Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 40
fundir hafa verið misjafnlega sóttir en þó oftast fámennir. Tæknileg framkvæmd þeirra
hefur verið afar bágborin og því hafa þátttakendur ekki notið þeirra til fullnustu. Hefur
það án efa haft veruleg áhrif á þátttökuna.
Lokaorð
Það starfsár sem hér hefur verið gerð grein fyrir hefur verið ágætlega starfsamt.
Samvinna innan beggja stjórna hefur verið til fyrirmyndar og samstarf deildanna með
miklum ágætum. í ljósi þess urðu niðurstöður kosninga um sameiningu félaganna á
landsvísu flestum stjórnarmönnum mikil vonbrigði. Stjórnir NVFÍ og NVFI vilja þakka
félögum ágætt samstarf á starfsárinu og vænta enn frekari þátttöku félaga á því starfsári
sem framundan er.
Kristinn Magnússon, formaður NVFI
Páll Hlöðversson, formaður NTFÍ
Endurmenntunar- og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ, AV og SV
Endurmenntunar- og símenntunarnefnd VFÍ, TFÍ, AV og SV (ENSÍM) starfar að endur-
menntunarmálum félaganna. Starfi nefndarinnar hefur verið skipt niður í samræmi við
deildir félagsins. Nefndin hefur einnig samstarf við arkitekta varðandi námskeiðahald.
Starf nefndarinnar hefur verið í lágmarki og leiddi það til endurskoðunar á fyrirkomu-
lagi skipunar í nefndina fyrir rúmu ári. Nú hafa verið skipaðir í hana aðilar sem tengjast
störfum deildanna og er vinna í gangi í samstarfi við Endurmenntun Háskóla íslands
(EHÍ) að virkja þá betur. EHÍ hefur boðið upp á nokkur námskeið á síðasta ári eins og
undanfarin ár, í samstarfi við nefndina.
MENNT - Samstarfsvettvangur atvinnulífs og skóla
Mennt veitir árlega starfsmenntaverðlaun í samvinnu við Starfsmenntaráð og voru þau
afhent 4. nóvember 2005. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum, og þau hlutu í ár:
í flokki fyrirtækja: Landsvirkjun. í flokki félagasamtaka: Efling stéttarfélag. I opnum
flokki: Ingibjörg Hafstað. Átta manns skipa stjóm Menntar, tveir tilnefndir af ASÍ, tveir af
Samtökum atvinnulífsins, tveir af Iðnmennt (Sambandi iðnmenntaskóla), einn af
Samstarfsnefnd háskólastigsins og einn af Samstarfsnefnd um menntun í iðnaði. Núver-
andi formaður er Gústaf Ádolf Skúlason, frá Samtökum atvinnulífsins. Framkvæmda-
stjóri Menntar er Aðalheiður Jónsdóttir og er skrifstofa samtakanna á Grensásvegi 16a.
Fulltrúi VFÍ hjá Mennt er Sigurður M. Garðarsson og fulltrúi TFÍ Halldór Guðmundsson.
Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar
Hagsmunafélag um eflingu verk- og tæknimenntunar á háskólastigi var stofnað 23. mars
2000. Stofnendur voru Háskóli íslands, Háskólinn á Akureyri, Tækniskóli íslands (nú
Háskólinn í Reykjavík), Verkfræðingafélag íslands, Tæknifræðingafélag íslands og
Samtök iðnaðarins. Markmið Hagsmunafélagsins er að efla verkfræði- og tæknimenntun
á íslandi. Þessu vill félagið ná með samnýtingu og samstarfi milli háskóla en nauðsynlegt
er að auka framboð á raungreinamenntun á háskólastiginu. Horfa verður sérstaklega til
þess að efla menntun á landsbyggðinni. Möguleikar til slíks liggja einkum í auknum sam-
legðaráhrifum háskóla og rannsóknastofnana. Hagsmunafélagið vill að öll tækifæri séu
nýtt til þess að bæta menntun í raungreinum, sérstaklega á sviði verk- og tæknifræði.
3 8 | A r b ó k VFl/TFl 2006