Morgunblaðið - 05.10.2012, Side 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
✝ Óskar BjörnGuðmundsson
fæddist í Kross-
húsum í Flatey á
Skjálfanda 23.
ágúst 1925. Hann
andaðist á Heil-
brigðisstofnun
Þingeyinga á
Húsavík 23. sept-
ember 2012.
Foreldrar hans
voru hjónin Guð-
mundur Karl Jónasson frá
Kaðalstöðum í Hvalvatnsfirði,
f. 27. janúar 1880, d. 11. júlí
1956, og Maríu Jónasdóttur frá
Vík í Flateyjardal, f. 21. nóv-
ember 1884, d. 30. desember
1965. Óskar var næstyngstur
átta systkina. En þau voru
Anna Soffía, f. 1910, d. 1982;
Karl Emil, f. 1912, d. 1982;
María Helga, f. 1914, d. 2011;
Arnþór, f. 1916, d. 2007; Marta
Rósa, f. 1919, d. 1984; Sigfús
Jónas, f. 1921, d. 1993; Óskar
Björn, f. 1925, d. 2012; Jóhann-
es, f. 1928.
Óskar kvæntist hinn 11.
október 1953 Öldu Guðmunds-
brúnu H. Gunnarsdóttur og eitt
fósturbarn. Hafliði, f. 1960.
Sambýliskona er Gabríela
Lecka. Hann á eitt barn með
Sólveigu Benjamínsdóttur og
eitt barnabarn. Friðbjörn, f.
1961. Maki er Ingibjörg María
Karlsdóttir. Þau eiga saman
þrjú börn. Friðbjörn ól einnig
upp dóttur Ingibjargar sem á
tvö börn. Jónas, f. 1961. Maki er
Lovísa Ósk Skarphéðinsdóttir.
Þau eiga saman þrjú börn og
eitt barnabarn. Kristbjörn, f.
1963. Maki er Anna María
Bjarnadóttir. Bjarni Sigurður,
f. 1964. Maki er Jóhanna Rann-
veig Pétursdóttir. Þau eiga
saman tvö börn. Kjörforeldrar
Bjarna eru Aðalgeir Egilsson
og Elísabet A Bjarnadóttir.
Hann eignaðist 25 barnabörn og
24 langafabörn en hafði misst
eitt langafabarn.
Þau hjónin, Alda og Óskar,
hafa alla tíð búið á Húsavík.
Hann var tryggur starfskraftur
og vann við sjómennsku í Vest-
mannaeyjum og hjá Kaupfélagi
Þingeyinga og var mjög treyst
á hann þar. Hann endaði starfs-
ferilinn hjá Fiskiðjusamlagi
Húsavíkur. Hans helstu áhuga-
mál voru ættfræði, kórsöngur
og pólitík.
Útför Óskars fór fram frá
Húsavíkurkirkju 3. október
2012 klukkan 14.
dóttur frá Ytri-
Skál í Ljósavatns-
hreppi, f. 27. mars
1928. Hún er dótt-
ir hjónanna Guð-
mundar Frið-
bjarnarsonar frá
Naustavík í Ljósa-
vatnshreppi og Jó-
hönnu Láru Sig-
mundsdóttur frá
Árbót í Að-
aldælahreppi.
Óskar og Alda eignuðust tíu
börn. En þau eru: Svandís, f.
1951) Maki er Helgi Jóhanns-
son. Þau eiga saman þrjú börn
og þrjú barnabörn. Jóhanna, f.
1953. Maki er Óskar Tómas
Björnsson. Þau eiga þrjú börn
og sex barnabörn (eitt látið).
María, f. 1954. Maki er Einar
Þór Kolbeinsson. Þau eiga
saman þrjú börn og fimm
barnabörn. Guðmundur Karl,
f. 1955. Maki er Hanna Jóna
Geirdal. Þau eiga saman þrjú
börn og fjögur barnabörn. Að-
alsteinn, f. 1957. Sambýliskona
er Halldóra Kristjánsdóttir.
Aðalsteinn á tvö börn með Kol-
Flóknar myndir hugann hræra
horft til liðins dags.
Ennþá kyndir eyjan kæra
elda sólarlags.
Ætíð vakir unaðshlý
endurminning falin.
Aldrei gömul, alltaf ný
eins og morgunsvalinn.
(Helga Guðmundsdóttir.)
Í dag kveðjum við þig, elsku
pabbi. Margs er að minnast en
að vita hvar eigi að byrja er
frekar erfitt.
Fyrstu minningar eru þegar
ég elti þig lon og don í vinnu,
veit ekki hversu oft mér var
sagt að fara heim en hlýddi
ekki alltaf því ég fékk að fara á
háhest heim eftir að vinnudegi
lauk í Skemmunni. Enn fremur
man ég lítið eftir þér heima
nema vinnandi, að fella net, að
hjálpa mömmu að þvo þvotta og
skúra og fleira.
