Morgunblaðið - 05.10.2012, Side 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
✝ GuðmundurRagnar
Ágústsson fæddist
4. júlí 1916. Hann
lést á Heilbrigð-
isstofnun Suð-
urnesja 25. sept-
ember 2012.
Ragnar var
fæddur í Halakoti
á Vatnleysuströnd,
ólst þar upp og bjó
þar alla sína ævi.
Faðir Ragnars var Ágúst Guð-
mundsson, f. 26. janúar 1869,
d. 4.12. 1941, útvegsbóndi frá
Neðri-Brunnastöðum á Vatns-
leysuströnd. Foreldrar Ágúst-
ar voru þau hjónin Guð-
mundur Ívarsson, útvegsbóndi
og Katrín Andrésdóttir frá
Syðra-Langholti, Hruna-
mannahreppi. Móðir Ragnars
var Þuríður Kristín Halldórs-
dóttir frá Akranesi, f. 22.5.
1885, d. 11.5. 1971. Foreldrar
hennar voru hjónin Halldór
Jónsson, skútusjómaður frá
Má, f. 20.8. 1977 og Hlyn Örn,
f. 31.5. 1984, í sambúð með
Töru Pétursdóttur, f. 21.6.
1985 og eiga þau tvö börn. Na-
talíu Marín, f. 24.10. 2006 og
Pétur Ragnar, f. 13.3. 2012.
Ragnar kvæntist ekki og
átti ekki börn. Árin 1971-1988
dvaldist hjá honum Ragnheið-
ur Aðalsteinsdóttir ættuð frá
Strandasýslu, f. 19.8. 1916, d.
12.12. 1988.
Ungur fór hann að hjálpa til
við þau störf sem féllu til á
heimilinu. Þegar hann var 14
ára fór hann að vinna í vega-
vinnu hjá Vegagerð ríkisins,
en réð sig síðan í brúarvinnu
hjá Sigurði Björnssyni brúar-
smið. Árið 1941 stofna þeir
bræður, Ragnar, Guðmundur
Í. og Magnús, til útgerðar, sem
síðar varð Útgerðarfélagið
Valdimar hf. Vogum. Guð-
mundur Í. var skipstjóri,
Ragnar vélstjóri en Magnús sá
um rekstur félagsins. Bræð-
urnir hættu útgerð árið 2000.
Ragnar verður jarðsunginn
frá Kálfatjarnarkirkju, Vatns-
leysuströnd, í dag, 5. október
2012, og hefst athöfnin kl. 15.
Skálpastöðum,
Borgarfirði og
Kristín Magn-
úsdóttir frá
Hrafnabjörgum,
Hvalfjarðarströnd.
Systkini Ragnars
voru Guðmundur
Valdimar, f. 14.2.
1909, d. 18.12.
1987, Halldór, f.
7.3. 1910, d. 28.8.
1992. Jón Krist-
inn, f. 31.1. 1912, d. 12.5. 2005,
Guðmundur Ívarsson. f. 25.8.
1918, d. 21.11. 2009, Magnús,
f. 25.5. 1922, Katrín, f. 5.7.
1923, d. 1924, misserisgömul,
Katrín Sigrún, f. 6.6. 1926, d.
22.2. 1990. Systkini Ragnars
eru öll látin nema Magnús. Þá
ólst upp í Halakoti bróð-
urdóttir þeirra systkina, dóttir
Guðmundar Valdimars, Guð-
finna Elínborg Guðmunds-
dóttir, f. 11.11. 1955, gift
Kjartani Egilssyni, f. 26.2.
1955, eiga þau synina Ragnar
Frændi var hávaxinn maður,
þrekinn og samsvaraði sér vel.
Sviphreinn og hafði mjög góða
nærveru. Ákaflega traustur og
góðviljaður. Stálminnugur, hag-
leiksmaður og listrænn. Allt frá
fæðingu hef ég átt þennan
trausta frænda að sem hefur allt-
af viljað gera allt fyrir mig. Nú á
þessum tímamótum er svo margs
að minnast frá mínu góða æsku-
heimili. Með mínum fyrstu minn-
ingum um hann, sem lítil stelpa,
er þegar ég sat í fanginu á hon-
um og hann sagði manni sögur.
