmeta ekki eigin styrk. Verbmœti og ánœgja Við ættum nú að eiga hægara en áður með að sjá þýðingu hugsunar og ímynd- unarafls fyrir tilurð og tilvist verðmæta. Algengasta hugmyndin um verðmæti nú á dögum er líklega sú skoðun að þau tengist fullnægingu langana. Fáir, nema þá mestu meinlætamenn, hafna með öllu gildi þess að fá löngunum sínum fullnægt. En sé mikilvægi hugsunar og ímyndunarafls viðurkennt verður ljóst að tengslin niilli langana og verðmæta eru fjarri því að vera einföld. Astæðan er sú að verð- 30 Jack London „To Build a Fire“, http://sunsite.berkeley.edu/London/Writings/LostFace/fire.html 31 Pierre Hadot, Philosophy as a Way ofLife, þýð. Michael Chase, Oxford: Blaclcwell 1997, s. 258.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.