Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Page 39

Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Page 39
28.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 39 Í nýjustu Woody Allen- myndinni, Blue Jasmine, fer Cate Blanchett á kostum í hlutverki Jasmine Hal sem er á tímamótum í lífi sínu. Í fyrsta skipti á ævinni er hún alveg staur- blönk eftir að eiginmaður hennar yfirgaf hana. Eftir áralangt framhjáhald með hinum og þess- um þokkadísum fann hann loksins ástina í faðmi kornungrar au pair- stúlku vinahjóna sinna … eins og „sumir“ menn geta lent í. Áður en að þessu augnabliki kom í lífi hennar hafði hún lifað hátt, fengið alla heimsins demanta og fínerí frá „hubby“ milli þess sem hún trítaði sig á Fifth Avenue í New York (dýrustu götu NY- borgar). Jasmine hafði stíl og kunni að velja réttu fötin – það verður ekki frá henni tekið. Í raunveruleikanum hefði hún náttúrlega valið þetta allt sjálf, eða fengið persónulegan stílista með sér í vettvangsferðir. Þær vinkon- urnar hefðu ryksugað flottheitum upp í Chanel-búðinni, hjá Hermés og Fendi milli þess sem þær mættu í jóga- og pílatestíma. En af því að þetta er bíómynd en ekki raunveruleikaþáttur þurfti bún- ingahönnuðurinn, Suzy Benzinger, að leggja mikið á sig til að ná fram réttum áhrifum. Það var líka ann- að sem olli miklum vandræðum og það var peningaleysi. Herra Allen skar peninga í búningahönnunina við nögl sem gerði það að verkum að hún hefði í raun bara getað keypt eina Hermés-tösku fyrir peningana sem áttu að fara í bún- ingahönnunina í heild. Hún þurfti því að fara alls konar krókaleiðir til að ná í góssið fyrir litla pen- inga. Eins og sást á hvíta tjald- inu tókst það aldeilis vel. Jasmine klæddist mjúk- um litum og út myndina var hún í ljósum þunnum Chanel-jakka með bróderingu í kringum hálsinn og meðfram boðungnum. Eyðimerk- urlituð Hermés-taska varð fyrir valinu en hún var í stíl við restina af fataskápnum sem var allur í þeirri litapallettu. Þegar hún klæddist kjólum voru þeir að- sniðnir úr svo vönduðum efnum að þú gast fundið áferðina í gegnum bíótjaldið. Auk þess klæddist hún gjarnan ljósum síðbuxum með dragtarsniði og ljósum silkiskyrt- um við. Þótt hún bæri mikið af demöntum og fíneríi var hún alls ekki ofhlaðin eins og einkennir stundum forríkar konur. Þegar peningarnir voru búnir breytti hún að sjálfsögðu ekki um fatastíl heldur gekk áfram í sömu vönduðu fötunum sem gerði það að verkum að hún villti algerlega á sér heimildir. Ekki leið á löngu þar til hún fann „ástina“ á ný enda smellpassaði Jasmine inn í fagran heim stjórnmálamanns sem ætlaði sér stóra hluti í pólitík innan fárra ára. Hann var vel menntaður og keyrði um á eyðimerkurlituðum BMW sem var í sama lit og síð- buxurnar hans. Eina skrautfjöðrin sem hann vantaði var glæsileg kona sem hann gæti haft sér við hlið í kom- andi kosningum. Því miður fokk- aðist þetta aðeins upp – eins og gerist yf- irleitt í raunveruleik- anum en ekki bíó- myndum … martamaria@mbl.is Jasmine klæddist jakka frá Chanel alla myndina. Jasmine hélt að hún væri búin að finna "ástina". Eina skrautfjöðrin sem vantaði … 56 10 000 TAXI BSR Góð þjónusta í 90 ár

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.