Morgunblaðið - 05.10.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameins-
félagsins til að berjast gegn krabbameini hjá konum.
Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný
með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir
taka fagnandi á móti þér.
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.
Hreyfill/Bæjarleiðir er styrktaraðili árveknisverkefnis
Krabbameinsfélagsins í október og nóvember
Tökum bleikan bíl!
Taktu bleikan bíl næst flegar flú pantar leigubíl!
Helga Gottfreðs-
dóttir, dósent við
hjúkrunar-
fræðideild HÍ,
leiðir gönguferð
um slóðir 250 ára
sögu ljósmæðra í
Reykjavík á
laugardaginn
kemur, 6. októ-
ber. Gengið verð-
ur frá Skóla-
vörðustíg 11 og komið við á þremur
til fjórum áfangastöðum í miðbæ
Reykjavíkur sem tengjast sögu ljós-
mæðra. Lagt verður af stað kl. 11.
Gangan er liður í samstarfi Há-
skóla Íslands og Ferðafélags Ís-
lands undir yfirskriftinni „Með
fróðleik í fararnesti.“ Hún tekur
um tvær klukkustundir. Þátttaka
er ókeypis og allir eru velkomnir.
Gengið um slóðir
sögu ljósmæðra
Helga
Gottfreðsdóttir
Menntakvika – árleg ráðstefna
Menntavísindasviðs HÍ um nýjustu
rannsóknir, nýbreytni og þróun í
menntavísindum fer fram í dag,
föstudaginn 5. október kl. 9-17.
Ráðstefnunni er ætlað að kynna
og miðla því sem efst er á baugi í
rannsóknum í menntavísindum á
Íslandi ár hvert. Flutt verða er-
indi í 45 málstofum um fjölbreytt
málefni sem tengjast uppeldi,
menntun og þjálfun. Erindin
verða flutt í húsakynnum mennta-
vísindasviðs við Stakkarhlíð í
Reykjavík.
Erindi um menntun
Plastprent styður Bleiku slaufuna
aftur í ár með sölu á Bleika pok-
anum í tveimur stærðum til versl-
ana. Markmiðið er að styðja við söl-
una á Bleiku slaufunni, vekja
athygli á átakinu og auka árvekni
um krabbamein hjá konum.
Í fyrra seldust 20.000 eintök á
sex dögum og því var ákveðið að
tvöfalda upplagið af litla sérvöru-
pokanum og bæta við kjörbúð-
arpoka. Allur ágóði rennur til
Krabbameinsfélags Íslands.
Á myndinni eru frá vinstri: Sal-
vör Þ. Davíðsdóttir, markaðs-
fulltrúi Plastprents, Þröstur Árni
Gunnarsson, fjármálastjóri
Krabbameinsfélagsins, Sigurður
Kr. Björnsson, framkvæmdastjóri
sölu- og markaðssviðs Plastprents,
Erna Matthíasdóttir, markaðs-
fulltrúi Krabbameinsfélagsins og
Hilda Bára Víglundsdóttir, sölu-
maður í Plastprenti.
Bleiki pokinn í búðir
Hringsjá, náms- og starfsendur-
hæfing, áður Starfsþjálfun fatl-
aðra, verður 25 ára núna í byrjun
október. Hringsjá er náms- og
starfsendurhæfing fyrir fólk sem
vill komast aftur út á vinnumark-
aðinn eftir hlé vegna sjúkdóma,
slysa eða annarra áfalla. Mark-
miðið er að gera nemendur færa
um takast á við almennt nám í
framhaldsskólanám og/eða fjöl-
breytt störf á almennum vinnu-
markaði. Í náminu eru 60 nem-
endur á aldrinum 18-67 ára,
yngstu nemendurnir núna eru 22
ára og sá elsti 61 árs. Efnt verður
til afmælisfagnaðar á morgun, 7.
október, í Gullhömrum í Graf-
arholti kl. 14 - 16.30. Núverandi og
fyrrverandi nemendur flytja ávarp
sem og Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra.
Haldið upp á 25 ára
afmæli Hringsjár
STUTT
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur,
hefur óskað eftir því við stjórn Orku-
veitu Reykjavíkur að boðað verði til
aukaeigendafundar þann 10. október
til þess að fara yfir niðurstöður út-
tektarnefndar fyrirtækisins. Borgar-
stjórinn fékk þær í hendur í gær.
Eigendafundurinn tekur formlega
ákvörðun um hvernig farið verði með
niðurstöður úttektarinnar.
Hlutverk úttektarnefndarinnar,
sem skipuð var í júní í fyrra, var að
gera óháða úttekt á þeim þáttum sem
leiddu til núverandi fjárhagsstöðu
Orkuveitunnar, allt frá stofnun henn-
ar. Sérstaklega átti hún að skoða
hvernig staðið var að mikilvægum
skuldbindandi ákvörðunum.
Í yfirlýsingu sem borgarstjórinn
sendi frá sér í gær kemur fram að í
beinu framhaldi af eigendafundinum
verði boðað til kynningarfundar með
borgar- og bæjarfulltrúum ásamt
stjórn OR þar sem úttektarnefndin
geri grein fyrir niðurstöðum sínum.
Niðurstöður úttektar á OR liggja fyrir
Borgarstjóri óskar eftir aukaeigendafundi til að fara yfir niðurstöður úttekt-
arnefndar OR Úttektin verði kynnt borgar- og bæjarfulltrúum í kjölfarið
Morgunblaðið/Ómar
OR Úttektin átti m.a. að beinast að vinnubrögðum forsvarsmanna OR.
Átak Fyrstu bleiku pokarnir afhentir.