Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 241
Myndin sýnir t.d. að fylgnistuðull milli breytanna
Arangur Meðaltal og Ferli Meðaltal er 0,47 og skv.
t prófi má hafna núll tilgátunni - að fylgnin sé engin
- með 99% vissu. Breytur sem lýsa tegund verkefnis
taka ýmist gildið 1 eða 0, verkefni er t.d. annaðhvort
upplýsingatækniverkefni eða ekki. Grái hluti mynd-
arinnar endurspeglar því svæði þar sem útreiknuð
fylgni hefur enga merkingu. Ekki er hægt að greina
neina fylgni milli tegundar verkefnis og árangurs.
Hins vegar er fylgni milli Áætlun Meðaltal og fram-
kvæmdaverkefna og gildir sama um Ferli Meðaltal
og framkvæmdaverkefni. Sambærilega fylgni er
ekki að finna við aðrar tegundir verkefna.
Meðaltöl og staðalfrávik breytanna í þætti C, ásamt
útreiknaðri fylgni milli þeirra, er sýnd í mynd 6. Til
að auðvelda framsetningu niðurstaðna eru fylgni-
stuðlar settir fram með einum aukastaf í myndiimi.
Mjög fáir þátttakenda höfðu D vottun en 5% þeirra
höfðu C vottun og 9% höfðu B vottun. Stór hluti
þátttakenda höfðu háskólagráðu af tæknisviði eða
67%. Rúmur helmingur hafði tekið námskeið á sviði
verkefnastjórnunar. Meðal reynsla þátttakenda í
verkefnastjórnun var rúm 9 ár en reynslan var þó
afar breytileg eins og hátt staðalfrávik endurspeglar.
Greina má veika fylgni milli árangurs annars vegar
og bæði reynslu í verkefnastjórnun og tæknilegrar
háskólagráðu hins vegar.
í þætti D var ætlunin að ganga mun lengra en gengið var í þætti A og finna þær einstöku
spábreytur sem skipta máli til að segja fyrir um árangur í verkefnum. Fylgnifylkið fyrir
þátt D er sýnt í töflu 4 í viðauka. Notast var við þrepaða (e. stepwise) aðhvarfsgreiningu
og einungis tvær spábreytur komu fram í endanlegu líkani, eins og sést í töflu 3.
Tafla 3. Niðurstöður fyrir Likan D. B er ókvarðaður aðhvarfsgreiningarstuðull, Beta er kvarðaður aðhvarfsgreiningarstuðull. t og
P-gildi sýna t próffyrir spábreyturnar.
Breytur B Beta t P-gildi
Fasti 3,85 13,06 0,00
Tæknileg Skilgreining 0,18 0,37 3,26 0,00
Innri Aðfangastjórnun 0,14 0,35 3,08 0,00
Umræða
Hafa ber í huga að fremur lágt svarhlutfall kann að skekkja niðurstöðurnar. Almennt má
segja að fylgni milli breyta, þegar hún mælist, sé lítil eða hófleg.
I töflu 1 kemur fram að hin útreiknaða árangursbreyta Árangur Meðaltal hefur fylgni við
bæði Áætlun Meðaltal og Ferli Meðaltal. Einnig kemur fram nokkuð sterk fylgni milli
Áætlun Meðaltal og Ferli Meðaltal. Verkefnastjórar sem leggja áherslu á að skilgreina
virkni og tæknilega eiginleika afurðar verkefnisins eru einnig líklegir til að beita aðferðum
og ferlum, t.d. viðurkenndum ferlum verkefnastjórnunar. I neðri hluta töflu 1 er fjallað
um líkan Al. Þar kemur fram að hlutfallslegt framlag Ferli Meðaltal í að segja fyrir um
háðu breytuna Árangur Meðaltal er mun meira og skv. t prófi er þar um marktækan
stuðul að ræða en stuðullinn fyrir Áætlun Meðaltal er ekki marktækur og breytan bætir
því líkanið ekki. Hafa ber í huga að einungis hluti verkefnanna sem fjallað var um í könn-
Ritrýndar vísindagreinar i 2 3 9