Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
„Þetta er náttúrulega bara frábært,“ segir afmælisbarn dagsins,
Anna Steinþórsdóttir, spurð hvernig sá áfangi að verða fimmtug
legðist í hana. Þegar blaðamaður náði tali af Önnu var hún stödd á
Keflavíkurflugvelli nýkomin heim frá Spáni. ,,Börnin mín og sam-
býlismaður gáfu mér ferð til Kanaríeyja í afmælisgjöf, og þar var ég
í 30 stiga hita síðustu daga,“ segir Anna. Börnin gjafmildu eru þau
Víðir Þór 32 ára, Halla Guðrún 30 ára og Örvar Snær sem er 22 ára
auk Gunnlaugs V. Sigurðssonar, sambýlismanns Önnu.
Anna er búsett á Selfossi og líkar það vel. Hún vinnur í apótekinu
Lyfju þar í bæ og ber því starfi einnig vel söguna. Áhugamál hennar
eru af fjölbreyttum toga. „Fyrst og fremst er það fjölskyldan, svo er
ég í Powertalk sem eru alþjóðleg samtök sem bjóða upp á þjálfun í
samskiptum og tjáningu,“ segir Anna en hún situr í stjórn
samtakanna á Íslandi.
„Svo er ég líka í Bifreiðaklúbbi Suðurlands og hef mjög gaman af
gömlum bílum. Þar erum við aðallega í fornbílum, annars er þetta
opinn klúbbur fyrir alla bíla og tæki,“ segir Anna.
Afmælisfögnuðurinn endaði ekki með Kanaríferðinni því Anna og
Gunnlaugur munu eyða helginni í sveitasælu. „Við ætlum að fara á
Hótel Rangá og dvelja þar eina nótt,“ segir Anna.
gudrunsoley@mbl.is
Anna Steinþórsdóttir fimmtug
,,Börnin mín og sambýlismaður gáfu mér ferð til Kanaríeyja í afmæl-
isgjöf, og þar var ég í 30 stiga hita síðustu daga,“ segir Anna
Eyðir afmælinu á
Hótel Rangá
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Akranes Eva Hrönn fæddist 23. des-
ember. Hún vó 3.210 g og var 49 cm
löng. Foreldrar hennar eru Karen Lind
Ólafsdóttir og Ásgeir Sævarsson.
Nýir borgarar
Reykjavík Amelía fæddist 31. desem-
ber kl. 6.09. Hún vó 2.860 g og var 48
cm löng. Foreldrar hennar eru Aija
Baldina og Atli Stefán Aðalsteinsson.
V
igfús fæddist í Reykja-
vík og ólst upp í Foss-
voginum frá fimm ára
aldri. Hann var í Foss-
vogsskóla, Réttarholts-
skóla, lauk stúdentsprófi frá MS,
lauk BA-prófi í rússnesku frá HÍ
með ensku sem aukagrein, stund-
aði nám í rússnesku við Pushkin
Institut í Moskvu og nám í rúss-
neskum fræðum við Leeds Uni-
versity.
Fékk fyrsta laxinn 10 mánaða
Vigfús fór tíu mánaða í fyrsta
laxveiðitúrinn með fjölskyldunni en
faðir hans er hinn kunni laxveiði-
frömuður, Orri Vigfússon.
Vigfús hefur verið áhugamaður
um veiðar, stangveiði og skotveiði
frá því hann man eftir sér. Hann
varð ungur leiðsögumaður fyrir er-
lenda laxveiðimenn, einkum í Laxá
í Aðaldal, fyrstu árin, fór síðan
sjálfur að skipuleggja veiðiferðir,
stofnaði veiðiferðaskrifstofuna
Vivva 2002 sem sérhæfir sig í veiði-
ferðum fyrir hópa og hefur starf-
rækt hana síðan:
Vigfús Orrason laxveiðileiðsögumaður – 40 ára
Með fyrrv. Bandaríkjaforseta George H.W. Bush og Vigfús að veiða í Selá í Vopnafirði. Bush lék á als oddi.
Í lax með stórlöxunum
Fyrsti laxinn Vigfús, tíu mánaða, aðstoðar föður sinn við að landa stórlaxi.
„Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið
göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal
annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða
öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
Thermowave plötuvarmaskiptar
Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði
Eimsvalar fyrir sjó og vatn
Olíukælar fyrir sjó og vatn
Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu
Fyrir orku iðnaðinn
Glycol lausnir fyrir byggingar og
sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali
Títan–laser soðnir fyrir
erfiðar aðstæður svo sem
sjó/Ammoníak
Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði
www.frost.is