Morgunblaðið - 05.10.2012, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
Karl Blöndal
kbl@mbl.is
Recep Tayyip Erdogan, forsætisráðherra Tyrk-
lands, sagði í gær að Tyrkir hefðu engar fyrirætl-
anir um að hefja stríð gegn Sýrlendingum. Hann
lét ummælin falla eftir að tyrkneska þingið sam-
þykkti að leyfa hernaðaraðgerðir í Sýrlandi eftir
að sýrlenski herinn skaut sprengjum á bæinn
Akcakale í Tyrklandi. Tvær konur og þrjú börn
létu lífið í árásinni.
320 þingmenn greiddu atkvæði með því að
heimila stríð, en 129 kusu gegn því. Heimildin
gildir í eitt ár. Þúsundir Tyrkja söfnuðust saman
til að mótmæla því að farið yrði í stríð við Sýrland.
Erdogan sagði á blaðamannafundi í bænum
Akcakale í gærkvöldi að Tyrkir vildu aðeins frið og
öryggi, en bætti við: „Tyrkneska lýðveldið er full-
fært um að verja sína borgara og landamæri. Eng-
inn ætti að láta reyna á staðfestu okkar í því.“
Hann dró í efa yfirlýsingar Sýrlendinga um að
árásin hefði verið slys og vísaði til þess að þetta
væri ekki fyrsta árásin yfir landamærin: „Eitt
skipti er slys … en hvernig getur þetta verið slys
þegar það hefur gerst í átta skipti?“
Bandaríkjamenn styðja Tyrki
Tyrkneski herinn gerði árás á her Sýrlands
annan daginn í röð í gær. Munu nokkrir sýrlenskir
hermenn hafa fallið í árásunum, en ekki kom fram
hvað margir. Bandaríkjamenn lýstu yfir því í gær
að aðgerðir Tyrkja væru „við hæfi“ og í „sam-
ræmi“ við tilefnið. Síðdegis í gær var hermt að
Tyrkir hefðu gert hlé á árásunum.
Í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna voru í gær
gerð drög að ályktun þar sem árás Sýrlendinga yf-
ir tyrknesku landamærin var fordæmd og sögð
„brot á þjóðarétti“. Rússar, sem eru bandamenn
Sýrlandsstjórnar og hafa neitunarvald í ráðinu,
lögðust gegn orðalaginu og gerðu tillögu um texta
þar sem ekki var minnst á þjóðarétt og skorað á
alla hlutaðeigandi að halda aftur af sér.
Sýrlenski herinn hélt áfram að láta sprengjum
rigna yfir borgina Aleppo í gær. Þá sagði Sýr-
lenska mannréttindavaktin að sveitir Bashars al-
Assads, forseta Sýrlands, hefðu orðið fyrir bak-
slagi þegar uppreisnarmenn felldu 21 félaga í sér-
sveitum hans í Damaskus-héraði. Alls er talið að
rúmlega 31 þúsund manns hafi látið lífið frá því að
uppreisnin gegn stjórn landsins hófst í mars í
fyrra. Hún hófst með mótmælum, en breyttist í
vopnaða uppreisn þegar stjórn landsins fór með
valdi gegn mótmælendum.
„Engar fyrirætlanir um stríð“
Tyrkneska þingið gefur heimild til hernaðaraðgerða í Sýrlandi Erdogan varar Sýrlendinga við að
láta reyna á staðfestu Tyrkja Tyrkir svara árás Sýrlandshers þar sem fimm óbreyttir borgarar féllu
Ítrekaðar árásir
» Sýrlendingar hafa áður gert
árásir yfir tyrknesku landa-
mærin. Í árásinni á þorpið
Akcakale féllu í fyrsta skipti
óbreyttir tyrkneskir borgarar.
» Í júní skutu Sýrlendingar
tyrkneska orrustuþotu niður.
Báðir flugmenn vélarinnar létu
lífið.
» Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna, sagði í gær að vax-
andi spenna við landamæri
landanna væri áhyggjuefni.
Við höfum engar fyrirætl-
anir um að hefja stríð við
Sýrland
Recep Tayyip Erdogan
Kabúl. AFP. | Óttinn við borgara-
styrjöld í Afganistan fer nú vaxandi.