Hann hafði góða frásagnargáfu
og gæddi sögurnar lífi. Eins þeg-
ar hann sigldi með Gullfossi til
Danmerkur 1963 til að hafa um-
sjón með smíði Ágústs Guð-
mundssonar II. Það var þá, þeg-
ar Maggi frændi og ég vorum að
fylgja honum á Reykjavíkurhöfn
að ég hélt að hann kæmi aldrei
aftur. Maggi frændi gat huggað
mig með því að segja að þetta
yrði allt í lagi, hann kæmi aftur,
sem og hann gerði rétt fyrir jól-
in. Siglandi heim yfir hafið á nýju
skipi með fullt af útlensku sæl-
gæti, nýtt hjól, dúkku, kjóla og
fleira sem gladdi litla stelpu. Þá
varð nú hátíð í kotinu. Svo voru
það allir jólatúrarnir. Hann að
skreyta fyrir jólin, en þessa hluti
sá hann alltaf um. Hann var mik-
ill jólakarl. Þetta eru allt góðar
minningar frá æsku minni með
honum sem ljúft er að minnast.
Frændi var mikið náttúrubarn
og sérstaklega áhugasamur um
veðrið, alltaf hlustaði hann á allar
veðurfregnir í útvarpinu og leit
oft til veðurs. Hann gat alltaf
sagt manni hvernig veður væri í
vændum. Hann hefur alltaf verið
þessi klettur í lífi mínu og fjöl-
skyldu minnar sem var sífellt að
fylgjast með því að allir væru við
góða heilsu og hefðu það gott.
Það verður skrítið að geta ekki
lengur hringt í hann á kvöldin, en
við töluðumst við á hverju kvöldi
eða fórum suður eftir á sunnu-
dögum og borðuðum með honum
sunnudagssteikina. Jólin verða
heldur tómleg án hans en við höf-
um alltaf haldið jólin heima hjá
honum sem voru svo hátíðleg og
yndisleg.
Það er skarð fyrir skildi sem
ekki er hægt að fylla upp í því
það kemur enginn í staðinn fyrir
frænda. Við fjölskyldan munum
halda minningu hans á lofti.
Hann og nafni hans Ragnar Már
voru alla tíð mjög nánir. Hann
var drengjunum mínum sem
hinn besti afi. Þeir eiga svo
margar góðar minningar um
hann. Sama dag og hann slas-
aðist annan í hvítasunnu var ann-
ar nafni hans skírður í Dómkirkj-
unni, hann litli Pétur Ragnar.
Var hann búinn að fá að vita
nafnið nokkru áður og var mjög
stoltur af því.
Frændi var alla tíð mjög
heilsuhraustur. Var mjög sjálf-
stæður, vildi að allir hlutir gerð-
ust helst í gær, viljasterkur og
stoltur maður sem bjó sjálfur í
sínu húsi allt þangað til hann
slasaði sig. Það var í fyrsta skipti
á hans löngu ævi sem hann lagð-
ist inn á spítala, 96 ára gamall.
Hann var elsti íbúi hreppsins.
Hann sýndi mikið æðruleysi og
vissi að hverju stefndi. Var sátt-
ur við allt og alla, enda mjög trú-
aður. Ég verð alltaf þakklát fyrir
það að hafa getað verið hjá hon-
um við dánarbeðinn hans. Hafðu
þökk fyrir allt og allt. Kletturinn
minn. Guð geymi þig.
Stelpan þín,
Guðfinna Guðmundsdóttir.
Elsku besti frændi, nú ertu
farinn en minningin lifir. Þetta
ljóð kom í huga mér við andlát
þitt.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Hafðu þökk fyrir allar þær
góðu stundir sem við áttum sam-
an. Það er ómetanlegt að hafa
þekkt þig öll þessi ár.
Hvíl í friði.