Eftir að ég varð unglingur
var ég örugglega ekki mjög
meðfærileg. En þegar ég eign-
aðist mitt fyrsta barn, fæddist
hann inn á heimili ykkar
mömmu og var hann þar með
eitt af ykkar börnum. Enda var
oft stolist í heimsókn og í
„ömmumat“ eftir að ég og Ein-
ar fórum að búa í eigin hús-
næði. Það var eftir því tekið
hve glaður þú varst þegar við
fórum á þorrablótin í Keldu-
hverfi. Þú smitaðir þessari
hreinu gleði allt um kring og
hafðir svo gaman af dansinum
að þú stoppaðir ekki meðan
spiluð var músík. Og alltaf er
ofarlega í huga hvað þú varst
upp með þér þegar við strídd-
um þér með orðunum „það
þurfti tvo til“. Og þá var mein-
ingin sú að þegar þú hættir í
Skemmunni þá keypti Kaup-
félagið tvo lyftara.
Þér var aldrei þakkað nóg
fyrir alla þá hjálp sem þið
mamma veittuð okkur Einari
með okkar börn og alla aðra
ómetanlega hjálp og aðstoð.
Elsku pabbi, megir þú hvíla í
Guðs blessaða friði. Þín er sárt
saknað.
María.
Á eilífðarlandinu allir fá skjól,
Ekkert sem þreytir né mæðir.
Þú ert kominn í sumar og sól
og svífur um englanna hæðir.
(Höf. Helga Guðmundsdóttir.)
Í dag kveðjum við þig, pabbi
og tengdapabbi.
Þú varst alltaf til staðar þeg-
ar á þurfti að halda. Við gátum
leitað til þín með allt. Við miss-
um ekki bara pabba og tengda-
pabba heldur líka mjög góðan
félaga.
Þín verður sárt saknað.
Kristbjörn og
Anna María.
Elsku afi minn, í dag kveð ég
þig með sorg og gleði í hjarta.
Það fylgir því mikil sorg að
kveðja þá sem maður elskar
þótt þeir séu búnir að lifa lengi
og séu tilbúnir til þess að
kveðja þennan heim. Einnig
fylgir því mikil gleði að hafa
fengið að hafa fengið að njóta
visku og samveru þinnar í öll
þessi ár. Þegar dauðinn knýr á
dyr þá rifjast upp allar þær
skemmtilegu minningar sem ég
á um þig. Hversu óendanlega
lélegur þú varst í olsen olsen,
þú gast með engu móti unnið og
vildu foreldrar mínir meina að
þú leyfðir mér að vinna en ég
held að þú hafir einfaldlega hitt
ofjarl þinn. Barngóður varstu
mjög og fengum við barnabörn-
in þín vel að kynnast því, þú
virtist hafa endalausan tíma til
þess að sinna okkur í leik og
starfi. Mjög er ég þakklát fyrir
að mín börn hafi fengið að njóta
samvista við þig og fá að leika
sér við þig bæði að spila við þig
og einnig hina óteljandi felu-
leiki í kjallaranum í Mið-
hvammi. Alltaf var gott að
koma til ykkar og ræða bæj-
armálin og fá gott í gogginn,
elsku afi minn hvíldu í friði.
Ég stend í skógi,
þetta haust, með djúpum trega.
Til jarðar hljóðlega
í andvara kvöldsins
og litadýrð lífsins
horfi á laufin falla.
Hvert og eitt geymir minningu
um þig.
(Þórveig.)
Erla Torfadóttir.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir,)
Nú ertu fallinn frá, elsku afi.
Við vissum að það styttist í það,
þar sem þú varst búinn að vera
svo veikur en það er samt alveg
rosalega sárt. Þú kenndir okk-
ur mikið, að spila skemmtileg
spil, sögur, að vinna og skila
sínu eins vel og mögulegt væri.
Þú varst góður maður og við
áttum ætíð víst skjól hjá þér.
Ef eitthvað bjátaði á varstu
alltaf tilbúinn að koma til að-
stoðar, sama hvað var, frá því
við vorum lítil börn alveg fram
að þínum veikindum.
Það veitti okkur mikið öryggi
þegar við vorum á leikvellinum
bak við Bræðraborg að sjá þig í
glugganum í borðstofunni, að
fylgjast með okkur, passa að
hrekkjusvínin létu okkur í friði.
Þú varst alla tíð að passa okk-
ur, eiginlega alveg sama hvar
við vorum.
Okkur þótti alltaf jafn gaman
að mæta í Bræðraborg í laufa-
brauðsgerð. Dáðumst við alltaf
mikið að því hvað þú skarst
kökurnar fallega út og notaðir
þú alltaf bara vasahnífinn.