Fyrir þremur árum ákvað Barack
Obama Bandaríkjaforseti að herða
aðgerðir í landinu og sendi þangað
33 þúsund hermenn til viðbótar við
þá sem fyrir voru. Í lok september
hvarf sá síðasti af þeim burt og
talibanar virðast hafa staðið atlög-
una af sér.
Enn eru 112 þúsund hermenn á
vegum Atlantshafsbandalagsins í
landinu. Þeir eiga að vera horfnir á
braut 2014 fyrir utan lítinn hóp her-
manna, sem eiga að stjórna aðgerð-
um gegn hryðjuverkum.
Sumir sérfræðingar spá því að
stjórn landsins, sem nýtur stuðnings
Vesturlanda, muni þá hrynja og út
brjótist borgarastyrjöld, sem yrði
mun afdrifaríkari en átökin sem
fylgdu í kjölfar þess að sovéski her-
inn fór frá Afganistan á tíunda ára-
tug 20. aldar eftir tíu ára hernám.
„Ég held það verði aðeins tíma-
spursmál hvenær stjórnin hrynji,“
sagði Candace Rondeaux, sérfræð-
ingur International Crisis Group.
„Glundroði og ofbeldi munu ráða
ríkjum í Kabúl 2014 og 2015.“
Gilles Dorronsoro, sérfræðingur
hjá stofnuninni Carnegie Endow-
ment for International Peace, telur
einnig að átök brjótist út á ný og
spáir því að auki að talibanar muni
komast til valda. „Eftir 2014 mun
stuðningur Bandaríkjamanna verða
takmarkaður og eftir nýtt tímabil í
borgarastríðinu munu talibanar lík-
ast til sigra,“ skrifaði hann nýlega.
Rondeaux segir hugmyndir
bandamanna um að afganskar sveit-
ir muni geta varið landið eftir 2014
„fullkomlega óraunhæfar“.
Varað við
glundroða
og stríði
AFP
Á förum Bandarískir hermenn í að-
gerð í Afganistan.
Uggur vegna stöð-
unnar í Afganistan
Mitt Romney, forsetaframbjóðandi repúblikana, þykir
hafa glætt framboð sitt nýju lífi þegar hann mætti Bar-
ack Obama Bandaríkjaforseta í sjónvarpskappræðum í
Denver í Colorado í fyrrinótt.
Fréttaskýrendur voru sammála um að Romney hefði
verið hvassari og skýrari í málflutningi sínum, en Obama
jafnvel virst óundirbúinn og annars hugar.
Þetta voru fyrstu kappræður þeirra og snerust þær
um efnahagsmál. Þeir munu mætast tvisvar í viðbót.
Obama notaði púður sitt í að gagnrýna tillögur andstæð-
ings síns um skattalækkanir og Romney gagnrýndi for-
setann fyrir frammistöðu hans í ríkisfjármálum á kjör-
tímabilinu. Átti Romney iðulega síðasta orðið.
Sjónvarpsstöðin CBS gerði könnun meðal sjónvarps-
áhorfenda, sem ekki höfðu gert upp hug sinn, strax að
loknum kappræðunum. 46% töldu að Romney hefði haft
betur, 22% sögðu Obama hafa haft vinninginn og 32%
voru þeirrar hyggju að ekki hefði mátt á milli sjá hvor
hefði staðið sig betur.
Romney sagði að yrði Obama kjörinn á ný myndi
áfram þrengja að heimilum. „Ef forsetinn verður endur-
kjörinn mun halda áfram að þrengja að millistéttinni,“
sagði hann. „Atvinnuleysi verður viðvarandi. Samfellt í
43 mánuði hefur atvinnuleysi verið yfir átta prósentum.“
Obama sagði að Romney hefði engar áætlanir fyrir ut-
an þá stefnu repúblikana, sem komið hefðu landinu í
vandræði. Hann kvaðst hafa staðið við loforð sín og bað
bandaríska kjósendur um að veita sér brautargengi.