Þinn nafni,
Ragnar Már Kjartansson.
Elsku besti frændi. Þú varst
mér svo góður og ég sakna þín
sárt. Það var alltaf svo gott að
koma til þín í Halakotið, þú hafð-
ir svo góða og hlýja nærveru.
Sem strákur eyddi ég miklum
tíma hjá þér og ég er svo þakk-
látur fyrir þessar stundir. Í mín-
um huga gastu gert allt. Soðið
besta fiskinn og kartöflurnar,
bakað flatkökur, gert kjötsúpu,
kæfu og meira. Eftir einu atviki
man ég alveg sérstaklega. Það
var þegar þú bættir rifnu bux-
urnar hans Ragga bróður. Í aug-
um lítils stráks, sem hélt að
ömmur saumuðu bara, var þetta
alveg hreint ótrúlegt. „Það er
staðfest, Raggi frændi getur
allt,“ hugsaði ég, 7 ára. Já, Raggi
frændi, þú varst svo sannarlega
hetjan mín.
Ég man góðu stundirnar þeg-
ar við gáfum rollunum að éta og
drekka í fjárhúsinu, þegar við
fórum í stuttan túr á trillunni
þinni út á flóann, fjörið í kringum
heyskapinn og réttirnar. Öllu
þessu man ég vel eftir. Það eru
svo margar fallegar og skemmti-
legar minningar sem ég á um
þig. Ein af mínum uppáhalds-
minningum er þegar Raggi bróð-
ir og vinur hans komu til að sýna
okkur dauðan fugl sem þeir
fundu. Það var nú meira hvað þú
passaðir upp á mann, þú varst
snöggur til og sagðir fuglinn bil-
aðan og fórst með hann afsíðis.
Já, það var svona sem þú pass-
aðir upp á mann.
Þakka þér fyrir allar góðu
stundirnar. Minning þín mun
alltaf lifa í hjarta mínu.
Deyr fé,
deyja frændur,
deyr sjálfur ið sama;
en orðstír
deyr aldregi,
hveim er sér góðan getur.
(Úr Hávamálum.)
Þinn frændi,
Hlynur.
Elsku Raggi frændi.
Ég gleymi því ekki þegar ég
kynntist Hlyni þá fékk ég strax
að heyra um frænda í Halakoti.
Þennan stórmerkilega mann sem
átti svo stóran hlut í lífi og hjarta
Hlyns. Eins og hann hélt mikið
upp á þig. Allar sögurnar sem
hann sagði mér um æskuna og
ævintýrin hjá frænda og Snotru í
Halakoti. Þessi stórmerkilegi
maður sem gat allt og lét ekkert
stoppa sig.
Svo loksins einn daginn fyrir
10 árum fékk ég að koma með
upp í Halakot að hitta þig og sjá
þennan ævintýralega stað. Þetta
reyndist allt rétt hjá Hlyni. Þú
tókst svo vel á móti mér með
hlýju og góðvild og mér fannst ég
svo velkomin í fjölskylduna. Ekki
nóg með það, þú fórst að segja
mér sögur um fjölskylduna mína.
Sagðir mér frá ættingjum mínum
af Vatnsleysu sem þú hafðir
þekkt og mundir vel eftir. Fyndið
hvernig fjölskyldurnar okkar
fóru að fléttast saman.
Einn af þínum stóru kostum
var að muna eftir fólki og atburð-
um og segja svo skemmtilega frá.
Ég gat alveg séð fyrir mér lífið á
ströndinni og fólkið í gamla daga.
Svo liðu árin og Natalía fædd-
ist og á hún auðvitað sínar góðu
stundir hjá Ragga frænda í Hala-
koti og mun hún meta það til
mikils. Eins og hún segir núna:
„Raggi frændi mun alltaf vera
hjá mér í hjartanu mínu.“ Og svo
kom nafni þinn hann Pétur
Ragnar og fékk hann sinn tíma
með þér í Halakoti, þó að lítill
hafi verið, en við munum svo
sannarlega segja honum sögur af
þér og hve stoltur þú ert af hon-
um og þeim báðum.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
kynnst þér, elsku „frændi“, mér
finnst ég hafa þekkt þig alla ævi.
