Morgunblaðið - 05.10.2012, Side 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta.
Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
VERUM TÍMANLEGA MEÐ
DÚKANA OG GLUGGATJÖLDIN
FYRIR JÓLIN
VIÐTAL
Anna Lilja Þórisdóttir
annalilja@mbl.is
Þriggja mánaða ferðalag 25 ára gam-
als Íslendings til Taílands snerist upp í
martröð þegar hann var handtekinn
vegna gruns um fíkniefnamisferli.
Brynjar Mettinisson sat saklaus í
fangelsi í Taílandi í tæplega eitt og
hálft ár, við aðstæður sem fáir geta
ímyndað sér. Hann segist hvorki sár
né reiður og horfir bjartsýnn fram á
við.
„Mér líður vel, mér finnst ég vera
ráðvilltur. Ég er ekkert sár, ekkert
reiður yfir því sem gerðist. Ég lærði
mikið um sjálfan mig, núna veit ég
hver ég er og þekki sjálfan mig; kosti
mína og galla og hverju ég vil breyta
til að verða betri manneskja,“ segir
Brynjar þar sem hann dvelur á heimili
Evu systur sinnar í Svíþjóð.
Brynjar var handtekinn í maí í fyrra
vegna gruns um aðild að fíkniefna-
smygli og var í framhaldinu færður í
fangelsi í Bangkok í Taílandi. Hann
var sýknaður af öllum ákærum í sum-
ar, í byrjun ágúst. Hann var þó ekki
látinn laus þá, því að ákæruvaldið ytra
hafði mánuð til að áfrýja dómnum. Það
var ekki gert og var Brynjari greint
frá því í fyrradag að hann væri frjáls
maður. Engar ástæður hafa verið
gefnar upp fyrir því hvers vegna
Brynjar var ekki látinn laus um leið og
ljóst var að ekki yrði áfrýjað. Sam-
kvæmt upplýsingum frá utanríkis-
ráðuneytinu frestaðist málið að öllum
líkindum vegna skriffinnsku og er
málinu lokið af hálfu þess.
Allt snerist á hvolf
„Á sömu sekúndu og ég var hand-
tekinn snerist allt á hvolf. Heimurinn
breyttist úr hvítu í svart, dagur varð
að nótt. Það tekur marga daga að átta
sig á því hvað er að gerast í svona að-
stæðum og um leið og maður gerir
það, þá byrjar ruglið. Hugurinn fer að
hlaupa hingað og þangað, upp og nið-
ur, maður fer að hugsa um hitt og
þetta. Maður verður smáklikkaður. Í
fangelsinu var sagt við mig að ég gæti
fengið lífstíðardóm, jafnvel dauðadóm.
Þegar ræðismaðurinn sagði við mig að
enginn framsalssamningur væri í gildi
á milli Íslands og Taílands þyrmdi yfir
mig.“
Brynjar segir að hefði hann verið
fundinn sekur, þá hefði hann getað
verið dæmdur í lífstíðarfangelsi. „Ef
fólk sem er tekið með meira en 100
grömm af amfetamíni, sem er efnið
sem ég var sakaður um að vera með,
ákveður að berjast í málinu og tapar,
þá fær það lífstíðardóm. En ef fólk ját-
ar á sig sökina, þá fær það líklega ekki
meira en 25 ár. Fólk er þannig hvatt til
að játa, þó að það sé saklaust.“
- Var aldrei freistandi að játa og
eiga þannig möguleika á vægari dómi?
„Jú, mjög freistandi. Ég hugsaði
mjög mikið um það og það komu
stundir þar sem ég hugsaði: Hvað er
ég að pæla, af hverju játa ég ekki
bara? Hvaða rugl er þetta í mér? En
ég er svo feginn núna að hafa ekki látið
undan þessum hugsunum.“
Ekki fallegur staður til að vera á
„Fangelsið. Það var ekki fallegur
staður til að vera á. Vatnið var óhreint,
það voru skordýr í matnum og við vor-
um um 70 saman í einum klefa. Þarna
var mjög þröngt, sjóðandi heitt, erfitt
að sofa og oft mikil læti. Þarna inni
voru menn að neyta eiturlyfja og slást.
Ég veit ekki hvernig mér liði núna ef
ég hefði verið lokaður inni meira eða
minna allan sólarhringinn, en okkur
var hleypt út klukkan sex á morgnana
og áttum að fara inn í klefa um fjögur-
leytið. Þá gátum við gengið um, spjall-
að saman, þvegið fötin okkar, farið að
lyfta eða í fótbolta.“
„Maturinn var einhæfur, yfirleitt
hrísgrjón og kálblöð. Þeir, sem eru
með peninga, geta keypt sér betri mat
og sem betur fer gat ég það. Ég veit
ekki hvað hefði orðið um mig annars,
ég léttist heilmikið og hefði lést enn
meira ef ég hefði ekki getað keypt mér
mat.“
Brynjar segir að hreinlæti í fangels-
inu hafi verið af skornum skammti,
mikil veikindi hafi verið á meðal fang-
anna, en hann hafi haldið góðri heilsu
mestallan tímann.
„En menn voru að deyja þarna í
klefanum, þarna voru menn með al-
næmi og ýmsa aðra sjúkdóma.“
Fékk góðan stuðning
frá utanríkisþjónustunni
Brynjar hafði takmarkaða mögu-
leika á að hafa samband við vini sína
og ættingja. Hann hafði hvorki aðgang
að síma né tölvupósti, en mátti senda
og taka á móti bréfum. Hann segir að
bréfin til hans hafi borist seint og illa,
en að flest bréfin frá honum hafi
komist til viðtakenda.
