Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 22
Siðanefnd VFÍ
Siðanefnd starfsársins var skipuð eftirtöldum mönnum: Vífill Oddsson formaður,
Guðmundur G. Þórarinsson, Jóhann Már Maríusson, Karl Ómar Jónsson og Pétur
Stefánsson. Siðanefnd er skipuð fimm fyrrverandi formönnum VFÍ. Siðanefnd var óbreytt
frá fyrra ári. Ekkert mál barst nefndinni á starfsárunum 2005-2006 og virðist samstaða í
stéttinni almennt vera góð og lítið um ágreiningsefni. Enginn fundur var haldinn á árinu.
Byggingarverkfræðingadeild
Aðalfundur BVFÍ var haldinn í húsi Verkfræðingafélags íslands mánudaginn 7. júlí 2005.
Að venju var endurnýjun í stjórn með þeim hætti að helmingur stjórnarinnar sat áfram
og helmingur gekk úr stjórn. Úr stjórn gengu Sverrir Sigurðsson (formaður) og Þórarinn
Bjarnason (ritari). í þeirra stað voru kjörnir Guðmundur Jónsson, verkfræðingur hjá VST,
og Valtýr Þórisson, verkfræðingur hjá Vegagerðinni. Áfram sátu í stjórn Gísli Pálsson,
verkfræðingur hjá Istaki hf., og Kristján Vilhelm Rúriksson, verkfræðingur hjá
Umferðarstofu. Þátttaka á fundinum var í lakara lagi og má kenna um því hversu langt
var liðið á sumar þegar hann var haldinn. Á fyrsta stjórnarfundi skipti stjórnin með sér
verkum og varð Kristján Vilhelm Rúriksson formaður, Guðmundur Jónsson varafor-
maður, Gísli Pálsson ritari og Valtýr Þórisson gjaldkeri.
Færsla Hringbrautar var skoðuð í maí 2005. Verktaki að þeirri framkvæmd voru Háfell
og Eykt.
Stækkun Laugardalshallarinnar var síðan skoðuð í lok maí 2005, en það var Eykt sem sá
um framkvæmdina.
í nóvember 2005 var farið í heimsókn á Höfðatorg í Höfðatúni, en þar reisir Eykt fyrsta
áfanga að miklum íbúðar-, verslunar- og skrifstofukjarna.
Orðanefnd BVFÍ
Innan BVFÍ er starfrækt orðanefnd sem unnið hefur mikið starf síðastliðin 19 ár við gerð
íðorðabókar um umhverfistækni þar sem skýrð eru hugtök sem tengjast efnafræði, eðlis-
fræði, náttúrufræði og ýmis tæknihugtök, svo og orð sem tengjast umhverfinu, frá-
veitum, leiðslum, dælingu, sjávarföllum og mengun, svo fátt eitt sé nefnt. Formaður
nefndarinnar frá upphafi hefur verið Einar B. Pálsson. Síðastliðið ár hefur verið unnið að
frágangi bókarinnar fyrir prentun og er sú vinna komin á lokastig. Bókin verður gefin út
af Háskólaútgáfunni.
Ársskýrsla Kvennanefndar VFÍ
Kvennanefnd VFÍ var skipuð eftirtöldum: Örnu Sigríði Guðmundsdóttur, Helgu Jóhönnu
Bjarnadóttur, Jóhönnu Hörpu Árnadóttur og Kolbrúnu Reinholdsdóttur. Kvennanefndin
var stofnuð til að hvetja konur til þátttöku í félagsstarfi VFÍ og til að mynda tengslanet
kvenna í stétt verkfræðinga. Þrjár konur sátu í stjórn VFÍ og er það í fyrsta skipti í sögu
félagsins að svo margar konur eiga sæti í stjórn þess. í stjórn Stéttarfélagsins voru einnig
þrjár konur og brotið var blað í sögu Lífeyrissjóðs verkfræðinga þegar kona var kosin í
stjórn hans á síðasta aðalfundi.
Þann 11. maí 2005 var haldinn aðalfundur kvennanefndarinnar og skipað í stjórn hennar.
Kolbrún Reinholdsdóttir hafði sinnt embætti formanns frá því að nefndin tók til starfa, í
2 01 Arbók VFl/TFl 2006