Hugur - 01.01.2008, Qupperneq 183

Hugur - 01.01.2008, Qupperneq 183
Réttlát verðskuldun 181 röngu vali og að með skírskotun til þessa megi meta hvort fólk eigi tilkall til verð- skuldunar. Með öðrum orðum er ekki nauðsynlegt að halda því fram að til þurfi að koma einhvers konar ábyrgð, siðferðileg eða byggð á orsakasambandi, á þeim til- teknu afleiðingum sem verðskuldunar- kröfur eru gerðar til. Þessi skilningur skýrir þó ekki hvers vegna okkur hættir til að segja um þá sem eiga um sárt að binda eða eru heimilislausir að þeir eigi skilið aðstoð án þess að vísa til nokkurrar siðferðilegrar ábyrgðar eða réttinda. I raun er réttinda stundum leitað af þeirri ástæðu að tiltekin manneskja eða tegund fólks eru álitin verðskulda aðstoð. Kristján leggur til að litið sé á verð- skuldunartilfinningar - tilfinningar sem fela í sér þá sannfæringu að tilteknar að- stæður skipti máli þegar verðskuldun er annars vegar, ásamt þrá eftir því að „menn hljóti það sem þeir verðskulda" - sem hlutmengi þess sem Peter Strawson kallaði „afturvirk viðhorf* (e. reactive attitudes). Þessi viðhorf geta m.a. verið þakklæti, vanþóknun, íyrirgefning, ást og sektarkennd; og telur Kristján að slík viðhorf gefi siðferðilega ábyrgð í skyn. Þau afturvirku viðhorf sem teljast verð- skuldunartilfinningar varpa ljósi á tengsl- in milli ákvörðunar um verðskuldun og grundvallar hennar. I þessu ljósi virðist réttlætisdygðin vera innblásin af nokkr- um grunntilfinningum sem geta þá ýmist verið af meiði samúðar, svo sem sam- kennd, eða af toga andúðar, til dæmis öfund. Viðeigandi eða hæfileg upplifim verðskuldunartilfinninga á borð við rétt- láta vandlætingu (vanlíðan yfir óverð- skuldaðri farsæld annarra) og réttláta vandlætingu sem nær uppfýllingu sinni (vellíðan yfir verðskulduðum hrakforum annarra) er sambærileg við aðrar verð- skuldunartilfmningar á borð við sam- kennd (vanlíðan yfir óverðskulduðum þjáningum annarra), þar sem slíkar tilfinningar renna stoðum undir réttlæti sem persónulega dygð — dygð sem er í raun nauðsynleg forsenda allsherjar réttlætis í samfélaginu. Því miður lætur Kristján undir höfuð leggjast að gera grein fýrir því sem hann nefnir „neikvæðar verðskuldunartilfinn- ingar" (t.d. vanlíðan sem hlýst af verð- skuldaðri farsæld vegna þess að hún er verðskulduð eða veUíðan yfir óverðskuld- aðri farsæld vegna þess að hún er óverð- skulduð). Hann fjallar þó um tilfinningar sem bornar eru í brjósti án tillits til verðskuldunar, en um neikvæðar verð- skuldunartilfmningar lætur hann sér nægja að segja, án tilvísunar til annarra höfunda, að „sérlega ógeðfelldar" tilfinn- ingar sem þessar séu „sjaldgæfar" (88). Þessi skoðun virðist yfxrmáta bjartsýn þegar höfð er í huga andstyggð og eðli þeirra tilfinninga og viðhorfa sem felast í höfixðsyndunum sjö. I ljósi umfjöllunar- efnis bókarinnar hefði vissulega mátt búast við frekari umfjöllun um neikvæðar verðskuldunartilfinningar, einkum og sér í lagi í ljósi þeirrar skoðunar Kristjáns að ekki séu til neinar „neikvæðar tilfinn- ingar“ (raunar kann sú hugmynd að gefa tilefni til að ætla að ef til vill séu ekki til neinar „jákvæðar tilfinningar" heldur). I yfirliti sínu um rannsóknir á uppruna verðskuldunartilfinninga kemst Kristján að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir skort á hugtakalegri nákvæmni f stórum hluta þessara rannsókna sýna þær svo ekki verði um villst að í lífi okkar hugum við að verðskuldun á undan réttlæti. Af þessu leiðir siðferðileg réttlæting verðskuldun- artilfinninga í anda nytjastefnu og nátt- úruhyggju sem telja þær ekki aðeins ómissandi við raunverulegar aðstæður og í siðferðilegri breytni heldur að þær skapi í raun vellíðan í siðferðilegu tilliti. Sam- kvæmt Kristjáni taldi John Stuart Mill að verðskuldun væri einn þeirra nauðsynlegu þátta sem ljá nytsemi eða vellíðan gildi. Vellíðan er þannig skynsamlegur mæli- kvarði til að skera úr um það hvort hið réttláta sé siðferðilega rétt eða rangt, en jafnframt um það hvenær verðskuldun skuli hafa yfirhöndina gagnvart réttind- um og öfugt. Þegar ákveðnum þröskuldi óverðskuldaðrar útkomu er náð „mun verðskuldun hafa betur gagnvart öðrum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160
Qupperneq 161
Qupperneq 162
Qupperneq 163
Qupperneq 164
Qupperneq 165
Qupperneq 166
Qupperneq 167
Qupperneq 168
Qupperneq 169
Qupperneq 170
Qupperneq 171
Qupperneq 172
Qupperneq 173
Qupperneq 174
Qupperneq 175
Qupperneq 176
Qupperneq 177
Qupperneq 178
Qupperneq 179
Qupperneq 180
Qupperneq 181
Qupperneq 182
Qupperneq 183
Qupperneq 184
Qupperneq 185
Qupperneq 186
Qupperneq 187
Qupperneq 188
Qupperneq 189
Qupperneq 190
Qupperneq 191
Qupperneq 192
Qupperneq 193
Qupperneq 194
Qupperneq 195
Qupperneq 196

x

Hugur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.