Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Page 4
G
reiðslur til stjórn-
armanna í fjórum
stærstu lífeyris-
sjóðum landsins
hafa meira en tvö-
faldast á áratug. Fjórir stærstu
lífeyrissjóðir landsins, Lífeyris-
sjóður starfsmanna ríkisins, Líf-
eyrissjóður verslunarmanna, Stapi
og Gildi fara saman með 53%
allra eigna lífeyrissjóða landsins
samkvæmt talnaupplýsingum á vef
Fjármálaeftirlitsins.
Eins og taflan að neðan sýnir
hafa allir þessir sjóðir hækkað
laun stjórnarmanna umtalsvert
síðustu ár, einkum eftir hrun.
Hækkun allt að 158%
á áratug
Að meðaltali nema hækkanir
stjórnarlauna fjögurra stærstu líf-
eyrissjóðanna 68% frá hruninu
2008. Vísitala launa hefur á sama
tíma hækkað um 31% samkvæmt
upplýsingum af vef Hagstofunnar.
Óskað var upplýsinga um launa-
greiðslur til stjórnarmanna milli
áranna 2003 og 2013. Sé allt tíma-
bilið skoðað má sjá að hækkanir
stjórnarlauna nema 113% hjá LSR
og 108% hjá Lífeyrissjóði versl-
unarmanna. Hjá Gildi hafa stjórn-
arlaun hækkað um 72% frá árinu
2005 en sjóðurinn varð til það ár
við sameiningu tíu sjóða. Stapi líf-
eyrissjóður hefur hækkað laun
fyrir stjórnarsetu um 54%-158%
eftir því hvort miðað er við
stjórnarlaun hjá
forverunum Lsj.
Norðurlands eða
Lsj. Austurlands í
upphafi tímabilsins.
Launavísitala hækkaði
um 91% milli 2003 og
2013 miðað við ágúst ár hvert.
Líkt og sjá má hækka launin
skart síðustu tvö ár. Þessir fjórir
sjóðir og margir aðrir lækkuðu
laun stjórnarmanna sinna í kjölfar
hrunsins en hafa nú hækkað
aftur.
Stjórnarformaður LSR, stærsta
lífeyrissjóðsins, fékk greiddar um
127 þúsund krónur á mánuði fyrir
stjórnarsetu á góðærisárinu 2007.
Í fyrra námu greiðslur til stjórn-
arformanns LSR 147 þúsund
krónum á mánuði en nú, árið
2013, fær stjórnarformaður sjóðs-
ins greiddar 225 þúsund krónur á
mánuði. Nemur hækkunin frá því
í fyrra 53%.
Hæst laun fyrir stjórnarsetu
eru greidd hjá Lífeyrissjóði versl-
unarmanna, en þar fær stjórnar-
formaður 270 þúsund krónur á
mánuði.
Eigendur lífeyrissjóðanna greiða stjórnarmönnum laun með iðgjöldum af launum sínum. Oftast sitja sex til átta einstaklingar stjórn hvers lífeyrissjóðs en stjórn-
arseta er jafnan hlutastarf sem stjórnarmenn taka að sér samhliða annarri vinnu.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Stjórnarlaun hjá lífeyris-
sjóðum aldrei verið hærri
LAUN FYRIR STJÓRNARSETU Í LÍFEYRISSJÓÐUM HAFA UM OG YFIR TVÖFALDAST Á SÍÐASTLIÐNUM ÁRATUG.
SUMIR SJÓÐIR LÆKKUÐU STJÓRNARLAUN Í KJÖLFAR HRUNSINS EN HAFA HÆKKAÐ ÞAU SKART AÐ NÝJU SÍÐUSTU ÁR.
STJÓRNARLAUN HAFA AÐ MEÐALTALI HÆKKAÐ UM 68% FRÁ HRUNI HJÁ FJÓRUM STÆRSTU LÍFEYRISSJÓÐUM LANDSINS.