Takk fyrir allt sem þú hefur gert
fyrir okkur og mun ég aldrei
gleyma þér. Þú varst einn af
þeim bestu. Ég vona að þér líði
vel núna og ert örugglega í ein-
hverju ævintýri einhvers staðar
á nýjum stað. Við munum sjást
síðar.
Þín vinkona,
Tara.
Leiðir skilur eftir níutíu ára
samferð. Við vorum átta systk-
inin, sex bræður og tvær systur,
önnur þeirra lést í frumbernsku.
Við bræður lékum okkur mik-
ið saman þrír, ég, Ragnar og
Guðmundur Í. Rákum stórbú
með horn, kjálka og leggi.
Byggðum hús fyrir sunnan stóra
hólinn. Það var mikið athafna-
svæði. Jónas Gíslason frændi
okkar, síðar brúarsmiður, var
alltaf með okkur í öllu. Þá var
rekin stórútgerð við fjöruna,
smíðaðir bátar úr 20 lítra bens-
ínbrúsum. Tínd loðna og söltuð í
stafla, og allt gert sem líktist
raunveruleikanaum. Við vorum
ekki alltaf skraufþurrir strák-
arnir sem komum heim á kvöld-
in. Það var oft tekist hraustlega
á, mikið tuskast, „farið nú út á
tún að fljúgast á, þar er nóg
plássið“, var mamma vön að
segja, þegar allt ætlaði um koll
að keyra.
En alvaran blasti við, hjálpa til
við búskapinn, strax og kraftar
leyfðu, bera vatn í fjós og bæ, og
allt annað sem kraftar leyfðu.
Ragnar var fermdur 14 ára.
Þá var leikjum lokið, hann fór í
vegavinnu á Vogastapa, þar var
verið að breyta veginum, hann
átti aðvera mættur til vinnu kl. 7
að morgni og vinnudegi lauk kl.
19 að kvöldi. Hann fór gangandi
með matarbitann í vasanum. Í
framhaldi af þessari vegavinnu
réðst hann í brúarvinnu til Sig-
urðar Björnssonar brúarsmiðs
og var þar sem járnalagningar-
maður mörg sumur. Verunnar í
tjöldunum, félagsskapar við glatt
fólk, þess minntist hann oft með
ánægju. Hann kom alltaf heim á
haustin og réri á bát föður okkar
allar vetrarvertíðir.
1941 urðu þáttaskil í lífi okkar,
þegar við þrír bræðurnir, ég,
Ragnar og Guðmundur Í., keypt-
um 8 tonna trillubát frá Grinda-
vík. Þar hófst útgerð og samstarf
okkar bræðra, sem óx og dafnaði,
varð að stóru útgerðarfyrirtæki
sem við nefndum síðar Valdimar
hf. Nú voru bátarnir úr bensín-
brúsunum horfnir en í þeirra
stað komnir alvöru bátar, ýmist
úr tré eða stáli.
Við eignuðumst marga báta,
stóra og minni, keyptum notaða
og létum byggja fyrir okkur tvo
báta í Danmörku. Ragnar sá um
lokafrágang á smíði þeirra og
niðursetningu véla og tækja.
Hann sigldi síðan á þessum bát-
um heim sem fyrsti vélstjóri.
Þið Gummi sáuð um að afla
með ykkar dugnaðarkörlum sem
voru sumir hverjir með ykkur
allt að 30 vertíðir. Það kom oft
mikill afli á land á vetrarvertíð-
unum, sem landað var í fiskhús
okkar, þar unninn í salt eða
skreið. Það var mikið unnið,
stundum allt að 18 tímum á sólar-
hring, lítið sofið, það mátti gera
síðar. Ég vil nota þetta tækifæri
og þakka öllu því fólki, bæði á sjó
og landi, fyrir samveruna og allt
það sem það lagði á sig.
Ragnar bjó öll sín ár á æsku-
heimili okkar í Halakoti.
