Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 194
Á flugvellinum var byggð 7000 fm flugstöð á vegum UNMIK árið 2000, sem þegar er
orðin of lítil vegna mikilla farþegaflutninga. Auk þess eru á flugvellinum þjónustu-
byggingar af ýmsu tagi og margar þeirra gerðar sem her- eða gámabyggingar.
Einnig hafði KFOR sett upp til bráðabirgða eftir stríðið tækjaskýli fyrir slökkvibifreiðar,
flugturn, aðflugs- og ljósabúnað fyrir flugvöllinn sem í ljós kom að þarfnaðist verulegra
endurbóta er Flugmálastjórn kom að uppbyggingu flugvallarins árið 2004.
Framkvæmdaverkefni
Samkvæmt samningnum milli íslands og UNMIK fer FMS með umsjón þess að mann-
virki og rekstur á Pristinaflugvelli uppfylli skilyrði um starfsleyfi fyrir flugvöllinn í sam-
ræmi við alþjóðlega staðla og íslensk lagafyrirmæli. Ljóst var að mikil vinna var fram-
undan til að framkvæma þær endurbætur sem nauðsynlegar voru samkvæmt úttekt
flugöryggissviðs FMS. í upphafi starfs FMS á flugvellinum var gert ráð fyrir að
meginhluti verkefnisins yrði vegna rekstrarmála flugumferðarstjórnar, slökkviliðs og
tæknideilda en fljótlega kom í ljós að fagleg stjórnun á framkvæmdaverkefnum var
einnig nauðsynleg til að tryggja gæði verkefnanna í samræmi við öryggisstaðla. Fag-
deildir innan UNMIK og á flugvellinum, sem ætlað var að stýra verkefnunum, reyndust
að mati FMS engan veginn hafa nægjanlega þekkingu eða reynslu til að tryggja að mark-
mið um endurbætur næðust með viðunandi gæðum. Eftir langar viðræður og fjölda
greinargerða um einstaka framkvæmdir tókst að fá hina faglegu stjórnun verkefnanna
færða til FMS frá fagdeild UNMIK, sem reyndar var lögð niður í kjölfarið. í aðalatriðum
fór hönnunarvinna og gerð útboðslýsinga vegna meginhluta framkvæmdanna fram
seinni hluta ársins 2004 og fyrri hluta ársins 2005 auk þess sem unnið var að fjármögnun
verkefnanna. Jarðsprengjuleit var gerð á öllu framkvæmdasvæðinu áður en fram-
kvæmdir hófust. Alþjóðlegt útboð fór síðan fram samkvæmt reglugerð Kosovo um opin-
ber innkaup en reglugerðin var samin af UNMIK og er hliðstæð regluverki innan
Evrópusambandsins. UNMIK hefur úrslitavald í innkaupamálum flugvallarins.
Eftirfarandi er heildaryfirlit yfir helstu framkvæmdir á Pristinaflugvelli, sem eru undir
umsjón Flugmálastjórnar.
Framkvæmdayfirlit
Framkvæmdaverkefni Kostnaður (Millj. evrur)
Endurbætur flugbrautar og fráveitukerfis ásamt stækkun akbrauta og flughlaðs. Verkið er í framkvæmd. 16,0
Gerð 11 km vegar og girðingar umhverfis flugvöllinn. Verkið er í framkvæmd 3,5
Bygging tækjageymslu, stjórnturns og þjálfunaraðstöðu slökkviliðs. Verkinu er lokið. 0,6
Flugvallarratsjá (Frum- og svarratsjá) Verkinu er lokið. 8,0
Svarratsjá á Golesh-fjalli Verkinu er lokið. 1,0
Flugturn ásamt búnaði Verkinu er lokið. 1,0
Heildarkostnaður A 30,1
Endurnýjun ljósakerfis. Útboðsferill er ekki hafinn. 4-4,5
Heildarkostnaður B 34,1-34,6
1 9 2 | Arbók VFl/TFl 2006