Laun stjórnarmanna lífeyrissjóða
2003 2013 2003 2013 2005 2013 2003 2013
Almennur stjórnarmaður Varaformaður stjórnar Stjórnarformaður
Lífeyrissjóður
starfsmanna ríkisins
Lífeyrissjóður
verzlunarmanna
Gildi
lífeyrissjóður
Stapi
lífeyrissjóður
52.858 kr.
79.287 kr.
105.716 kr.
225.000 kr.
168.750 kr.
112.500 kr.
65.000 kr.
97.500 kr.
130.000 kr.
135.000 kr.
202.500 kr.
270.000 kr.
103.640 / 62.000 kr.
51.820 / 31.000 kr.
51.820 / 31.000 kr.
80.000 kr.
120.000 kr.
160.000 kr.
86.000 kr.
129.000 kr.
172.000 kr.
50.000 kr.
75.000 kr.
100.000 kr.
Heimilidir :Tölur eru fengnar frá sjóðunum sjálfum eða úr ársreikningum.
4 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28.9. 2013
Samkvæmt lögum verða stjórnar-
menn í lífeyrissjóðum að uppfylla
ýmis hæfisskilyrði en Fjármála-
eftirlitið sér um
eftirlit með
sjóðunum.
„Auk þeirra al-
mennu krafa sem
gerðar eru til
stjórnarmanna og
framkvæmdastjóra
lífeyrissjóða í lög-
um er einnig að
finna þar ákvæði sem er meira mats-
kennt; um að stjórnarmenn eigi að
búa yfir nægilegri þekkingu og
starfsreynslu til að geta gegnt stöðu
sinni á tilhlýðilegan hátt. Það atriði
hefur ekki þótt nógu skýrt,“ segir
Unnur Gunnarsdóttir forstjóri
Fjármálaeftirlitsins.
Hún gerði hæfiskröfur stjórnenda
og stjórnarmanna lífeyrissjóðanna
að umtalsefni á ársfundi FME í vor
og sagði þá að hún teldi að löggjöf
um lífeyrissjóði veiti ekki jafn mikið
aðhald og öryggi og önnur löggjöf
fyrir fjármálamarkaðinn.
Það er ekki hlutverk FME að
leggja mat á hvað eru eðlilegar
launagreiðslur fyrir stjórnarsetu en
stofnunin sér um að fylgja eftir
hæfnisviðmiðum. „Talsmönnum líf-
eyrissjóðanna hefur fundist við vera
of ströng í að fylgja þessu ákvæði
eftir en við erum að nota ámóta við-
mið og þegar hæfi stjórnarmanna í
fjármálafyrirtækjum er metið. Þessi
lög eru hins vegar að grunni til frá
1997, þ.e. 16 ára gömul, og það er al-
veg tilefni til að fara í ákveðna heild-
arendurskoðun á þeim,“ segir hún.
Endurskoða þarf lög um lífeyrissjóði.
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
FME metur
hæfi stjórn-
armanna
Unnur
Gunnarsdóttir
Óskað var upplýsinga frá
sjóðunum um laun greidd fyr-
ir stjórnarsetu á árunum
2003-2013. Almennt eru
haldnir um 12-15 fundir ár-
lega hjá hverjum lífeyrissjóði.
Hjá LSR eru fundirnir hins
vegar fleiri, voru 26 á síðasta
ári. Greitt er fyrir
stjórnarsetu í
formi fastra
mánaðarlauna
en varamenn fá
almennt greitt fyr-
ir hvern fund sem
þeir sitja.
AÐ JAFNAÐI 1-2
FUNDIR Í MÁNUÐI
*Hrein eign fjögurra stærstu lífeyrissjóðanna nam 1.273milljörðum í árslok 2012. Hrein eign allra 33 lífeyris-sjóðanna nam á sama tíma 2.395 milljörðum króna.ÞjóðmálEYRÚN MAGNÚSDÓTTIR
eyrun@mbl.is