Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 274
þar sem n, og
reikna fyrir ADU
talið á meðan mælitímabilinu stóð. Mælt hljóðstig er umreiknað í jafngiídishljóðstig með
jöfnunni
^Aeq,meas ,YDT = ^Aeq jneas MTT + (AjBr ~ A.V/r/' ) (11)
þar sem
nUght eru meðalfjöldi þungra og léttra ökutækja á klukkustund. lA skal
(e. YDT) og fyrir raunverulegt umferðarflæði (e. MTT) eins oe það var
LAeq,meas,YDT = mælt jafngildishljóðstig umreiknað m.t.t. ÁDU
LAeq,measMTT = jafngildishljóðstig mælds tímabils
bj'Ydt = jafngildishljóðstig, reiknað með jöfnu (10) fyrir ÁDU
L\,mtt = jafngildishljóðstig, reiknað með jöfnu (10) fyrir raunverulega
umferð á mælitímabilinu
Hljóðmælingar í Markarholti
Eins og áður sagði er lóðin Markarholt á milli
Suðurlandsbrautar og Miklubrautar í austurhluta
Reykjavíkur. Vestan við lóðina er Skeiðarvogur. Lóðin er
því í nágrenni þriggja gatna, sem hafa mismikla umferð
(sjá töflu 1). Mest er umferðin á Miklubraut, sunnan
lóðarinnar, en Miklabraut er stofnbraut og mikilvægur
hlekkur í gatnakerfi Reykjavíkurborgar.
Markarholt er lóð í þegar byggðu hverfi og gæti því fallið undir frávik 2 í Reglugerð um
hávaða nr. 993/1999 um hávaða frá umferð [Ólöf Örvarsdóttir, 2005]. í fráviki 2 segir að
krafa fyrir íbúðarhúsnæði um 55 dB(A) utan við opnanlegan glugga skuli vera uppfyllt
fyrir a.m.k. helming íveruherbergja í hverri íbúð. í öðrum íveruherbergjum þeirrar íbúðar
má hljóðstig vera allt að 70 dB(A) utan við opnanlegan glugga. Fyrir sjúkrastofur gerir
by8g>ngarreglugerð (frávik 2) kröfu um að hljóðstig utan við glugga (allra) sé ekki hærra
en 70 dB(A) [Dómsmálaráðuneytið, 1999].
f > Tafla 1. Ársdagsumferð á vegum við Markarholt [Björg Helgadóttir,2004;Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf, 2004].
Staður Álagsum ferð
Miklabraut (2002) 66.000
Skeiðarárvogur (2004) 11.000
Suðurlandsbraut (2004) 2.000
J
Mynd 1. Skipulagsreiturinn Markarholt markast af Miklubraut í
suðri, Skeiðarvogi ívestri og Suðurlandsbraut í norðri.Á myndinni
má sjá fyrirfram ákveðna mælipunkta.Punktar 1-6 marka mælilínu
1, punktar 7-12 marka mælilínu 2, punktar 13-18 marka mælilínu
3 og punktar 19-21 marka mælilínu 4.
Mælingar voru framkvæmdar í Markarholti við
haustaðstæður (engin nagladekk) í október 2004 og
við vetraraðstæður (nagladekk) í mars 2005. Við
vetraraðstæður má gera ráð fyrir að um helmingur
ökutækjanna séu á nagladekkjum [Guðbjartur
Sigfússon, 2001].
Við hljóðstigsmælingarnar var mælt á fyrirfram
ákveðnum punktum sem mynda fjórar línur, hver
með fimm hælum, og var hljóðmælir af tegundinni
Brúel & Kjær 3543 notaður á einum mælipunkti í
hverri línu (mælipunkti 4, 10, 16 og 22). Hljóð-
neminn var staðsettur í 2,0 m hæð yfir jörðu.
Hljóðmælar af gerðinni Brúel & Kjær SLM 2236 og
Norsonic NOR-118 voru notaðir á fleiri mælipunkt-
um, og voru tvær 10 mínútna mælingar gerðar með
þeim í hverjum punkti. Með þessu móti var kannað
hvernig hljóðstig minnkar með fjarlægð frá hljóð-
gjafa og áreiðanleiki hljóðreiknilíkansins kannaður
með samanburði við mæliniðurstöður. Staðsetn-
ingar útsettra mælipunkta má sjá á mynd 1. Mæli-
dagana var vegyfirborð þurrt og vindhraði 5 m/s.
2 7 2i Arbók VFl/TFl 2 0 0 6