Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 32
Löggildingarnefnd TFÍ
I löggildingarnefnd sitja eftirtaldir: Ragnar Georg Gunnarsson byggingartæknifræðingur,
formaður, Arni Guðni Einarsson rafmagnstæknifræðingur og Ragnar Kristinsson
véltæknifræðingur.
Löggildingarnefndin hélt 13 fundi og voru tekin fyrir 31 mál á starfsárinu, 21 mál frá
byggingartæknifræðingum, 10 mál frá rafmagnstæknifræðingum en ekkert mál frá
véltæknifræðingum. Samþykkt voru 9 erindi, 9 erindum var synjað og 15 málum frestað.
Skýringin á fjölda umsækjenda er að erindi berast oftar en einu sinni til nefndarinnar.
Enn er mikil aukning á umsóknum um löggildingu hönnuða til að gera aðaluppdrætti og
var töluvert um að misræmis gætti í bréfum og umsóknum til nefndarinnar.
Nefndarmenn þakka starfsfólki á skrifstofunni mjög gott samstarf.
Ársskýrsla KTFÍ
Aðalfundur Kjarafélags Tæknifræðingafélags íslands var haldinn 10. mars 2005 að
Engjateigi 9. Gengið var til dagskrár samkvæmt lögum, flutt var skýrsla stjórnar og
nefnda. Engar óskir um lagabreytingar höfðu borist. Stjórnarkjör fór fram og voru eftir-
taldir kosnir í stjórn til tveggja ára: Arni Þór Árnason, Jón ísaksson Guðmann og Þór
Sigurþórsson. Varamenn til eins árs voru kosnir Óli Jón Hertervig og Karl Jensson.
Félagslegir endurskoðendur voru kjörnir Sigurþór Guðmundsson og Guðjón H. Árna-
son, til vara Brandur B. Hermannsson.
Fyrsti fundur stjórnar var haldinn mánudaginn 4. apríl og skipti stjórnin þannig með sér
verkum: Formaður er Bjarni Bentsson, varaformaður Jón ísaksson Guðmann, gjaldkeri
Haraldur Sigursteinsson, ritari Kristjón Jónsson og meðstjórnendur Árni Þór Arnason,
Þór Sigurþórsson og Samúel Smári Hreggviðsson. Þeir Árni og Þór voru skipaðir full-
trúar KTFÍ í stjórn TFÍ.
í Vísinda- og endurmenntunarsjóð voru skipaðir fulltrúar fyrir KTFÍ þeir Haraldur
Sigursteinsson og Bergþór Þormóðsson. í stjórn Fjölskyldu- og styrktarsjóðs KTFÍ voru
skipaðir Óli Jón Hertervig, formaður og Samúel Smári Hreggviðsson og Þór
Sigurþórsson. I stjórn Sjúkrasjóðs KTFI voru skipaðir Gústaf Adolf Hjaltason, formaður,
Guttormur Guttormsson og Árni Þór Árnason.
Ákveðið var að funda á mánudagskvöldum á hálfsmánaðar fresti. Alls voru 18 fundir
haldnir á árinu en stjórnin tók sér frí frá fundum um sumarið.
Helstu verkefni stjórnar á starfsárinu voru hefðbundin og verða þau tiunduð hér
Upplýsingamöppu um málefni KTFÍ var viðhaldið. Kjarakönnun var gefin út og var um
að ræða laun árið 2003 og septemberlaun 2004. Kjarakönnun var einnig gerð og var við-
fangsefnið árið 2004 og septemberlaun 2005. Könnunin var gerð á netinu og tókst nokkuð
vel, svarhlutfall var um 50%. Allmörg mál félagsmanna komu til kasta stjórnar og voru
nokkur þeirra send lögfræðingi félagsins til skoðunar og ályktunar.
Formaður og varaformaður sóttu norrænan launafund í Finnlandi í nóvember 2005.
Mörg málefni voru þar á dagskrá, sem dæmi má nefna: Samkeppnisákvæði í
ráðningarsamningum, alþjóðavæðingu, starfsöryggi og trúnaðarmannakerfið.
Sameiningarmál TFÍ, VFÍ og SV voru til umfjöllunar allt árið og verður að segjast eins og
er að hið hefðbundna starf stjórnar raskaðist töluvert vegna þess. Stjórn KTFÍ taldi sig
m.a. þurfa að standa vörð um það sjálfstæði sem kjaramálin hafa innan TFÍ og þyrftu að
hafa í nýju félagi ef til sameiningar kæmi. Stjórn KTFÍ kom ekki að störfum síðasta stýri-
hóps um sameiningarmálin en kallaði að lokum eftir fundi með forsvarsmönnum TFÍ til
3 0
Árbók VFl/TFl 2006