Morgunblaðið - 05.10.2012, Síða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
✝ Þuríður Berna-detta Jóns-
dóttir fæddist í
Reykjavík 14. des-
ember 1931. Hún
lést á LSH við
Hringbraut 30.
september 2012.
Foreldrar henn-
ar voru Jón Hjört-
ur Jóhannsson, vél-
stjóri í Hafnarfirði,
f. 20.8. 1912, d.
17.10. 1994 og Guðrún Ein-
arsdóttir húsmóðir, f. 13.7.
1910, d. 23.6. 1977. Þau
skildu. Jón Hjörtur kvæntist
Ingibjörgu Jónsdóttur, f. í
Borgarfirði 20.5. 1906, d.
26.12. 1995, börn þeirra eru
Sævar Örn, f. 6.6. 1938, og
Margrét, f. 15.10. 1941.
Þuríður giftist 6. mars 1954
Gísla Hauksteini Guðjónssyni
flugumferðarstjóra, f. í
Reykjavík 12.7. 1931. For-
eldrar hans voru Guðjón Run-
ólfsson, bókbandsmeistari í
Landsbókasafni, f. í Reykjavík
9.7. 1907, d. 16.9. 1999, og
María Gísladóttir húsmóðir, f.
á Eskifirði 1.9. 1909, d. 31.8.
1972. Systkini Gísla eru Mar-
grét, f. 19.8. 1932 og Run-
3.10. 1988, sambýliskona Ása
Karen Jónsdóttir og b) Sunn-
eva, f. 28.10. 2002. 5) Kristín
sjúkraþjálfari, f. 30.1. 1967,
maki Valdimar Grímsson
framkvæmdastjóri, börn Est-
her Ösp mannfræðinemi, f.
28.8. 1986, Andrea, f. 10.6.
1994 og Grímur, f. 11.6.
1999.
Þuríður var kaþólsk og
gekk í Landakotsskóla en
lauk gagnfræðaprófi frá
gagnfræðaskólanum við
Lindargötu 1948. Hún starf-
aði á yngri árum hjá Silla &
Valda þar sem Gísli kynntist
henni á 18. ári. Eftir giftingu
var hún heimavinnandi hús-
móðir með börnin 5. Eftir að
börnin voru uppkomin vann
hún ýmis störf, þar á meðal
við Listdansskóla Íslands þar
sem hún sinnti nemendum af
sinni ömmugæsku. Þuríður
ólst upp ásamt uppeld-
isbróður sínum Einari Ein-
arssyni á Vesturvallagötu í
Reykjavík hjá móðurömmu
sinni, Guðrúnu Guðbjörgu
Björnsdóttur, en bjó svo eftir
giftingu lengstum í Aratúni 2
í Garðabæ. Á efri árum bjó
hún í þjónustuíbúð að Hrafn-
istu í Hafnarfirði en síðast á
hjúkrunarheimili Hrafnistu í
Boðaþingi.
Útför Þuríðar verður gerð
frá Landakotskirkju í dag, 5.
október 2012, og hefst at-
höfnin kl. 15.
ólfur, f. 13.11.
1935. Börn þeirra
Þuríðar og Gísla
eru 1) María, list-
dansari og kenn-
ari, f. 9.11. 1953,
sonur hennar er
Hjörtur Jóhann
Vignisson, f. 27.9.
1994. 2) Margrét,
fyrrum útibús-
stjóri hjá Lands-
banka Íslands, f.
10.8. 1956, maki Pétur Grét-
arsson tónlistarmaður, börn
a) Gísli CCIE í netkerfum, f.
13.4. 1974, búsettur í Bret-
landi, maki Anna María
Helgadóttir, hönnuður og
nemi, f. 8.6. 1971 og b) Berg-
lind BA frá Listaháskóla Ís-
lands, f. 2.4. 1989. 3) Guðjón
dúklagningameistari, f. 9.3.
1958, maki Jóhanna Þor-
björnsdóttir sem er látin,
dætur Alexandra, f. 27.7.
1987 nemi, Karlotta nemi, f.
12.1. 1990, Helena, f. 17.12.
1994, og Rakel, f. 2.2. 2002.
4) Gísli Jón kerfisfræðingur,
f. 28.12. 1964, maki Kristín
Helgadóttir framkvæmda-
stjóri, börn a) Helgi Már al-
þjóðaviðskiptafræðingur, f.
Elsku mamma mín.
