Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28.9. 2013
„Axlalyftur eru fjölbreyttar og skemmti-
legar æfingar sem allir ættu að gera
reglulega,“ segir íþróttafræðingurinn
Fannar Karvel hjá líkamsræktarstöðinni
Spörtu. Hann segir að svokölluð Y-
axlalyfta sé sérlega mikilvæg fyrir kyrr-
setufólk.
„Þessi æfing hentar öllum, byrjendum
sem og íþróttafólki.“ Tilgangurinn er að
virkja og styrkja vöðvana í kringum herða-
blöðin sem sjá um stöðugleika í axlagrind-
inni. Slíkur styrkur skiptir miklu máli upp
á vellíðan í hálsi og herðum og getur því
hentað vel fyrir skrifstofufólk.
„Æfinguna er hægt að framkvæma hvar
sem er og hvenær sem er. Það er mismun-
andi hvað hentar hverjum og einum en
gott að gera þetta einu sinni til tvisvar í
viku, 2-3 sett af 6-8 endurtekningum.“
1 Passa þarf að þumlar vísi alltaf aftur á við í æf-ingunni. Endurtekið 6-8 sinnum í senn. Ekki
reyna að gera hratt heldur huga að líkamsstöðu.
Morgunblaðið/Eggert 2 Mikilvægt er að hendur séu beinar ogað axlir lyftist ekki upp í átt að eyrum
þegar lófar eru færðir saman framan við
bringu.
3 Stattu með fætur saman og rassinn örlítiðaftur. Reyndu að draga herðablöðin saman
og örlítið niður á við og myndaðu bókstafinn Y
með líkamanum.
ÆFING DAGSINS
Y-axlalyfta
F
jöldi fólks notar tölvur og
farsíma daglega við leik og
störf og óhætt er að segja
að sannkölluð sprenging hafi
orðið í útbreiðslu slíkra tækja á síð-
astliðnum árum.
Heilbrigðissérfræðingar víða um
heim finna fyrir aukningu í stoð-
kerfisvandamálum í kjölfar auk-
innar tæknivæðingar og sama þró-
un á sér stað hér á landi að mati
Jóns.
„Þetta er að breytast rosalega
mikið á síðustu árum enda eyða
margir heilu og hálfu dögunum í að
beygja sig yfir tölvur og farsíma,“
segir Jón en hann þarf að takast á
við tölvuhálsa á degi hverjum í
tengslum við starf sitt sem kíróp-
raktor.
Hálsinn leitar fram
„Hálsinn leitar fram þegar fólk
starir á tölvuna og vinnur í síman-
um. Þetta raskar eðlilegu jafnvægi
líkamans. Í grófum dráttum á
sveigjan í hálsinum að endurspegla
sveigjuna í mjóbakinu þegar maður
horfir á mynd af hryggnum. Í
tölvuhálsi er sveigjan í hálsinum
hreinlega farin út um þúfur og er í
litlu samræmi við mjóbakið. Slík
skekkja skapar ýmis vandamál og
leiðir af sér mikið álag á axlir og
bak ásamt því að valda höf-
uðverkjum og bólgum.“
Það er mikilvægt að draga úr
tölvu- og farsímanotkun að mati
Jóns og rétta almennilega úr lík-
amanum í hversdagslegu lífi.
„Þjóðfélagið er orðið gegnsýrt af
þessari tækni og sumir fara beint
úr tölvunni yfir í símann án þess að
rétta úr líkamanum á milli.“
Hann segir mikla þörf vera til
staðar fyrir vitundarvakningu um
þetta vandamál og bendir m.a. á
forvarnargildi þess að fræða unga
menntskælinga um mikilvægi þess
að sitja rétt og líta reglulega upp
frá tölvunni.
