Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 235
ÁRANGUR f VERKEFNUM
HVERT ER VÆGI ÁÆTLANAGERÐAR?
Helgi Þór Ingason er véla- og iðnaðarverkfræðingur og vottaður verkefnastjóri (Certified Senior Project Manager).
Hann lauk doktorsprófi I verkfræði frá NorskaTækniháskólanum I Þrándheimi 1994, M.Sc. prófi frá H( 1991 og CS prófi (
véla- og iðnaðarverkfræði frá sama skóla 1989.Helgi Þór hefur sinnt margvíslegum verkefnum sem sérfræðingur,
ráðgjafi, stjórnandi og sem frumkvöðull, m.a. I Al, álvinnslu hf. Undanfarin ár hefur hann starfað sem ráðgjafi og fyrir-
lesari á sviðum verkefnastjórnunar, gæðastjórnunar, framleiðsluferla og verksmiðjuskipulags. Helgi Þór er dósent við
véla- og iðnaðarverkfræðiskor Háskóla (slands og veitir MPM-námi verkfræðideildar forstöðu (www.mpm.is). Haustið
2006 dvelur Helgi Þór í rannsóknaleyfi við MIT verkfræðiháskólann i Boston.
Útdráttur
(greininni er fjallað um vensl milli árangurs (verkefnum og nokkurra þátta I undirbúningi þeirra og framkvæmd. Raktar eru
niðurstöður nokkurra fræðimanna varðandi skilgreiningu á árangri 1 verkefnum og helstu áhrifaþætti varðandi árangur.
Greint er frá islenskri könnun frá vorinu 2005 þar sem sérstaklega var skoðað hvort finna mætti tengsl milli árangurs (
verkefnum og áætlanagerðar og notkunar á aðferðum og ferlum verkefnastjórnunar.f Ijós kemur meðal annars að þeir sem
hafa reynslu (verkefnastjórnun og/eða tæknilega háskólamenntun eru liklegir til að leggja áherslu á tæknilegan undirbún-
ing verkefna og þeir eru llklegir til að nota ferla og aðferðir verkefnastjórnunar. Þeir eru jafnframt liklegri til að ná árangri I
verkefnunum, en fylgnin þar á milli er þó fremur veik.
Lykilorð: Verkefnisáætlun, árangursmælikvaröar, ferli og aðferöir verkefnastjórnunar, vottun verkefnisstjóra.
Abstract
The paper discusses the relationship between project success and factors related to project planning and project execu-
tion.An overviewof international research in thearea isgiven and results ofan lcelandicstudyfrom thespring of 2005 are
reviewed.This study focused on the relationship between project success and project planning and the use of project
management processes and procedures. It is conduded that those who have experience in project management and/or
technical academic background are likely to put emphasis on the technical preparation of their project and they are more
likely to use the processes and procedures of project management.They are also more likely to achieve success in their
projects, but this correlation is rather weak.
Keywords: Project plan, success criteria, processes and procedures ofproject management, certifícation ofproject managers.
Inngangur
Almennt er litið svo á að verkefni hefjist á skilgreiningu, þá komi áætlanagerð sem leiði
til framkvæmdar og loks verkefnisloka þegar niðurstaða verkefnisins er tekin í notkun.
Þetta einfalda líkan af æviskeiði verkefnis lýsir ágætlega vissum tegundum verkefna, til
dæmis einföldum verklegum framkvæmdum. Líkanið á ekki eins vel við um ýmis önnur
verkefni. í hugbúnaðarverkefnum er þetta einfalda líkan kallað fossalíkan (e. waterfall
model). Jalote [1] bendir á að sú framsetning geri ráð fyrir að þarfirnar séu þekktar og
stöðugar við byrjun verkefnisins, en sú er ekki raunin hvað varðar flest hugbúnaðar-
verkefni. Þetta á raunar einnig við um aðrar tegundir verkefna en óháð því hvernig
æviskeið verkefnisins lítur út er nauðsynlegt að leggja mikla vinnu í undirbúning á byrj-
unarstigum verkefna.
Ritrýndar vísindagreinar | 233