Ragnari var margt til lista
lagt, hann gat málað myndir þótt
enga hefði hann tilsögnina feng-
ið. Hann átti gott með að setja
saman vísur.
Ragnar var vel á sig kominn,
með hærri mönnum, sterkur vel.
Nú hefur þú sett í gang, leyst
landfestar, sett á fulla ferð, strik-
ið sett til nýrri lífsins stranda,
þar sem vinir taka á móti land-
festartóginu og bjóða þig vel-
kominn.
Takk fyrir samfylgdina. Far
vel, þinn bróðir,
Magnús.
Guðmundur Ragnar, föður-
bróðir minn, er nú látinn. Hann
gekk ávallt undir nafninu Ragn-
ar en var kallaður Raggi af fjöl-
skyldunni. Ragnar var fæddur í
Halakoti og bjó þar alla tíð. Þeir
sem þar voru bornir og barn-
fæddir festu þar djúpar rætur.
Mínar fyrstu minningar eru
frá Halakoti og eru þær allar
góðar. Er þá vertíðin minnis-
stæðust. Þá var annasamur tími,
sjósókn mikil og allur afli unninn
heima af sjómönnunum sjálfum.
Minningarnar verða svo skýrar
nú er Ragnar er kvaddur, því í
þessu lífi var hann stór þátttak-
andi. Þrátt fyrir annríki var oft
kátt í kotinu. Síðar var útgerð frá
Halakoti hætt. Bræðurnir Ragn-
ar, Guðmundur Í. og Magnús
hófu útgerð frá Vogum og var
hún alla tíð farsæl. Ragnar var
vélstjóri á skipum þeirra áratug-
um saman.
Raggi var rólegur og yfirveg-
aður maður, alla tíð reglusamur
og nægjusamur. Það eina sem
hann lét eftir sér var að eiga góð-
an bíl og taka í nefið. Undir
þessu rólega yfirborði bjuggu þó
miklar tilfinningar og næm sál.
Ragnar var barnlaus en mörg
börn áttu hjarta hans. Minnist ég
þess hve góður hann var við okk-
ur systkinin er við vorum lítil.
Oft sagði hann okkur sögur, nei,
hann lék þær.
Bróðurdóttir hans, Guðfinna,
var alin upp í Halakoti. Hún
eignaðist 2 drengi. Var sá eldri
skírður Ragnar Már. Veitti það
honum gleði.
Er ég minnist Ragnars koma
jólin sterkt í hugann. Á aðfanga-
dag biðum við systkinin spennt
eftir að Raggi eða Maggi kæmu.
Það brást ekki að annar hvor
kom með kassa fullan af gjöfum
frá ömmu og föðursystkinunum.
Þetta var ómissandi þáttur í jóla-
haldi bernskunnar. Einni gjöf
man ég sérstaklega eftir. Þá kom
Raggi með jólatré er hann hafði
sjálfur smíðað og málað. Á grein-
ar þess festum við lítil kerti sem
kveikt var á er jólin gengu í garð
– og hvílík dýrð.
Hann gaf Dodda bróður bæði
vörubíl og jeppa sem hann smíð-
aði. Jeppinn var lítill Willisjeppi
eins og hann átti sjálfur, málaður
í sömu litum og bíllinn hans.
Bróðir minn lék sér mikið að
þessum bílum. Hann gerði líka
líkön af skipum sem þeir áttu í
útgerðinni. Það síðasta var af
Ágústi Guðmundssyni GK 95.
Það er til sýnis á Byggðasafni
Reykjanesbæjar. Ragnar bjó
einn í Halakoti frá árinu 1988.
Hélt hann reisn sinni og hugsaði
um sig sjálfur þar til hann var
u.þ.b. 96 ára. Hefur Guðfinna og
hennar fjölskylda reynst honum
afar vel. Þá var honum mikill
styrkur að Magnúsi bróður sín-
um sem kom daglega til hans.
Við Steindór komum stundum
til Ragga. Þeir náðu vel saman.
