Morgunblaðið - 05.10.2012, Blaðsíða 38
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 2012
STOFNAÐ 1987
Úrva l e ins takra málverka og l i s tmuna ef t i r í s lenska l i s tamenn | S k i pho l t 50a | S ím i 581 4020 | www.ga l l e r i l i s t . i s
einstakt
eitthvað alveg
M
ál
ve
rk
:
Ó
lö
f
B
jö
rg
Berness? „Já, takk & franskar á
milli“ nefnist söngleikur eftir Pétur
Guðjónsson og Jokku (Jóhönnu G.
Birnudóttur) sem frumsýndur verð-
ur í kvöld í Sjallanum á Akureyri. Í
honum er góðlátlegt grín gert að
Akureyringum og akureyrsk tón-
list flutt, allt frá Ingimari Eydal til
Hvanndalsbræðra. Leikstjóri söng-
leiksins er Ívar Helgason en um
tónlistarstjórn sér Heimir Ingi-
marsson. Nýr leikhópur á Ak-
ureyri, Grímurnar, stendur að sýn-
ingunni.
„Hugmyndin að þessu kviknaði
fyrir a.m.k. sjö árum hjá mér. Ég er
borinn og barnfæddur á Akureyri
og tek mér það bessaleyfi að gera
grín að þessum þjóðflokki. Ég
myndi ekki þora það ef ég væri
ekki héðan,“ segir Pétur um söng-
leikinn. „Þetta eru s.s. þekkt lög
sem tengjast Akureyri á einhvern
máta; flutt af Akureyringum, samin
af Akureyringum eða fólki búsettu
á Akureyri. Villi Vill er t.d. þarna,
þó að hann sé ekki Akureyringur
var hann með Hljómsveit Ingimars
Eydal.“ Af öðrum hljómsveitum
sem lög eiga í söngleiknum megi
nefna Skriðjöklana, Baraflokkinn
og Stuðkompaníið.
Afi segir sögur af Sjallanum
Söngleikurinn segir af tveimur
drengjum sem koma til Akureyrar
á Bíladaga. Annar þeirra hefur
aldrei farið út fyrir Grafarvoginn
en hinn er ættaður frá Akureyri.
„Þeir fara að skemmta sér og gefa
kómíska mynd af ýmsum Akureyr-
ingum eins og Kidda Jó, Sigmundi
Erni og fleirum, í tali sín á milli.
Síðan heimsækja þeir afa annars
þeirra sem fer að segja þeim sögur
úr Sjallanum í gamla daga og þá
fáum við svona myndrænt end-
urminningar hans. Þannig að það
fléttast inn í þetta gamli sixtís tím-
inn og nútíminn. Þetta fer í smá-
rómans,“ segir Pétur.
Áhugaleikarar leika í sýning-
unni, ungt fólk með nokkra
reynslu, að sögn Péturs. Hvað leik-
stjórann varðar segir Pétur að
hann sé nýfluttur í bæinn og hafi
hrifist af Berness-menningunni.
Sósan góða sé notuð á allt.
Miðasala á söngleikinn fer fram í
afgreiðslu veitingastaðarins Greif-
ans og á vef hans, greifinn.is.
helgisnaer@mbl.is
Rómó Valdís Eiríksdóttir og Hjörv-
ar Óli Sigurðsson í söngleiknum.
Grín gert að
Akureyringum
Söngleikur með akureyrskri tónlist
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Í dag verða heiðursverðlaun RIFF
(Reykjavík International Film
Festival) veitt ítalska kvikmynda-
leikstjóranum Dario Argento.
Hann er einn þekktasti kvik-
myndaleikstjóri samtímans og þeir
eru ekki margir sem stýra hryll-
ingsmyndum sem viðurkenna ekki
áhrifin sem Argento hefur haft á
þá. Argento byrjaði sem kvik-
myndagagnrýnandi hjá dagblaðinu
Paese Sera þar til Sergio Leone
fékk hann og Bernando Bertolucci
til að skrifa með sér handritið að
spagettí-vestranum Once upon a
time in the West þar sem Henry
Fonda, Charles Bronson og Claudia
Cardinale léku aðalhlutverkin. Að-
eins ári seinna, eða árið 1970, frum-
sýndi Argento sína fyrstu bíómynd,
The Bird with the Crystal Plumage,
sem sló í gegn á Ítalíu. Næstu árin
gerði hann eina mynd á ári og hefur
nú leikstýrt 24 bíómyndum auk
þess að hafa komið að hand-
ritaskrifum að miklu fleiri. Einna
þekktustu myndirnar hans eru verk
eins og Suspiria og Opera. Suspiria
var frumsýnd árið 1977 og er hálf-
súrrealískur spennutryllir með yf-
irnáttúrulegu ívafi. Opera kom út
árið 1987 og fjallar um uppsetningu
á óperuverki sem Verdi skrifaði
uppúr Macbeth leikriti Shake-
speare. Spennan í bíómyndinni not-
aðist við meinta bölvun sem liggur á
verki Macbeth en slík voru vand-
ræðin við framleiðslu verksins að
Argento hefur margsinnis sagt að
hann trúi því einlæglega að það
fylgi bölvun verkinu. Það voru
vandræði við fjármögnun og leik-
konan Vanessa Redgrave hætti við
verkefnið á síðustu stundu. Meðan á
tökum stóð fór allt í háaloft milli
Argento og konunnar hans sem líka
vann við myndina og svo dó faðir
hans í miðjum tökum. Auk þess var
fjöldi óhappa og slysa slíkur að
þeim þótti sem bölvun væri á verk-
efninu.
