Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 221
nokkuð sem hefði mátt búast við vegna nálægðar við sellátur. Þeir töldu samt sem áður
að selormssýkingar væru nátengdar fjölda sela og bentu á að straumar gætu átt sinn þátt
í að dreifa lirfunum frá eiginlegum heimkynnum sels. Erlingur Hauksson (2002) komst
að þeirri niðurstöðu að fækkun sels við Hvaleyjar hafi skilað mikilli fækkun hringorma í
marhnúti (Myoxocephahis scorpius scorpius). Aspholm o.fl. (1995) gátu hinsvegar ekki séð
fækkun hringorms í millihýslum (þ.á m. þorski) eftir mikla fækkun sels við Óslóarfjörð
árið 1988.
Framkvæmd
Eins og fyrr segir var rannsókn þessi hluti af stærra verkefni, Vinnsluspá þorskafla.
Aðferðafræði verkefnisins gekk í stuttu máli út á að fylgja þorski frá veiðislóð og inn í
landvinnslu sjávarútvegsfyrirtækjanna og gera á leiðinni ýmsar mælingar á ástandi
aflans og aðstæðum við veiðar og geymslu. Samherji hf hóf mælingarnar í febrúar 2001.
Ömiur fyrirtæki komu inn á árinu 2004. I upphafi var tekið safnsýni fjögurra þorska úr
hverju keri sem tekið var til endurvigtunar í móttöku. Arið 2003 var framkvæmdinni
breytt þannig að tekin voru fjögur einstaklingssýni úr liverju kari en færri kör tekin til
mælinga en áður. Það gagnasafn sem hér var greint náði yfir tímabilið september
2001-ágúst 2005 og innihélt 5370 mælingar, frá öllum fyrirtækjunum. Eftirfarandi breyt-
ur voru mældar og skráðar:
Veiðar: Staðsetning, dagsetning, togtími, magn afla í togi, dýpi og hitastig.
Móttaka: Magn í keri, fjölda fiska í keri, aldur hráefnis við mælingu, þyngd þorsks og lengd.
Vinnsla: Þyngd eftir hausun, þyngd flaka, los, blóðmar, holdroði og fjöldi hringorma
(ekki var greint á milli selorma og hvalorma).
Sveinn Margeirsson o.fl. (í prentun) lýsa nánar framkvæmd mælinga í verkefninu.
Unnið var með mælingu á fjölda orma á þyngdareiningu flaks (jafna 1) en einnig var sú
stærð sköluð með meðaltali hvers fyrirtækis fyrir mælinguna (jafna 2). Var það gert til að
sneiða hjá því að mismunandi vinnsluaðferðir og tæki í fyrirtækjunum hefðu áhrif á
niðurstöður.
Jafna 1:
Jafna 2:
OrmKgk =
OrmKgSky
°i»h
KgFlakk
OrmKg..
I;V OrmKgj
Skýringar: OrmKg/.:
Ormp:
KgFlak/.:
OrmKgSkjj:
4
Fjöldi orma á kg í þorski k
Fjöldi orma í þorski k
Þyngd flaka úr þorski k
Skalaður fjöldi orma/kg í þorski i (mældum í fyrirtæki j)
Fjöldi þorska rnældur í fyrirtæki j
Þá var reiknuð vísitala árstíðasveiflu, líkt og Winston og Albright (2001, bls. 931) leggja
hl. Aðferðin finnur vísitölu (index) fyrir hvert tímabil sem um ræðir, út frá meðaltali
þeirrar raðar sem tímabilið er miðja í.
Meðal þeirra líkana sem voru notuð, var einfalt veldisjöfnunarlíkan, á forminu:
ý,+t = 4 =aY, + {\-a)L,_,
Þar sem a er svokallaður veldisjöfnunarstuðull, 0 < a <1, Yltl er /c-skrefa spá fyrir mæl-
inSu/ gerð á tímanum t og L, er svokallað stig raðarinnar.