Ég man ekki eftir mér öðru-
vísi en að þú hafir verið til staðar
fyrir mig. Fyrst þurfti að passa
mig betur en sum hinna systk-
inanna þar sem ég átti það til að
stinga af. Þá brást þú á það ráð
að setja mig í beisli og binda mig
við snúrustaur og gast þá sinnt
heimilistörfum í smátíma fyrir
þessum fjörkálfi. Þegar loks
mátti líta af mér var ég svo upp-
tekin í áhugamálum að þú fórst
að keyra mig út og suður, úr
skólanum í fimleika, úr fimleik-
um í kór. Aldrei taldir þú eftir
þér alla þessa þjónustu sem var
alls ekki sjálfsögð. Þegar þessi
upptekna stelpa þín var að fara
að keppa í útlöndum og kom
dauðþreytt af æfingu daginn fyr-
ir brottför varst þú búin að
strauja öll bestu fötin mín og
raða þeim fyrir framan ferða-
töskuna.
Saman völdum við svo út það
sem þurfti. Þessu var ég öfunduð
af. Svona dekraðir þú við litla
barnið þitt. Þetta er bara lítið
dæmi en segir svo margt um þig.
Þú hugsaðir alltaf fyrst um aðra
og svo um sjálfa þig. Við systk-
inin og pabbi vorum þér allt. Það
fann maður alla tíð. Ég gat talað
við þig um allt, trúði þér fyrir
öllu og gat treyst. Alltaf áttir þú
svör, róleg og yfirveguð, aldrei
neinn æsingur. Þú virtist skilja
allt og hafa prófað allt, leiðbeind-
ir á þinn hægláta hátt. Það var
sjaldan að þú hækkaðir róminn
en þá þögnuðu líka allir og
hlustuðu og vissu að nú hafði
maður farið yfir strikið.
Elsku mamma, þetta ljóð lýsir
þér.
Þú varst alltaf svo góð við mig,
ég fékk athygli þína óskipta,
þú lifðir fyrir mig,
hlustaðir á mig,
talaðir við mig,
leiðbeindir mér,
lékst við mig,
sýndir mér þolinmæði,
agaðir mig í kærleika,
sagðir mér sögur,
fræddir mig
og baðst með mér.
Þú varst alltaf svo nærgætin
og skilningsrík,
umhyggjusöm og hjartahlý.
Þú varst skjól mitt og varnarþing.
Við stóðum saman í blíðu og stríðu,
vorum sannir vinir.
Mér þótti svo undur vænt um þig,
elsku mamma mín.
(Sigurbjörn Þorkelsson.)
Elsku mamma mín, ég á eftir
að sakna þín meira en orð fá lýst.
Þín
Kristín.
Elsku amma Dúrý.
Ég minnist allra góðu stund-
anna hjá ömmu og afa í Aratúni.
Best var að vera ein hjá ykkur
því þá snérust þið í kringum mig
og ég mátti gera allt sem ég vildi.
Ef ykkur afa fannst eitthvað að
veðrinu var hann sendur að
sækja mig í skólann og beiðst þú
heima tilbúin með kakó og brauð.
Best var að sofa í ömmu rúmi og
oftar en ekki lagðist þú hjá mér
og sofnaðir líka.
Afi var þá einn eftir frammi og
svaf hann þá í gestaherberginu.
Það var svo notalegt að vera hjá
þér, elsku amma mín. Stundum
spiluðum við ólsen ólsen eða ég
skoðaði töluboxið fræga. Það var
eitthvað alveg sérstakt við að
fara í bað hjá ömmu. Þá sast þú
hjá mér og við spjölluðum um
allt mögulegt.
Elsku amma, þú vildir allt fyr-
ir alla gera og vil ég þakka þér
fyrir allar yndislegu stundirnar
sem við áttum saman.
Ég sendi þér kæra kveðju
nú komin er lífsins nótt,
þig umvefji blessun og bænir
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því,
þú laus ert úr veikinda viðjum
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Nú ertu komin til afa og veit
ég að hann tók vel á móti þér.
Megi guð vera með þér, elsku
amma mín. Ég kveð þig með
söknuði.
Þín ömmustelpa,
Andrea.
Elsku amma.
Eins leitt og mér þykir að þú
skulir vera farin frá okkur, þá er
það mér þó léttir, að þú skulir
loks fá frið frá veikindunum þín-
um og að þú skulir vera komin til
afa Gísla, eftir meira en sex ára
aðskilnað. Ég veit að þið eruð
komin á betri stað og vona að
ykkur líði betur þar.