Byrjaði í Villta vestrinu
Þegar blaðamaður Morgunblaðs-
ins hitti Argento á Hotel Marina
forvitnaðist hann fyrst um samstarf
hans við hina goðsagnakenndu Ser-
gio Leone og Bernardo Bertolucci.
„Bernardo var vinur minn, við vor-
um í sömu listamannaklíkunni, og
Sergio réð okkur til að fá ungæð-
isáhrif inní myndina. Við unnum
handritið í samvinnu. Fyrst skiptum
við því í þrjá hluta, ég gerði fyrsta
hlutann, Bernardo annan og Sergio
þann þriðja. Á seinni stigum unnum
við svo hver í annars köflum.“
Það hefur oft verið sagt um
myndir Argento að hann leggi
stundum meiri áherslu á hljóð og
myndir heldur en söguna sjálfa. Að-
spurður hvort hann sé sammála
þeirri staðhæfingu segir hann já.
„Bíómyndir eru einsog draumur.
Áhorfendur fá að sjá eitthvað djúpt
og undarlegt, senur symbóla. Fólk
dreymir allan sólarhringinn en þeg-
ar það kemur í kvikmyndahús sér
það drauma leikstjórans. Að sjálf-
sögðu skiptir því hljóð og hið mynd-
ræna meira máli en söguþráð-
urinn.“
Allt eins og fyrir 40 árum
Argento hefur 40 ára reynslu í
bransanum að baki og lék blaða-
manni forvitni á því hvort það væri
á einhvern hátt öðruvísi að gera
bíómyndir í dag en það var þá.
„Nei, ekki nema ef litið er til tækni-
framfaranna,“ segir Argento.
„Vinnan með leikurunum er alltaf
eins og nánast allt ferlið er það líka.
Þegar ég gerði myndir sem ungur
maður þá var það fyrir unga fólkið,
það var bara ungt fólk sem flykktist
á myndirnar mínar. Þegar ég var
miðaldra var það líka bara unga
fólkið og enn í dag er því þannig
farið. Þegar ég geri kvikmynd
vaknar alltaf barnið í mér og því næ
ég til barnsins í fólki.“
John Carpenter hefur oft sagt að
hann hafi verið undir miklum áhrif-
um frá Argento þegar hann gerði
hina sögufrægu bíómynd Hallo-
ween. Aðspurður hvað Argento
finnist um Carpenter segir hann að
þeir séu vinir. „Hann er eiginlega
besti vinur minn og mér finnst
myndirnar hans mjög góðar.“
Hryllingsmyndaleik-
stjórinn heiðraður
Ítalski leikstjórinn lenti í bölvun Macbeths í tökum
Morgunblaðið/Golli
Leikstjóri Þrátt fyrir að hafa unnið við að setja hrylling á hvíta tjaldið alla ævi er Argunto vinalegur maður.
Ný söngleikjaröð sem nefnist Lífið
er söngleikur hefst í Salnum í kvöld
kl. 20. Þar koma fram leikararnir
Bjarni Snæbjörnsson, Margrét Eir,
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir og
Orri Huginn Ágústsson, en þau léku
öll saman í Vesalingunum í Þjóðleik-
húsinu sl. vetur.
Hópurinn hyggst í vetur bjóða
upp á ferna tónleika þar sem flutt
verða klassísk lög sem allir þekkja í
bland við ný lög og vinsæl við undir-
leik Kjartans Valdemarssonar.
„Á fyrstu tónleikunum í söng-
leikjaröðinni munu fjórmenning-
arnir taka uppáhaldslög allra úr
söngleikjum sem slegið hafa í gegn á
Broadway og West End. Tekin
verða kanónulögin úr sýningum sem
gengið hafa árum saman í London
og New York. Lög úr söngleikjum á
borð við Cabaret, Les Misérables,
Fiddler on the Roof, Cats, Evita,
The Sound of Music og Phantom of
the Opera,“ segir m.a. í tilkynningu.
Næstu tónleikar verða snemma í
nóvember, en þá verða vinsælustu
söngleikjum kvikmyndasögunnar
gerð góð skil. Í byrjun febrúar verða
ódauðleg lög stóru söngleikjaskáld-
anna á dagskrá og í apríl verða tekin
lög úr söngleikjum sem rokkað hafa
heiminn ásamt nýjum frábærum
stykkjum.
Ný tónleikaröð helg-
uð söngleikjum hefst
Söngstjarna Margrét Eir.