Við flúðum reglulega frá
barnapíum og að heiman til að
vera í Bræðraborg því þar leið
okkur vel, þar vorum við elskuð
óskilyrt og endalaust fannst
tími til að vera með okkur, leika
við okkur eða annað. Við fórum
líka oft í vinnuna til þín og
tókstu alltaf vel á móti okkur,
við fengum jafnvel að taka þátt
í því sem þú varst að gera.
Sögurnar þínar breyttust
líka eftir að við urðum eldri, þá
fórstu að segja okkur meira um
líf þitt og hvað þú værir búinn
að upplifa. Þá kynntumst við
enn einni hliðinni á þér.
Þú varst glaður maður, alltaf
stutt í brosið og stríðnin var
líka til staðar. Veislugleði þín
var líka mikil og varstu byrj-
aður að hlakka til þorrablóts
strax eftir jólin. Að hitta fólk,
dansa og að syngja var í einna
mestu uppáhaldi hjá þér. Þú
varst mikill söngmaður, söngst
í kórum og varst alltaf raulandi.
Er ég (Rannveig) þér ævarandi
þakklát fyrir að hafa sungið
með Jóhannesi bróður þínum í
brúðkaupinu mínu.
Við sóttum í að fá að kúra
hjá ykkur báðum, ömmu og afa.
Sem börn vorum við oft á milli
ykkar í rúminu, kannski ekki
öll í einu samt. Að fá að liggja í
hlýjunni, í faðmi ykkar og
spjalla fannst okkur yndislegt
og höfum við gert þetta æ síð-
an, nú síðast í sumar.
Að hafa náð að kynnast þér
sem börn og fullorðið fólk er al-
veg frábært. Við náðum að
eignast góðan vin og félaga í
þér eftir að við náðum fullorð-
insaldri, vin sem virkilega gam-
an var að umgangast.
Við erum mjög þakklát fyrir
að hafa haft þig, þennan ynd-
islega mann, svona lengi í lífi
okkar og við munum alla tíð
minnast þín fyrir þína gleði,
ástúð og vináttu.
Jóhann, Rannveig,
Aðalsteina og börn.
Óskar Björn
Guðmundsson
HINSTA KVEÐJA
Elsku afi, takk fyrir allt
og að vera alltaf yndislegur
við mig. Alltaf var gaman
að koma og heimsækja
ykkur ömmu í Miðhvamm
og annaðhvort spila við þig
eða fara í feluleik. Ég veit
að þótt mér finnist þetta
mjög erfitt núna þá líður
þér vel og þú ert ánægður
með að vera þar sem þú ert.
Takk fyrir allt.
Elín Friðbjarnardóttir.
✝ Fríða Helga-dóttir fæddist í
Reykjavík 17. ágúst
1931. Hún andaðist
á líknardeild Land-
spítalans 26. sept-
ember 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Friðsemd
Steinunn Guð-
mundsdóttir hús-
móðir, f. 31. ágúst
1904, d. 1971, og
Helgi Sigurðsson hús-
gagnabólstrari, f. 5. ágúst 1900,
d. 1974. Systur Fríðu eru: Vigdís,
f. 1924, d. 1989, Sigrún, f. 1925, d.
1992, Hlíf, f. 1933, Steinunn, f.
1940 og Katla, f. 1943.
Hinn 4. maí 1957 giftist Fríða,
Bjarna Jónssyni vélstjóra, f. 4.
maí 1922 á Kambi í Reykhóla-
sveit. Foreldrar hans voru Jón
Hjaltalín Brandsson bóndi og
Sesselja Stefánsdóttir húsmóðir.
Bjarni andaðist 30. júní síðastlið-
inn. Börn Fríðu og Bjarna eru: 1)
Elín kennari, f. 1958. Börn henn-
ar og Stefáns Ragnarssonar eru
Fríða kennari, f. 1984, og Ragnar
Bjarni bankastarfs-
maður, f. 1992. 2)
Helgi bifreiðastjóri,
f. 1960. 3) Fríða Dís
lífeindafræðingur, f.
1964. Maki Leifur
Gústafsson tækni-
fræðingur.
Fríða fæddist í
Reykjavík og ólst
upp í foreldrahúsum
á Leifsgötu 17. Hún
starfaði bæði hjá
Gutenberg og Sveinabókbandinu
eða allt þar til hún giftist. Hún
stundaði nám í Húsmæðraskól-
anum í Sorö í Danmörku og vann
við konfektgerð hjá Anthon
Berg. Fríða og Bjarni hófu bú-
skap á Hagamel 31 og bjuggu þar
til 1993 er þau fluttu í Árskóga 8.