Raggi var minnugur, hafði ártöl
og allt á hreinu. Hann mundi vel
gamla tíma og líf sem er ekki
lengur til, honum var lagið að
segja frá. Raggi fann til kaffi og
jólaköku, Maggi kíkti inn.
En allir verða að lokum að lúta
lögmálum lífsins. Genginn er
góður drengur.
Fyrir allar góðar stundir lang-
ar mig að þakka frænda mínum
nú er hann hefur ýtt úr vör í
hinsta sinn. Ég vona að hann sé
kominn að landi á annarri Strönd
og að þar sé tekið vel á móti hon-
um.
Blessuð sé minning Ragnars
Ágústssonar.
Ágústa Halldórsdóttir
(Dúdda).
Nú er komið að leiðarlokum og
vil ég þakka þér fyrir samfylgd-
ina síðustu 36 árin. Þú hefur allt-
af reynst fjölskyldu minni afar
vel. Varst alltaf til staðar, traust-
ur og góðviljaður maður. Ég mun
minnast þín alla tíð, hvíl í friði.
Láttu Guðs hönd þig leiða hér,
lífsreglu halt þá beztu,
blessuð hans orð, sem boðast þér,
í brjósti og hjarta festu.
(Hallgrímur Pétursson.)
Þinn vinur,
Kjartan Egilsson.
Ragnar Ágústsson HINSTA KVEÐJA
Elsku frændi.
Góði Jesú gef þú mér
góðan svefn og hvíld um nætur
Ég skal ávallt þakka þér
þegar ég síðan fer á fætur.
(Ragnar Ágústsson.)
Þínir krakkar,
Natalía Marín
og Pétur Ragnar.
Ég skrifa þessa litlu grein til
minningar um afa minn heitinn,
Hjalta Guðmundsson.
Hann afi Hjalti var svona afi
sem allir óska sér. Svona afi
sem maður les um í sögum.
Hann var smiður, hann las sög-
ur, hann lumaði alltaf á mola-
poka, hann hallaði sér eftir há-
degismatinn, hann var með
yfrvaraskegg og axlabönd og
hann sussaði á okkur yfir há-
degisfréttunum. Hann var barn-
góður og leyfði okkur alltaf að
sitja í fanginu á sér. Hann var
með öðrum orðum hinn full-
komni afi.
Kidda amma og Hjalti afi
eiga ógrynnin af barnabörnum
og barnabarnabörnum og öll
elska þau að vera hjá þeim.
Þrátt fyrir allan þennan fjölda
var afi alltaf svo flinkur í að láta
Hjalti J.
Guðmundsson
✝ Hjalti JósafatGuðmundsson
fæddist á Sauð-
árkróki 13. júní
1929. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Sauðárkróks 26.
ágúst sl.
Útför Hjalta hef-
ur farið fram í
kyrrþey.
öllum líða eins og
þeir væru einstakir.
Hann sýndi mikinn
áhuga á áhugamál-
um hvers og eins,
spurði okkur spjör-
unum úr og nennti
alltaf að spjalla.
Við Ásta Kristín
jafnaldra mín og
frænka vorum svo
heppnar að fá að
vera mikið hjá þeim
á sumrin þegar við vorum á
reiðnámskeiðum. Þetta voru frá-
bærir tímar þar sem afi og
amma kenndu okkur svo margt.
Afi var mikill barna- og dýra-
vinur. Raunar svo mikill að ég
velti því stundum fyrir mér
hvort hann kynni að dáleiða. Öll
dýr hændust að honum. Hann
klappaði þeim á kollinn og þau
lágu hjá honum sem dáleidd.
Það sama var með börn. Þau
leituðu til hans og brostu og
hann gat alltaf róað þau með
klappi á bossann.
Takk elsku afi fyrir allt sem
þú hefur kennt mér og okkur
öllum. Þín verður sárt saknað en
ég verð að eilífu þakklát fyrir að
hafa náð að sýna þér hana litlu
Svövu mína áður en þú kvaddir.
Megir þú hvíla í friði.
Ingibjörg Jónasdóttir.