Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Síða 37
betri hátalara og svo framvegis.
Bili blokkin má einfaldlega skipta
um hana. Þannig hleðst rafmagns-
ruslið ekki upp eða minna verður
af því að minnsta kosti því ekki
þarf að henda heilum síma, bara
litlum hluta.
Hugmyndin er svo yndislega fal-
leg að það er í raun ótrúlegt að
hún skuli ekki hafa komið upp
fyrr. En mun þetta virka? Er þetta
hægt? Það er stóra spurningin.
Enn sem komið er er Phonebloks
bara hugmynd en takmarkið er að
setja símann og blokkirnar í fram-
leiðslu.
Kostnaðurinn er mikill
Þeir hjá Adafruit, sem prófa og
vita allt um raftæki, framtíð þess
og nútíð, segja að hugmyndin sé
framkvæmaleg. Rafmagnsverk-
fræðingurinn Limor Fried, sem út-
skrifaðist frá bandaríska háskól-
anum MIT og er einn aðalmað-
urinn á bak við Adafruit-síðuna,
segir að markaðurinn muni alltaf
ráða því hvort síminn kemur í
verslanir eða ekki. „Persónulega er
ég hrifinn af þessari hugmynd. Að
gera minn eigin síma enn persónu-
legri og ekki er verra að geta gert
við hann sjálfur og bætt hann eftir
mínu höfði,“ segir Fried. Hann fór
síðan yfir tæknina á bak við sím-
ann skref fyrir skref. „Að taka hlut
úr sambandi og setja aftur í mun á
endanum þreyta tækið. Það kemur
málmþreyta í endana en auðvitað
verður það prófað áður en síminn
kemur á markaðinn. Hver eining
yrði líka að vera sér í hugsun en
það er lítið mál með nútímatækni.
Kostnaðurinn yrði gríðarlegur
við hverja blokk og þar með yrði
síminn líka mjög dýr. Væntanlega
þyrftu þeir að afrita hönnun sem
er nú þegar til og fá þar með leyfi
frá Samsung og Apple. Það mun
kosta þá skildinginn.“
Betri hugmynd en iPhone
Það er í raun verkfræðilegt undur
að koma öllum þessum tækjum og
tólum fyrir í einum snjallsíma. Þó
að símarnir séu alltaf að stækka
eru þeir alltaf að verða þynnri og
léttari.
Verkfræðingarnir á bak við sím-
ana í dag virðast hafa það mark-
mið að koma sem flestu fyrir á
einu drifi og þannig er frekar
ópraktískt að hafa endurnýjanlegar
einingar.
Ekki er talið mjög líklegt að
Samsung eða Apple vilji stökkva
um borð í þessa lest, jafnvel þó að
Apple-menn virðist frekar hug-
myndasnauðir þessa dagana, ný-
búnir að frumsýna enn einn alveg
eins iPhone. Hvað sem má segja
um iPhone eru þeir samt fallegir
að sjá. Phonebloks er það alls ekki.
Grár og gugginn og á ekkert skylt
við nýbónaða síma í verslunum
dagsins í dag.
Krossmarkið Phonebloks
Eins og er er Phonebloks bara
hugmynd en sjö milljónir manna á
fyrstu þremur dögunum segja
markaðsmönnum að þetta sé
kannski eitthvað sniðugt. Þetta er
svo sannarlega sniðugt fyrir jörð-
ina, svo mikið er víst. Áætlun
Hakkens er að fá alla keppinauta
til að gera einn síma en hann yrði
besti síminn. Til þess þarf hann
rétta fólkið, já og ríka fólkið auð-
vitað líka. En til að sýna að það sé
áhugi fyrir þessum síma þarf rödd
heimsins að heyrast. Hvernig lætur
maður hana heyrast? Jú í gegnum
fésbókina og thunderclap þar sem
tekið er á móti frjálsum fram-
lögum. 29. október munu síðan allir
sem lækuðu síðuna hans Hakkens
setja krossmarkið (hashtag) phone-
blok á fésbókina eða twitter. Sýna
heiminum að það er vilji fyrir því
að fá síma sem endist aðeins leng-
ur en 18 mánuði.
Útskýring á nokkrum helstu tækniblokkunum.
Móðurborðið, skjáirnir og aðrir aukahlutir. Hægt er að raða þessu saman að vild.
28.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 37
Byssuleikurinn Jane Wilde gerist í
villta vestrinu. Wilde er ráðin sem
fógeti og á að skjóta sem flesta,
bæði lifandi og dauða. Ekki láta út-
litið blekkja því Wilde er grjóthörð
og kallar ekki allt ömmu sína. Hún
er alveg með starf sitt og skyldur á
hreinu. Jane Wilde fær 4,6 stjörnur
af fimm mögulegum í Google-
búðinni og leikurinn er einnig fáan-
legur fyrir Apple-snjalltæki. Jane
Wilde-leiknum er hægt að hlaða
niður frítt.
JANE WILDE
Grjótharður
armur laganna
Period Diary er smáforrit fyrir
konur sem vilja skrá niður hvenær
þær eru á blæðingum. Smáforritið
hentar vel hvort sem konur vilja
skrásetja tíðahringinn eða sjá hve-
nær frjósemi er mest. Það eina sem
notendur kvarta yfir er að það
þurfi ekki lykilorð til að skoða það.
Hægt er að skrá ýmsar heilsufars-
upplýsingar líka. Smáforritið er
ókeypis og virkar fyrir bæði Apple-
snjalltæki og tæki sem notast við
Android-stýrikerfi.
PERIOD DIARY
Tíðahringur-
inn skrásettur
Skipulagsforritið Rapid Task er
einfaldara en flest önnur álíka
forrit því forritið einblínir á
hraða í staðinn fyrir ákveðna
daga. Einfaldara í notkun en flest
önnur. Þetta er frábært fyrir fólk
með frestunaráráttu og kemur
rútínu á lífið sé það notað af al-
vöru. Eini gallinn er að fresta því
að skrifa inn hvað maður þarf að
gera en það kallast líklega frest-
unarárátta. Fæst aðeins fyrir
Apple.
Skipulag og
einfaldleiki
RAPID TASK
Smáralind | Sími 512 1330
Opið í dag frá 13.00 - 18.00
Ný
MacBook Air
Allt að
12klst
Rafhlöðuending