Fríða var lengst af húsmóðir, en
vann frá unga aldri fyrir kvenna-
deild Slysavarnafélags Íslands í
Reykjavík. Hún starfaði einnig í
nokkur ár á Landakoti og síðar á
Bugl til starfsloka árið 1998.
Útför Fríðu fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag, 5. október 2012
og hefst athöfnin kl. 13.
Nú er hún elskulega amma mín
fallin frá.
Það er erfitt að kveðja hana
ömmu mína, erfitt að trúa því að
ég muni ekki heimsækja hana,
knúsa og fá ráð hjá henni. Ég var
mikið hjá afa og ömmu þegar ég
var yngri og bjó þar um tíma
ásamt mömmu minni. Ég átti
margar góðar stundir með ömmu,
sem lét allt eftir mér og fékk ég að
gera ýmislegt heima sem mamma
og systkini hennar hefðu aldrei
látið sig dreyma um. Amma var
mikil húsmóðir og eldaði góðan
mat. Þegar ég átti afmæli var
jafnan haldin mikil veisla og stór-
fjölskyldunni boðið, ekkert til
sparað. Það voru margar notaleg-
ar stundirnar sem við áttum sam-
an í sjónvarpsholinu, þar sem
amma nuddaði fæturna á litlu
stelpunni jafnframt því sem við
horfðum á breska sakamálaþætti
þar sem amma vissi auðvitað allt-
af hver sökudólgurinn var. Ég
fékk alltaf að leika mér í dótinu
hennar ömmu og sofa í rúminu
hans afa þegar hann var á sjó. Það
var svo gott að kúra hjá ömmu.
Þegar ég flutti aftur í bæinn til
að stunda nám voru heimsóknirn-
ar til ömmu og afa í Árskóga
margar. Við stofnuðum spila-
klúbbinn Fríðurnar, þar sem spil-
aður var Hornafjarðarmanni.
Regla spilaklúbbsins númer eitt
var að spilaklúbburinn gengi fyrir
eins og vinnu, sjónvarpsþætti eða
lærdómi, spilað yrði að minnsta
kosti einu sinni í viku og haldin
dagbók. Ég, amma og Fríða Dís
frænka gátum setið lengi fram
eftir kvöldi og rætt um daginn og
veginn. Skemmtilegast þótti mér
þegar amma talaði um gömlu dag-
ana, sögurnar af þeim systrum og
lífið á Leifsgötu.
Það er tómlegt núna án henn-
ar.
Ég vil enda þetta á kvöldbæn-
inni sem hún kenndi mér og bað
með mér á hverju kvöldi.
Vertu, Guð faðir, faðir minn,
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn,
svo allri synd ég hafni.
Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
Ég fel í sérhvert sinn
sál og líkama minn
í vald og vinskap þinn,
vernd og skjól þar ég finn.
(Hallgrímur Pétursson.)
Elsku amma, þín verður alltaf
saknað.
Þín
Fríða.
Fríða Helgadóttir
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
PÁLL INGIMUNDUR AÐALSTEINSSON,
Bjarkarholti 1,
Mosfellsbæ,
lést miðvikudaginn 3. október.
Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju
föstudaginn 12. október kl. 13.00.
Guðrún Hafsteinsdóttir,
Hafsteinn Pálsson, Lára Torfadóttir,
Bjarnveig Pálsdóttir,
Björk Pálsdóttir, Páll Valdimarsson,
Hrönn Pálsdóttir, Magnús L. Alexíusson,
Aðalsteinn Pálsson, Helga Grímsdóttir,
Steinþór Pálsson, Áslaug Guðjónsdóttir,
Gunnar Páll Pálsson, Ásta Pálsdóttir,
Snæbjörn Pálsson, Þórdís Gísladóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi
THEODÓR STEINAR MARINÓSSON
forstjóri,
andaðist á heimili sínu 3. október.
Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju
miðvikudaginn 10. október kl. 13.00.
Blóm og kransar afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans
er bent á Karitas eða önnur líknarfélög.
Magdalena S. Elíasdóttir,
Guðrún H. Theodórsdóttir, Jón Hilmarsson,
Elías Theodórsson, Ester Ólafsdóttir,
Steinunn H. Theodórsdóttir, Örn Jónsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ÁSLAUG ÁSMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis
í Álfalandi 4,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Bústaðakirkju mánu-
daginn 8. október kl. 15.00.
Ásmundur Stefánsson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Þór Stefánsson, Hulda Ólafsdóttir,
Ása Stefánsdóttir, Jens Kvist Christensen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför okkar
ástkæru
AGNESAR EIRÍKSDÓTTUR,
Garðabraut 8,
Akranesi.
Jón Jóns Eiríksson, Rut Hallgrímsdóttir,
Sigrún Eiríksdóttir,
Kolbrún Eiríksdóttir, Sigurjón Guðmundsson
og fjölskyldur þeirra.