Nú er víst komið að end-
astoppi hjá ömmu og afa í Arat-
úninu, en við taka allar góðu
minningarnar um þig, og dekrið
sem maður gat alltaf gengið að
vísu, hjá ömmu Dúrý. Þótt ég
muni nú ekki glöggt eftir öllum
góðu stundunum sem við áttum
saman þegar ég var yngri, þá
standa alltaf upp úr tímarnir sem
ég átti í eldhúsinu í Aratúninu
hjá þér að leika við lestarteinana
mína á Hótel ömmu og afa. Mér
er einnig sagt að þú hafir alið
upp í mér „potta- og pönnut-
rommarann“, og leyft mér að
gera ýmislegt sem ekki mátti
annars staðar, við misjafna
hrifningu foreldra minna.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal ég gleyma þér.
(Úr vísum Vatnsenda-Rósu.)
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar, ég mun sakna þín, amma
mín.
Helgi Már Gíslason.
Amma Dúrý var svo falleg og
góð kona. Ég á ótal minningar
um hana og afa í Aratúninu síðan
ég var lítil. Það sem er mér efst í
huga er hvað hún var alltaf vel til
höfð með krullaða, dökkbrúna
hárið sitt. Hún hafði svo gaman
af því að fá okkur barnabörnin í
heimsókn og fengum við Kar-
lotta systir stundum að gista.
Okkur fannst svo gaman að vera
hjá ömmu og afa. Við fórum í
hárgreiðsluleiki þar sem amma
skreytti okkur eins og litlar ball-
erínur og svo horfðum við saman
á balletvídeóin af Maríu frænku,
og borðuðum ís. Ég man að
amma átti alltaf hálsbrjóstsykur,
og þegar við Karlotta komum í
heimsókn, skar hún einn slíkan í
tvennt, einn helmingur var fyrir
mig og hinn fyrir Karlottu. Við
systur fengum stundum að
hjálpa til í eldhúsinu með ömmu,
og stundum tók stríðnin í okkur
völdin. Við blönduðum alls kyns
sulli saman og sama hversu
slæm útkoman var, þá var amma
alltaf tilbúin að smakka. Þær
voru nokkrar sundferðirnar og
göngutúrarnir með ömmu um
Garðabæinn þar sem hún sagði
okkur meðal annars sögur af
pabba okkar þegar hann var lít-
ill.
Ég mun aldrei gleyma ömmu
og afa úr Aratúninu, þaðan á ég
frábærar minningar sem munu
fylgja mér alla mína tíð.
Takk fyrir allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman, elsku
amma mín, þú varst yndisleg
kona og mun ég sakna þín.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn.)
Þín
Alexandra.
Fyrsta minning mín um ömmu
Dúrí er í listdansskólanum. Þar
sé ég hana fyrir mér bakvið
skrifborðið sitt inni á skrifstofu,
þar sem hún átti alltaf háls-
brjóstsykur skúffunni. Hún var
alltaf til í að gera fínan ballerí-
nusnúð í hárið á mér og var sjálf
fín til fara, með krullur í hárinu.
Amma Dúrí var besta amma
sem hægt er að hugsa sér. Ég á
svo margar góðar minningar úr
Aratúninu. Hún vildi gera allt
fyrir okkur barnabörnin. Við
Alexandra systir vorum mikið í
því að „elda“ allskyns sull og láta
ömmu smakka, afi leit ekki við
eldamennskunni okkar, en amma
var til í allt.
Hún sagði mér oft að hún væri
ekki mikil félagsvera en henni
fannst gott að vera með sínum
nánustu ættingjum. Ég gleymi
ekki áramótunum þegar ég var
lítil og hrædd við sprengjuhljóð-
in í flugeldunum og allir voru úti
að sprengja en amma var til í að
vera inni með mér á meðan og
sagði mér sögur til að dreifa hug-
anum. Jólin og áramótin í Arat-
úninu voru alltaf haldin hátíðleg,
því mun ég seint gleyma. Það var
alltaf svo gaman að koma til
ömmu og afa, fá sælgæti og
smíða með afa, elda og spjalla við
ömmu, fara í sund eða í Hag-
kaup, labba í fjörunni, horfa á
gömul vídeó og hlusta á sögurnar
hans afa. Svona gæti ég haldið
lengi áfram.
Ég mun sakna þessara góðu
tíma, takk fyrir allar góðu minn-
ingarnar, elsku amma.
Minning þín er mér ei gleymd;
mína sál þú gladdir;
innst í hjarta hún er geymd,
þú heilsaðir mér og kvaddir.
(Káinn.)
Karlotta Guðjónsdóttir.
Þuríður Berna-
detta Jónsdóttir
Ásdís Ingimarsdóttir, hjartkær
vinkona mín, hefur kvatt eftir of-
urhetjulega baráttu. Hún fékk
friðsæla hvíld. Hafðu þökk fyrir
allt og allt, Ásdís mín ofurhetja.