Á meðan Brynjar var í fangelsinu
fékk hann heimsóknir frá Kristínu
Árnadóttur, sendiherra Íslands í Kína
og ræðismanni Íslands í Taílandi, og
hann er þeim afar þakklátur. „Jóhann
Jóhannsson í utanríkisráðuneytinu
reyndist okkur vel og allt það fólk sem
lýsti yfir stuðningi við mig og fjöl-
skylduna mína á Facebook. Mér þykir
svo vænt um þennan stuðning.“
Furðuleg tilfinning, en góð
Nú er Brynjar á heimili systur sinn-
ar í Svíþjóð og hyggst dvelja þar á
næstunni, en hyggur á Íslandsferð eft-
ir nokkrar vikur. „Ég ætla að fá að
hvíla mig hérna á næstunni, en Ísland
er heimili mitt. Þar vil ég vera.“
„Ég er umkringdur mjög góðu fólki.
Ókunnugt fólk og fólk sem ég hef ekki
talað við í 15 ár hefur verið að styðja
við fjölskylduna mína á meðan ég var
úti. Ég er svo þakklátur fyrir það. Ég
vissi ekki að ég þekkti svona mikið af
góðu fólki. Ég get ekki nefnt allt það
góða fólk sem hefur hjálpað mér og
hugsað fallega til mín en mig langar til
að það viti hvað ég met stuðninginn
mikils.“
„Áður tók ég frelsinu sem sjálfsögð-
um hlut, líklega eins og flestir aðrir.
Mér finnst þetta skrýtið, ég er frjáls
og á meðal fólks. Þetta er furðuleg til-
finning. En hún er góð. Ég ætla að
nota hverja einustu mínútu það sem
eftir er til að gera góða hluti.“
Mun nýta frelsið til góðra hluta
Brynjar Mettinisson segir það furðulega tilfinningu en góða að vera á ný frjáls og á meðal fólks
Segist hvorki vera sár né reiður „Veit hverju ég vil breyta til að verða betri manneskja“
Laus Brynjar Mettinisson er laus úr fangelsi í Taílandi þar sem hann var í
haldi í nærri eitt og hálft ár. Hann horfir bjartsýnn fram á við.
Kominn heim
» Brynjar var handtekinn í Taí-
landi í maí í fyrra.
» Hann var í fangelsi í Bang-
kok í 16 mánuði uns réttað var
í máli hans í lok júlí. Þar var
hann sýknaður.
» Brynjar fékk þær fréttir á
þriðjudag að hann yrði látinn
laus úr haldi. Hann flaug síðan
til Danmerkur í fyrrinótt og
hélt þaðan til Svíþjóðar til
systur sinnar, sem býr þar.
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Héraðsdóms Reykjaness um að
sýkna bæri karlmann af ákæru um
nauðgun.
Voru dómarar á báðum dómstig-
um sammála um að ákæruvaldinu
hefði ekki tekist að færa sönnur á
sekt mannsins gegn eindreginni
neitun hans en maðurinn var ákærð-
ur fyrir að hafa haft kynferðismök
við konu og notfært sér að hún gat
ekki spornað við þeim sökum
ölvunar og svefndrunga.
Maðurinn var handtekinn á að-
fangadagskvöld 2010. Konan bar að
hún hefði verið að skemmta sér á
veitingastað um nóttina en vaknað
kl. 17 á aðfangadag og þá legið á
dýnu á gólfi veitingastaðarins. Hún
hefði verið nakin að neðan og fullviss
um að við hana hefði verið haft sam-
ræði. Umræddur maður hefði verið í
grennd, einnig nakinn.
Maðurinn viðurkenndi að hafa
haft kynferðismök við konuna en það
hefði verið með hennar vilja.
Héraðsdómur og síðan Hæstiréttur
töldu að ákæruvaldinu hefði ekki
tekist að axla sönnunarbyrði í málinu
og var maðurinn því sýknaður.
Morgunblaðið/Sverrir
Hæstiréttur Karlmaður var í gær sýknaður af ákæru um nauðgun.
Sýknaður af ákæru
um kynferðisbrot
Utanríkisráðuneytinu er kunnugt
um alls tíu Íslendinga sem sæta
fangelsisvist erlendis. Af þeim hefur
einn karlmaður fengið reynslulausn
og dvelur utan fangelsis í Brasilíu en
sætir farbanni. Annar karlmaður er
þar í gæsluvarðhaldi. Þá afplána
tveir karlmenn dóm á Spáni og sá
þriðji er í gæsluvarðhaldi. Einn karl-
maður afplánar dóm í Bandaríkj-
unum, einn í Danmörku, einn í
Portúgal og einn á Grænlandi. Þá af-
plánar kona dóm í Perú.
Að auki sitja átta íslenskir karl-
menn í gæsluvarðhaldi í Danmörku
og Noregi í tengslum við rannsókn á
stóru fíkniefnamáli en utanríkis-
ráðuneytið hefur ekki fengið form-
lega tilkynningu um þá. Ráðuneytið
segir ekki útilokað að fleiri íslenskir
ríkisborgarar séu í erlendum fang-
elsum þar sem dæmi séu um að Ís-
lendingar, sem hlotið hafi dóma er-
lendis, afþakki afskipti íslenskra
stjórnvalda. Þá kunni einstaklingar,
sem beri tvöfalt ríkisfang, að hafa
hlotið dóma án þess að tilkynning
berist hingað heim. gummi@mbl.is
Að minnsta kosti 18 Íslendingar
sæta fangelsisvist erlendis
FANGELSI