Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 315
Meistaranám í verkefnastjórnun
Með innsýn í það sem hér hefur verið reifað hefur verkfræðideild Háskóla íslands þróað
nýtt meistaranám í verkefnastjórnun - Master of Project Management (MPM) - sem er
tveggja ára nám með starfi. Til að skerpa innsýn nemenda sem best er mikið lagt upp úr
þátttöku þeirra og fer stór hluti kennslu fram með verklegum æfingum. Nemendur hljóta
alþjóðlega vottun í verkefnastjórnun, en hún er gefin út af Verkefnastjórnunarfélagi
Islands í umboði International Project Management Association (IPMA).
Kostir verkefnastjórnunar sem stjórnunarfræða eru að sérstök áhersla er lögð á að kenna
og þjálfa fólk í öguðum og markvissum vinnubrögðum við að skilgreina, takast á við og
Ijúka þeim viðfangsefnum sem skilgreina má sem verkefni. En á grundvelli þess sem hér
hefur verið reifað er áherslan í náminu ekki síður á að þjálfa aðlögunarhæfni, stjórnvisku
og leiðtogahæfni. Nemendur skoða skuggahliðar sjálfra sín, greina eigin styrkleika og
veikleika persónu sinnar, takast á við aflfræði hópa í samstarfi með öðrum og öðlast
þekkingu og reynslu af því að vinna með ólíku fólki undir miklu álagi. Þekkingu og færni
sem aflað er í náminu má beita á sviðum einka-, félags- og atvinnulífs. Meistaranám í
verkefnastjórnun er opið öllum þeim sem hafa lokið BA/BS/B.ed. eða sambærilegum
prófum og eru reiðubúnir að takast á hendur ferðalag um völundarhús verkefnastjórn-
unar og undraheima mannlegs sálarlífs. Til þess að námsefnið hafi raunverulega skír-
skotun í reynslu nemenda er jafnframt gerð krafa um að nemendur hafi minnst þriggja
ára reynslu úr atvinnulífinu og reynslu af því að starfa í verkefnum.
Lokaorð
Að flétta saman verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, hið hlutlæga og hið
huglæga, er nýjung sem er farin að hafa áhrif á iðkun verkefnastjórnunar-
fræða víðar. Sem dæmi má nefna að áherslan kemur fram hjá dönsku
verkefnastjórnunarsamtökunum Association of Dansk Projectledelse í nýrri
sjálfsmatsbók verkefnastjóra, Competencies in Project Management - National
Competence Baselinefor Scandinaviaf sem einn brautryðjandi verkefnastjórn-
unar hér á landi, Daninn Morten Fangel, ritstýrði ásamt öðrum. Áhersluna
má líka sjá í International Competence Baseline for Project Management
(ICB 3.0) sem er ný viðmiðunarhandbók alþjóðasamtaka verkefnastjóra
IPMA eða International Association of Project Management. Þetta er vel þar
sem þessi áhersla mun bæði styrkja verkefnastjóra framtíðarinnar og gera
þá færari um að hafa uppbyggjandi áhrif innan samfélaga og þjóða.
Með meistaranámi í verkefnastjórnun hefur verkfræðideild Háskóla íslands tekið
tímabært skref með því að opna dyr sínar, ekki aðeins fyrir fólki með verkfræðilegan bak-
grunn, heldur einnig fyrir fólki með breiðari bakgrunn. Markmiðið er að búa nemendur
enn betur undir það að takast á við forustu í viðskipta- og athafnalífi hvort sem er hér-
lendis eða erlendis. Með þessu leitast verkfræðideildin við að mæta þörfum íslensks sam-
félags og skapar með því forsendur til að nýta og rannsaka þá stjórnþekkingu sem verk-
fræðingar afla í fjölbreyttum störfum sínum.
Höfundar kenna við véla- og iðnaðarverkfræðiskor og í meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM)
verkfræðideildar Háskóla íslands, og kenna Verkefnastjórnun og leiðtogapjálfun - nám samhliða
starfi, við Endurmenntun Háskóla fslands. Nánari upplýsingar um námið er að finna á
www.mpm.is
6 Competencies in Project Management - National Competence Baseline for Scandinavia, 1 st English Edition, Association of
Danish Project Management, Norwegian Association of Project Management, Swedish Association of Project
Management, September 2004. (þessari útgáfu er talað um Assessment of Leadership Behavior en í næstu útgáfu á eftir er
aftur talað um Assessment ofBehavioral Competence.
Tækni- og vísindagreinar i313