Þú auðgaðir líf mitt og minna svo
sannarlega. Allri hennar ástkæru
fjölskyldu, foreldrum, systkinum
og þeirra fjölskyldum sem og
frændfólki öllu sendum við fjöl-
skyldan hugheilar samúðarkveðj-
ur. Mig langar að minnast hennar
með ljóði eftir ömmu mína, Stein-
unni Þ. Guðmundsdóttur:
Ó, himins blíða hjartans tár
er hjúpar sorg, þótt blæði sár,
þín miskunn blíð, hún mildar barm,
hún mýkir tregans sára harm.
Þú ert það ljós, það lífsins mál,
er ljúfur Drottinn gefur sál.
Nú hljóð er stund, svo helg og fríð,
að hjarta kemur minning blíð.
Hún sendir huga bros þitt bjart,
blessar, þakkar, þakkar allt.
Ásdís
Ingimarsdóttir
✝ Ásdís Ingimars-dóttir fæddist á
Egilsstöðum 7. nóv-
ember 1967. Hún
lést á Landspítala –
háskólasjúkrahúsi
13. september síð-
astliðinn.
Útför Ásdísar
var gerð frá Borg-
arneskirkju 22.
september 2012.
Hún minnir sál á sorgaryl,
sendir huggun hjartans til.
Vertu alltaf kært
kvödd mín kæra!
Þín vinkona,
Laufey V.
Mig langar til að
minnast Ásdísar í ör-
fáum orðum og þakka
fyrir vináttu hennar.
Við Ásdís kynntumst í
Seltjarnarneskirkju, ég nýkomin
þangað sem aðstoðarprestur, hún
skömmu síðar sem kirkjuvörður.
Við náðum strax mjög vel sam-
an og gátum rætt allt milli himins
og jarðar. Oftar en ekki enduðu þó
samræður okkar í hlátrasköllum.
Hún var mjög glaðlynd og ljúf og
fann ég að þar fór heilsteypt og
góð manneskja.
Það var gott að vinna með
henni og sýndi hún mér hlýju og
skilning í mínum störfum. Því
miður hitti ég hana bara einu sinni
eftir að hún hætti sem kirkjuvörð-
ur og sagði hún mér þá að hún
hefði greinst með hvítblæði. Virt-
ist hún taka veikindum sínum með
mesta æðruleysi. Við ræddum
smástund saman og kvöddumst
síðan í mestu vináttu. Guð blessi
foreldra, systkini og ástvini alla á
þessari sorgarstundu og leggi líkn
með þraut. Haf þökk fyrir allt.
Hildur Sigurðardóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elsku föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
NÍELSAR FRIÐBJARNARSONAR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðis-
stofnunarinnar á Siglufirði fyrir góða
umönnun og hlýju.
Ólöf Margrét Ólafsdóttir, Jón Torfi Snæbjörnsson,
Guðrún Þóranna Níelsdóttir, Sigurður Kjartan Harðarson,
Friðbjörn Níelsson,
afa- og langafabörn.
✝
Kærar og góðar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýju og samúð við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengda-
móður, ömmu, langömmu og systur,
DÓRÓTHEU M. BJÖRNSDÓTTUR,
Keldulandi 19.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk í Maríuhúsi og í Roðasölum fyrir
innilega og kærleiksríka umönnun.
Birgir Ólafsson,
Guðrún Björk Birgisdóttir, Hörður J. Oddfríðarson,
Birna Birgisdóttir, Kristján Sverrisson,
barnabörn, langömmubörn
og systkini hinnar látnu.
✝
Sendum okkar innilegustu þakkir fyrir hlýjar
samúðarkveðjur, minningarorð, blóm, skreyt-
ingar, kransa, yndisleg samtöl, vináttu og
hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin-
manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
JÓNS BJÖRNSSONAR
frá Bólstaðarhlíð,
Vestmannaeyjum,
Ægisíðu 92,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við forstöðumanni og starfsfólki
Safnahúss Vestmannaeyjabæjar fyrir að heiðra minningu Jóns
með sýningu mynda úr safni hans og alla virðingu honum
auðsýnda.
Einnig sérstakar þakkir til heimilislæknis Jóns, lækna, sjúkra-
flutningamanna og hjúkrunarfólks, fyrir einstaka aðhlynningu.
Útfararþjónustu og presti þökkum við styrka handleiðslu og
vandaða þjónustu.
Bryndís Jónsdóttir,
Halldóra Björk Jónsdóttir, Ingimar Haraldsson,
Þorgerður Bryndísardóttir Jónsdóttir, Bogi Agnarsson,
Birna Ólafía Jónsdóttir, Ásmundur Jón Þórarinsson,
Björn Jón Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.