Hugur - 01.01.2008, Síða 110

Hugur - 01.01.2008, Síða 110
108 Ólafur Páll Jómson Eitt höfuðmarkmið menntakerfisins blasir við: stjórnmálamenntun þegnanna. Ef lýðræðisríki á í hlut, hlýtur þetta markmið að hafa forgang í menntakerfinu. (333) Sú stjórnmálamenntun sem skiptir máli er ekki fyrst og fremst fræðsla um stjórn- kerfi - um stofnanir, lög og hefðir - heldur menntun sem miðar að því að skapa lýðræðislegar manneskjur. Vitanlega er mikilvægt að kenna um lýðræði, það gæti heitið lýðræðisfræðsla, en eldti er gefið að nokkurt magn slíkrar fræðslu stuðlaði að lýðræði, hvorki sem einstaklingsbundinni manngerð né pólitískum veruleika. Ekki frekar en að nokkurt magn dygðafræðslu gerði menn endilega dygðuga. Vandinn er ekki sá að nemendur í skólum hafi ekki þroska til að meðtaka og skilja slíka fræðslu, því hann hafa þeir í ríkum mæli, heldur hitt að slík fræðsla þarf ekki að breyta viðhorfum nokkurs manns til nokkurs hlutar. Viðfangsefni lýðræðis- fræðslu er ýmiss konar upplýsingar um mál er varða lýðræði í stóru og smáu, rétt eins og viðfangsefni heilsufræðslu er upplýsingar um mataræði og heilsufar. Hald- góðar upplýsingar eru vissulega nauðsynlegar í allri umfjöllun um lýðræði en eins og aðrar upplýsingar eru þær dauður bókstafur nema fólk sé tilbúið að meðtaka þær og flétta þær saman við eigin viðhorf og gildi þannig að þær verði aflvaki nýrra viðhorfa og athafna. Til viðbótar lýðræðisfræðslunni þarf því að koma til eitthvað sem gerir nem- endurna, hvort sem þeir eru börn í skóla eða fullorðnir, móttækilega fyrir slíkum upplýsingum með þeim sérstaka hætti að þær verði lifandi viðfangsefni og raun- verulegt hreyfiafl. En hver er þessi viðbót? Hún er af tvennum toga. Annars vegar er hún af toga gilda. Eiginleg lýðræðismenntun leitast við að hafa mótandi áhrif á gildismat. Þess vegna er skóli sem leggur stund á slíka menntun - en ekki bara lýðræðisfræðslu - skóli sem lætur gildismat nemendanna koma sér við. Skólinn er ekki hlutlaus um verðmæti og lífsviðhorf, heldur hlutast hann beinlínis til um viðhorf og gildismat nemenda. I öðru lagi verður slíkur skóli að hafa mótandi áhrif á það hvernig nemendur mynda sér skoðanir og taka afstöðu til ólíkra mála. Lýðræðisfræðslan leggur nemendum til ákveðnar forsendur að byggja á - hún leggur til forsendur upplýstra skoðana á málum er varða lýðræði - en til þess að slíkar forsendur verði efniviður 1 upplýstar skoðanir, verða nemendur að temja sér gagnrýna hugsun. Og hér vaknar því önnur fræg heimspekileg spurning sem ekki verður skilin frá spurn- ingunni um hvað lýðræðismenntun sé: Er hægt að kenna gagnrýna hugsun?3' Gagnrýnin hugsun varðar reyndar ekki lýðræði sérstaklega heldur er hún kjarninn í allri menntun. En þegar spurningin er hvað menntun sé, frekar en upplýst skoð- un almennt, þá varðar spurningin um gagnrýna hugsun ekki fyrst og fremst aðferð við að mynda sér hugmyndir um heiminn, hún varðar einnig viðfangsefni; hún hefúr nemandann sjálfan að viðfangsefni samhliða öllum þeim ótal viðfangsefnum 31 Sjá t.d. Páll Skúlason, „Er hægt að kenna gagnrýna hugsun?", Pœ/ingar, Reykjavík: Ergo 19871 Mikael M. Karlsson, „Gagnrýni og hugsun", í Róbcrt H. Haraldsson o.fl. (ritstj.), Hugsað tneð Páli, Reykjavík: Siðfræðistofnun/Heimspekistofnun 2005.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196

x

Hugur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.