Árbók VFÍ/TFÍ - 01.06.2006, Blaðsíða 25
Störf Orðanefndar RVFÍ árið 2005
Orðanefnd rafmagnsverkfræðinga endurskoðaði frumþýðingar Gústavs Arnars á
íðorðum Alþjóða raftækniorðasafnsins, sem fjalla um loftnet, gerðir þeirra og útgeisl-
unareiginleika og jafnframt um útbreiðslu rafsegulbylgna.
Þýðingardeild Utanríkisráðuneytisins óskaði eftir áliti nefndarinnar á íðorðum í
fjarskiptamálum vegna EES. íslensk orð yfir þessi hugtök eru mikilvæg vegna nýrrar
skipunar raforkusölumála hér á landi.
Hreinn Jónasson lagði fyrir nefndarfund lista með heitum staðla á ensku og íslensku.
Heitin voru skoðuð og rædd og lagðar til nokkrar lagfæringar.
Nefndin sótti í febrúar 2005 um styrk til Menningarsjóðs til að gefa út 13. bindi Raftækni-
orðasafns. Nefndin hlaut á vordögum 200.000 kr. styrk úr Menningarsjóði til útgáfunnar,
en það dugar fyrir u.þ.b. fimmtungi kostnaðar við bókina í prentsmiðju. Nefndin sótti um
600.000 krónur og ætlaði að sala bókarinnar stæði undir frekari kostnaði.
íslensk málstöð bauð nefndarmönnum á ráðstefnu, norræna íðorðadaga, sem haldnir
voru í Háskóla íslands dagana 9. til 12. júní. Mikill áhugi var innan ORVFÍ að sækja
ráðstefnuna og sátu hana sex nefndarmenn.
Nefndarmenn ræddu allítarlega um orðið vak fyrir erlenda orðið radio, sem Sveinn
Guðmundsson rafmagnsverkfræðingur stakk upp á fyrir mörgum árum að notað yrði.
Skiptar skoðanir eru samt enn um þetta innan nefndarinnar.
Bergur Jónsson, formaður ORVFÍ, flutti skýrslu um störf nefndarinnar á aðalfundi RVFI
4. maí 2005.
Aðalfundur Málræktarsjóðs var haldinn 2. júní. Þorvarður Jónsson var fulltrúi ORVFI á
fundinum og Sigurður Briem fulltrúi VFÍ. Bæði VFÍ og ORVFÍ eru meðal stofnfélaga
Málræktarsjóðs.
Jón Þóroddur Jónsson lét í ljós áhuga á að koma aftur til starfa í ORVFÍ eftir alllanga
fjarveru. Hann starfar nú aftur með nefndinni.
Baldur Sigurðsson, sem starfaði með nefndinni sem ráðunautur um íslenskt mál í nokkur
ár, óskaði eftir að láta af störfum sökum anna. Starfaði hann með nefndinni fram í
október. Honum eru þökkuð þýðingarmikil störf hans í þágu nefndarstarfsins. Við tók
Haraldur Bernharðsson Ph.D., íslenskufræðingur, og bindur ORVFÍ miklar vonir við
hann sem arftaka Baldurs.
Bréf barst í desember 2005 frá Alþingi, sem óskaði eftir athugasemdum og ábendingum
ORVFÍ um frumvarp til laga um sameiningu fimm stofnana í eina stofnun íslenskra fræða
- Arnastofnun.
Fundir ORVFÍ á árinu 2005 urðu 27. Um áramótin 2005/2006 hafði ORVFÍ komið saman
á 1086 fundum frá árinu 1971, en þá var fyrst farið að færa fundargerðir reglulega, 31
fundur að meðaltali á ári í 35 ár.
Á árinu 2005 skipuðu eftirtaldir rafmagnsverkfræðingar Orðanefnd RVFÍ: Bergur Jónsson
formaður, Gunnar Ámundason, Gústav Arnar, Ivar Þorsteinsson, Jón Þóroddur Jónsson,
Sigurður Briem, Sæmundur Óskarsson, Þorvarður Jónsson og rafmagnstæknifræðing-
amir Guðmundur Guðmundsson og Hreinn Jónasson.
Bergur Jónsson, formaður
Félagsmál Vfí/TFÍ