Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28.9. 2013
Líkt og hækkun eða lækkun vöruverðs hef-ur áhrif á hegðun neytenda hefur breyt-ing á skatthlutfalli tvenns konar áhrif á
tekjur ríkisins. Annars vegar áhrif sem lúta
lögmálum stærðfræðinnar, þ.e. því meira sem
ríkið tekur af fólki því meira eignast ríkið og
öfugt. Hins vegar áhrif sem leiða má af
óútreiknanlegri hegðun manna. Það eru þessi
síðarnefndu áhrif sem Laffer-kúrfan svokallaða
sýnir með því að gera ráð fyrir jákvæðum
áhrifum skattalækkunar á vinnuframlag manna
og þar með skattstofninn en letjandi áhrifum á
vinnumarkað í kjölfar skattahækkunar. Hækk-
un skatta leiðir þannig til minnkandi skatttekna
ríkisins. Um þetta hafa menn verið sammála
um, jafnvel löngu áður en Arthur Laffer á að
hafa teiknað kúrfuna á servéttu veitingahúss til
þess að útskýra þetta samspil fyrir borð-
félögum sínum.
Talsmenn skattalækkunar styðjast gjarnan
við Laffer-kúrfuna máli sínu til stuðnings.
Lækkun skatta geti leitt til aukinna tekna fyrir
ríkið og of miklar skattahækkanir leiði jafnvel
til rýrari uppskeru ríkissjóð en ella væri. Þetta
er auðvitað satt og rétt en bara gott svo langt
sem það nær. Er það endilega markmið að ríkið
hafi yfir miklu fé að ráða? Hversu mikið fé þarf
ríkið á hverjum tíma? Getur ríkið haft yfir of
miklu fé að ráða? Til hvers þarf ríkið fé? Þess-
um spurningum svarar Laffer-kúrfan ekki en
mikilvægt er að þeir sem berjast fyrir takmörk-
uðum umsvifum ríkisins og lágum sköttum
kunni svör við þeim.
Öll aðlögum við okkur að aðstæðum. Lífsstíll
manna fer langoftast eftir þeim tekjum sem
þeir hafa úr að spila. Flestir sníða sér stakk
eftir vexti. Menn draga sjaldnast úr útgjöldum
sínum nema þeir þurfi. Það sama á við um rík-
issjóð. Það mun ekki draga úr útgjöldum rík-
isins fyrr en sá sjóður sem stjórnmálamenn
halla sér að minnkar. Þaninn ríkissjóður leiðir
alltaf til gríðarlegra útgjalda á ýmsum sviðum.
Bygging Hörpunnar, launað 9 mánaða fæðing-
arorlof fyrir hátekjufólk og 90% lán handa öll-
um eru dæmi um hugmyndir stjórnmálamanna
um tugmilljarða útgjöld sem ekki hefði verið
hrint í framkvæmd nema af því að tekjur rík-
issjóðs voru miklar á tilteknum tíma. Því miður
eru þessi verkefni ekki „einskiptiskostnaður“
heldur myllusteinn um háls skattgreiðenda um
ókomin ár.
Það verður ekki dregið úr útgjöldum fyrr en
ríkissjóður minnkar. Skattalækkun er því for-
senda fyrir minni útgjöldum. Þess vegna getur
það ekki verið markmið í sjálfur sér að komast
á topp Laffer-kúrfunnar, þar sem ríkið hámark-
ar tekjur sínar. Ef við einhvern tímann kom-
umst þangað þarf að lækka skatta enn frekar
svo ekki verði stofnað til útgjalda sem menn
eru sammála um að séu ekki á ábyrgð ríkisins.
Laffer svarar ekki öllu
* Fyrsta fjárlagafrum-varp ríkisstjórnarinnarverður kynnt á þriðjudaginn.
Skyldu höfundar þess hafa
hugsað til Laffers, og kannski
aðeins örlítið lengra?