„Fyrir fjórum árum sagði ég að ég væri ekki fullkominn
maður og yrði ekki fullkominn forseti,“ sagði hann. „Og
það er sennilega loforð, sem Romney ríkisstjóri telur að
ég hafi staðið við.“
Obama hefur staðið ívið betur að vígi en Romney sam-
kvæmt skoðanakönnunum, sem gerðar voru á landsvísu
rétt fyrir kappræðurnar, en kannanir hafa bent til þess
að hann hefði drjúgt forskot í lykilríkjum á borð við Ohio
og Flórída. Romney hefur gert ýmis glappaskot upp á
síðkastið og birting myndskeiðs þar sem hann sagði að
47% bandarísku þjóðarinnar greiddu ekki skatta og litu
á sig sem „fórnarlömb“ hefur skaðað hann. Það var því
mikilvægt fyrir hann að ná sér á strik í kappræðunum. Á
næstu dögum munu kannanir leiða í ljós hvort frammi-
staða hans hefur skilað sér í auknu fylgi. kbl@mbl.is
Romney þótti skáka
Obama í kappræðum
Áskorandinn var hvass og ákveðinn en forsetinn virtist
óundirbúinn og annars hugar Romney þurfti byr í seglin
AFP
Kappræður Frambjóðendurnir heilsuðust innilega fyrir kappræðurnar. Romney óskaði Obama til hamingju með 20
ára brúðkaupsafmæli hans: „Þetta hlýtur að vera rómantískasti staðurinn sem þú getur ímyndað þér, hér með mér.“
Eigendur félags-
vefjarins Face-
book tilkynntu í
gær að notendur
hans væru orðnir
einn milljarður.
Mark Zucker-
berg, einn stofn-
enda og fram-
kvæmdastjóri
Facebook, sagði í
tilkynningu að þessi tala fyllti sig
auðmýkt.
„Í morgun var svo komið að einn
milljarður manna er virkur notandi
á Facebook í hverjum mánuði,“
sagði í tilkynningu Zuckerbergs.
„Að hjálpa milljarði manna að tengj-
ast er stórkostlegt, fyllir mig auð-
mýkt og er það sem ég er lang-
samlega stoltastur af í lífi mínu.“
Skiptar skoðanir eru meðal sér-
fræðinga um það hvort Facebook
geti notað þennan gríðarlega not-
endafjölda til að skapa tekjur og
virða um leið markmið Zuckerbergs
um að félagsvefurinn verði tæki til
að tengja jarðarbúa. „Milljarður
notenda og hvað svo?“ spurði Trip
Chowdry, sérfræðingur Global
Equities Research, við AFP.
„Hvernig aflarðu fjár í gegnum þá?
Vandamál Facebook eru óbreytt.“
Milljarður
notar
Facebook
Mark Zuckerberg
Auka þarf nú þegar öryggi í kjarn-
orkuverum „nánast alls staðar“ í
Evrópu og gætu framkvæmdirnar
kostað milljarða evra. Þetta er nið-
urstaða álagsprófana, sem birtar
voru í gær.
Prófanirnar voru fyrirskipaðar í
kjölfar slyssins í kjarnorkuverinu í
Fukushima í Japan í mars í fyrra.
Öryggi veranna mun vera við-
unandi og hvergi í Evrópusam-
bandinu er ástæða til að loka kjarn-
orkuveri. Nánast alls staðar mun þó
vera hægt að bæta öryggisviðbúnað
verulega og segir að engin ástæða
sé til að vera værukær í þessum
efnum.
AFP
Öryggi áfátt Sprungur fundust við
kjarnakljúf í Tihange í Belgíu.
Öryggi
ábótavant
Álitsgjafar í herbúðum repúblikana voru á því að Mitt
Romney hefði unnið afgerandi sigur í
kappræðunum og töluðu jafnvel um að
hann hefði veitt Obama rothögg. Álits-
gjafar úr röðum demókrata sögðu
einnig margir að Obama hefði beðið
lægri hlut og sagði einn að
hann hefði litið „út fyrir
að vilja ekki vera
þarna“.
„Leit út fyrir að vilja
ekki vera þarna“
ÁLITSGJAFAR NÁNAST EINRÓMA
Mitt Romney í ham.