Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 86
Fjárfesting hins opinbera
Fjárfesting hins opinbera, ríkis og sveitarfélaga, nær fyrst og fremst til fjárfestingar sem
notast við framleiðslu á samneyslu. Ýmis konar byggingarframkvæmdir og önnur mann-
virkjagerð, s.s. vega- og brúargerð, ásamt fjárfestingu í ýmsum véla- og tækjabúnaði sem
notast til framleiðslu samneyslu, falla þar undir. Fjárfestingar opinberra fyrirtækja, s.s.
orkufyrirtækja, vatnsveitna og hafnarsamlaga, flokkast hins vegar með atvinnuvegum en
ekki með fjárfestingu hins opinbera.
1 samræmi við langtímamarkmið ríkisstjórnarinnar um aðhald í opinberum fjármálum á
meðan mestu stóriðjuframkvæmdirnar standa yfir hefur ýmsum framkvæmdum verið
slegið á frest til ársins 2007. Árið 2005 nam fjárfesting hins opinbera 31,5 milljörðum
króna samkvæmt bráðabirgðatölum Flagstofunnar. Þar af var fjárfesting í vega- og gatna-
gerð rúmlega 14 milljarðar króna, fjárfesting í byggingum svipuð og önnur fjárfesting,
um 3,5 milljarðar króna. Fjárfesting hins opinbera nam 3,2% af landsframleiðslu og dróst
saman um 13,5% að raungildi frá árinu áður þegar hún nam 3,8% af landsframleiðslu.
Fjárfesting ríkissjóðs dróst saman úr ríflega 1,7% af landsframleiðslu árið 2004 í um 1,5%
árið 2005 en fjárfesting sveitarfélaganna dróst saman nokkru meira, um 3,3 milljarða
króna milli ára, eða úr rúmlega 2,1% af landsframleiðslu árið 2004 í rúmlega 1,6% árið
2005.
Fjöldi byggðra íbúða 2000-2005.
Heimild: Fasteignamat ríkisins.
Fjöldi
1.200
1.100
1.000
900
800
700
600
Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgar-
svæðinu (sex vikna meðaltöl), júní 2003 -
febrúar 2006.
Heimild:Fasteignamat ríkisins.
íbúðafjárfesting og fasteignamarkaður
íbúðabyggingar tóku mikinn kipp árið 2005.
Bráðabirgðatölur úr þjóðhagsreikningum Hagstof-
unnar benda til að íbúðafjárfesting það ár hafi auk-
ist um rúm 10% á föstu verðlagi og hafi numið 57,4
milljörðum króna á verðlagi þess árs, 7 milljörðum
meira en árið áður. Rúmar 3.100 íbúðir voru full-
gerðar árið 2005 en 2.355 íbúðir fullgerðar árið áður.
Fjöldi íbúða á landinu öllu er nú talinn vera kominn
yfir 120 þúsund. Þá voru nær 4.700 íbúðir í smíðum
í lok ársins, um 1.300 fleiri en í árslok 2004.
Á höfuðborgarsvæðinu er byggingarstarfsemi í
örum vexti. Alls var lokið við byggingu um 2.600
íbúða árið 2005 og þar af voru um 782 íbúðir full-
gerðar í Reykjavík. Tölur um íbúðabyggingar, sem
byrjað var á, benda til að mikill vöxtur sé fram
undan á þessu ári. Byrjað var á byggingu nær 4.400
íbúða á árinu 2005, um 1.650 fleiri en árið áður, en sú
fjölgun er öll á landsbyggðinni. Á höfuðborgar-
svæðinu var byrjað á nær 2.300 íbúðum á árinu.
Eftirspurn eftir íbúðum ræðst af nokkrum sam-
verkandi þáttum. Fjármögnun íbúðakaupa varð
mun auðveldari árin 2004 og 2005 en það leiddi til
aukinnar eftirspurnar og mikilla fasteignaverð-
hækkana. Rauntekjur heimilanna hafa aukist
óvenjumikið undanfarin tvö ár. Líf er í byggingar-
starfsemi fyrir austan. Síðast en ekki síst fjölgar
þjóðinni mun hraðar en áður. Fjölgunin 2005 var yfir
6.300 manns, en hún var um 3.000 árið áður og um
7.000 manns yfir tímabilið 2000-2003. Fjölgunin árið
2005 er ekki aðeins fólgin í erlendu vinnuafli við
stóriðju heldur er aðflutningur fólks til annarra
8 41 Arbók VFÍ/TFl 2006