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Sigríður Ásthildur
Andersen
sigga@sigridurandersen.is
„Pæling að flötta sig upp fyrir vet-
urinn og tattúera á sig uni-brow?“
spurði Unnsteinn Manuel Stef-
ánsson, söngvari
hljómsveitarinnar
Retro Stefson,
fésbókarvini sína á
dögunum. Vinir
söngvarans virtust
taka vel í þessa hugmynd hans að
húðflúra á sig samvaxnar augabrún-
ir.
Jóhannes Kr. Kristjánsson
Kastljósstjarna
leitaði einnig ráða
hjá fésbókarvinum
í vikunni:
„Þegar ég versla
einhverjar vörur
aðrar en eldsneyti við bensín-
stöðvasjoppurnar, sem ég geri
reyndar sjaldan vegna verðlagn-
ingar, þá er ég alltaf spurður þegar
ég er að fara að borga; Ertu með
eldsneyti? – ætli afgreiðslufólkið
haldi að maður sé að stela bens-
íni?“
Nýtt fatamerki tónlistarkon-
unnar Svölu Björgvins, Kali, er
nú til sölu hér á landi. Svala virtist
ánægð með þessa tilbreytingu en
línan hefur eingöngu verið fáanleg á
vefsíðunni lastashop.com.
„Ég er pínu stolt af því að nýja
fatalínan mín KALI er seld í E-Label
búðum í Smáralind og Laugavegi.“
Söngkona hljómsveitarinnar Sísý
Ey, Elín Ey, komst í fréttirnar á
dögunum þegar
hún birti þessa til-
kynningu á fésbók-
arsíðu sinni: „Ha-
haha! Var að fá
fréttir frá so so
gay blaðinu að ég væri að þeirra
mati kynþokkafyllsta lellan! Sweet
hehe! Það er einhver verðlaunaaf-
hending í London 17. okt! Hver vill
koma með?“ Var færslan þó upp-
spuni því systir Elínar hafði laumast
í tölvu systur sinnar og skrifað
færsluna í gríni.
AF NETINU
Tvíeykið Hemmi og Valdi, eða Her-
mann Fannar og Valdimar Geir Hall-
dórsson, urðu góðkunningjar borgarbúa
og áberandi í bæjarlífinu þegar þeir
stofnuðu hið geysivinsæla kaffihús Ný-
lenduvöruverzlun Hemma og Valda sem
þeir ráku saman við Laugaveg en í
samvinnu ráku þeir einnig Tíu dropa,
gistiheimilið Reykjavík Backpackers,
tölvuþjónustuna Macland og komu að
ýmsum stærri og minni verkefnum sam-
an.
Hermann, eða Hemmi eins og hann
var jafnan kallaður, varð bráðkvaddur
fyrir um það bil tveimur árum og hefur
félagi hans Valdimar, eða Valdi, ekki
verið mikið áberandi eftir fráfall
Hemma og hefur meðal annars búið í
Kaupmannahöfn ásamt eiginkonu sinni.
Nú er Valdi hins vegar snúinn aftur í
viðskiptalífið hérlendis og er í forsvari
fyrir heimasíðu sem verður formlega
opnuð í dag. Heimasíðan kallast Besta-
boð, bestabod.is, og gengur út á að
tengja fólk sem þarf á þjónustu að
halda og svo þá sem veita hana.
Sú þjónusta sem Bestaboð mun að-
stoða með er afar fjölbreytt. Á heima-
síðunni verða upplýsingar um smiði og
málara sem bjóða vinnu, grafíska hönn-
uði, garðyrkjumenn, bókhalds- og flutn-
ingsþjónustu, ljósmyndara, rafvirkja,
pípara og margt fleira.
Opnunarhóf í tilefni Bestaboðs verð-
ur haldið á Kaldabar í dag þar sem Dj
Sóley sér um að þeyta skífum og pinna-
matur í boði Frú Laugu verður á boð-
stólum ásamt léttum veigum. Húsið
verður opnað klukkan 19 og stendur
gleðin eitthvað fram eftir kvöldi.
Valdi snýr aftur
Valdimar Geir Halldórsson, sem hefur jafnan verið kenndur við Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda.
Vettvangur