Tölvuháls eftir fermingu
„Ég finn mikið fyrir þessari þróun
hjá ungmennum en þau alast mörg
hver upp í þessu og byrja í tölvunni
ung að árum. Sumir krakkar eru
jafnvel í marga klukkutíma á dag í
tölvuleikjum. Ég hef fengið marga
krakka hingað inn með allskonar
einkenni á borð við höfuðverki, bak-
verki og hálsverki sem rekja má
beint til tölvu- og farsímanotkunar.“
Hann segir marga unga ein-
staklinga hætta í íþróttum vegna
slíkra óþæginda. „Ég hef verið með
börn í meðferð sem fóru að finna
fyrir ýmsum tölvuhálsa-einkennum
fljótlega upp úr fermingu í kjölfar
þess að þau fengu tölvu í ferming-
argjöf frá foreldrum sínum.“
Hann telur þessa þróun vera
ógnvænlega því líkaminn er við-
kvæmari en ella á uppvaxtarár-
unum. „Þegar líkaminn er að vaxa
þá er verið að setja tóninn fyrir
framtíðina og byggja upp grunn
sem getur verið erfitt að breyta
seinna meir.“
Foreldrar bera ábyrgð
Hann telur vandamálið liggja að
miklu leyti hjá foreldrum enda er
eðlilegra að þau beri ábyrgðina en
ekki barnið. „Það er gríðarlega
mikilvægt, barnanna vegna, að þau
fái ekki að vera fyrir framan tölv-
una í marga klukkutíma án þess að
hreyfa sig eða að teygja úr sér.
Þetta snýst um að foreldrarnir séu
meðvitaðir og veiti börnunum sín-
um aðhald. Yfirleitt eru það foreldr-
arnir sem kaupa tölvurnar fyrir
börnin og það er þeirra að stýra
notkuninni. Það er mjög ónátt-
úrulegt fyrir börn að fá ekki að
hreyfa sig og reyna á sig, að eyða
æskuárunum í skrýtnum stellingum
fyrir framan tölvuna er algjörlega
ótækt.“
AUKIN KYRRSETA OG TÆKNIVÆÐING
Fleiri
tölvuhálsar
Jón Arnar Magnússon hefur áhyggjur af því að hálsar ungmenna líði fyrir aukna tækjanotkun.
Mikilvægt er að taka sér hlé frá tölvunotkun og sitja ekki of lengi við.
SVOKALLAÐIR „TÖLVUHÁLSAR“ VERÐA SÍFELLT ALGENG-
ARI,“ SEGIR JÓN ARNAR MAGNÚSSON KÍRÓPRAKTOR.
FÆSTIR ÞEKKJA HUGTAKIÐ „TÖLVUHÁLS“ EN ÞAÐ ER NOT-
AÐ UM STOÐKERFISVANDAMÁL Í TENGSLUM VIÐ MIKLA
TÖLVU- OG FARSÍMANOTKUN.
Jón Heiðar Gunnarsson jonheidar@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
* Sjúkraþjálfarinn Sævar Óm-arsson segir mikilvægt að sitja ekki of
lengi við tölvuna í sömu stellingunni.
„Það er mikilvægt að hlusta á líkam-
ann. Ef maður hefur setið með tölv-
una í fanginu í einn til tvo klukkutíma
er mikilvægt að taka sér hlé, teygja úr
sér og gera eitthvað annað.“
* Sævar segir nauðsynlegt fyrirfólk að vera meðvitað um vandann.
„Það er til dæmis betra að halda á
farsímanum ofar þegar maður notar
hann í staðinn fyrir að beygja hálsinn
alltaf niður á við.“
* „Það er best að vinna með beintbak og slakar axlir, með olnbogana
sem næst líkamanum, hvort sem unn-
ið er standandi eða sitjandi. Höfuð
og háls eiga ekki að liggja fram og
haka á ekki að snerta bringu,“ segir
Sævar.
Möndlur henta mjög vel sem orkuríkt snarl á milli mála.
Þær eru trefjaríkar og innihalda m.a. lífsnauðsynlegar am-
ínósýrur. Sýnt hefur verið fram á að neysla þeirra getur
lækkað kólesteról og dregið úr líkum á hjartasjúkdómum. Í
20 grömmum af möndlum eru 126 hitaeiningar.
Möndlur á milli málaHeilsa og hreyfing