Hugur - 01.01.2008, Blaðsíða 120

Hugur - 01.01.2008, Blaðsíða 120
118 Armann Halldórsson skilning á sjálfinu og þeim tengslum sem það býr við og auka þannig möguleika þess til að finna sér eftirsóknarverðan farveg í lífinu.“32 Tilraunirnar eru svo framkvæmdar með svipuðum hætti og í tilraunastofu: sett er fram hugmynd, tilgáta og niðurstöður greindar. Dæmi um tilraun er að setja sér það markmið að reiðast ekki í ákveðinn tíma við tilteknar aðstæður. Annað dæmi gæti verið að breyta neysluvenjum, fylgjast með gangi sólarinnar - möguleikarnir eru ótæmandi. Lífstilraunir eru augljóslega náskyldar gerendarannsóknum: hugmyndir eru prófaðar við raunverulegar aðstæður og þekkingin sem skapast er þekking við- fangsins á sjálfu sér við hversdagslegar aðstæður í leik og starfi. Þannig verður h'fið viðfang rýnandi rannsóknar og vettvangur sjálfstæðrar hugsunar. Þó það komi ekki beint fram í skilgreiningu Róberts í bók hans er hluti rannsóknar hans í raun gerendarannsókn, einkum varðandi tilraunir hans í heimspekilegri ráðgjöf, en jafnframt segir hann frá reynslu sinni af notkun h'fstilrauna í kennslu við Mennta- skólann í Reykjavík.33 Hér er því kominn vísir að nýrri aðferð í heimspeki; útilokað er að rannsaka heimspekipraktík án þess að iðka hana! I áframhaldandi vinnu með þetta fyrirbæri hefur Róbert sett fram þá vinnutilgátu að með markvissri vinnu með lífstilraunir sé unnt að öðlast það sem hann kýs að kalla „visku“, þ.e. djúp- stæða þekkingu á því hvernig maður sjálfur lærir. Þannig megi sækja úr reynslunni eitthvað sem má yfirfæra til að hjálpa einstaklingnum að læra áfram, en ein af lykilráðgátum allar menntunar og eitt djúpstæðasta vandamálið sem við glímum við er hversu erfitt er að yfirfæra þekkingu af einu sviði yfir á annað; hér er því um mjög spennandi rannsóknarsvið að ræða. Innan menntunarfræða á Islandi hafa komið fram áhugaverðar rannsóknir sem byggja á svokallaðri lífssögulegri nálgun, sem felst í því að lífssaga kennarans (mikilvægir atburðir úr reynslu og lífi hans), hafi lykiláhrif á starf hans, val á kennsluaðferðum o.s.frv. Grunnhugmyndin hér er að samband kennara og nem- enda sé grundvallaratriði, forsenda menntunar og þroska. Þessi fjölslcylda kenn- inga myndar að verulegu leyti grundvöll bókar Sigrúnar Aðalbjarnardóttur, Virðing og umhyggja, en þar má lesa um ævistarf hennar í rannsóknum á sviði menntunar og uppeldis.341 lífssögulegu nálguninni er það þó sérfræðingur sem rannsakar kennarana, en í gerendarannsóknum er sérfræðingurinn tekinn út úr jöfnunni, eða þá hefur sérfræðingurinn sjálfan sig að höfuðviðfangi. Áhugavert dæmi um rann- sókn í þessum anda er doktorsverkefni hfefna- og menntunarfræðingsins Hafþórs Guðjónssonar.35 Verkefnið fjallar um þroskasögu hans sem kennara, hvernig hann 32 Sama rit, s. 145. 33 Sama rit, s. 148 og viðaukar. 34 Sigrún Aðalbjarnardóttir, Virðing og umhyggja, Reykjavík: Heimskringla 2007. 35 Hafþór Guðjónsson, Teacher Learning and Language: A Pragmalic Se/f-Sludy, 2002, http:// starfsfolk.khi.is/hafthor/doktverk.htm (sótt 15. desember 2007). Hafþór hefur lýst hugarástandi sínu fyrir doktorsrannsóknina með eftirfarandi hætti: „Á Vesturlöndum ríkir sú hugmynd að þekking sé eitthvað sem býr í bókum, eitthvað frágengið, eitthvað sem er vitað. Hlutverk kennarans er að miðla þessari þekkingu og nemenda að taka við henni. Síðan cr athugað með skriflegu prófi hvort þekkingin hefur skilað sér. Þannig talar fólk yfirleitt um þekkingu og nám. Nú kynntist ég einhverju fyrirbæri, svokaliaðri hugsmíðahyggju sem sagði allt aðra
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172
Blaðsíða 173
Blaðsíða 174
Blaðsíða 175
Blaðsíða 176
Blaðsíða 177
Blaðsíða 178
Blaðsíða 179
Blaðsíða 180
Blaðsíða 181
Blaðsíða 182
Blaðsíða 183
Blaðsíða 184
Blaðsíða 185
Blaðsíða 186
Blaðsíða 187
Blaðsíða 188
Blaðsíða 189
Blaðsíða 190
Blaðsíða 191
Blaðsíða 192
Blaðsíða 193
Blaðsíða 194
Blaðsíða 195
Blaðsíða 196

x

Hugur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.