Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Page 42
*Fjármál heimilannaAnna Gunnhildur gætir þess að sparnaðurinn bitni ekki á hollustunni við matarinnkaupin
Anna Gunnhildur Ólafsdóttir tók nýlega við starfi fram-
kvæmdastjóra Geðhjálpar. Hún ákvað að leggja áherslu á
hollt mataræði og lokkaði manninn með sér í leikfimi til að
öðlast meiri orku til að vinna að því meginmarkmiði félagsins
að bæta hag einstaklinga með geðraskanir og aðstandenda
þeirra um landið allt.
Hvað eruð þið mörg í heimili?
Fimm: ég, Davor maðurinn minn og dætur okkar Halldóra
Ana (16 ára) og Valgerður Marija (14 ára) og labrador-
hundurinn okkar Emil (eins árs).
Hvað er alltaf til í ísskápnum?
Mjólk, viðbit og epli.
Hvað fer fjölskyldan með í mat og hreinlæt-
isvörur á viku?
Um 30.000 kr. að frátöldum mötuneytiskostnaði fyrir aðra
tvífætlinga í fjölskyldunni en mig því ég tek með mér nesti
niður í Geðhjálp.
Hvar kaupirðu helst inn?
Í lágvöruverðsverslunum nema þegar mikið liggur við og
hlaupið er í Nóatún.
Hvað freistar helst í matvörubúðinni?
Fallegir ávextir og grænmeti.
Hvernig sparar þú í heimilishaldinu?
Kaupi kjöt beint frá bónda, nýti grænmeti úr garðinum og
býð upp á heilnæmt drykkjarvatn. Spara þó ekki á kostnað
hollustu, reyni að kaupa matvöru nálægt upprunanum og
forðast óhollustu eins og unnar kjötvörur.
Hvað vantar helst á heimilið?
Man ekki eftir neinu nauðsynlegu í augnablikinu þótt vissu-
lega væri gott að eiga aukahrærivélarskál.
Eyðir þú í sparnað?
Reyni en læðist oft í sparnaðinn til að ná endum saman í lok
mánaðarins.
Skothelt sparnaðarráð?
Beita skynsemi og skipulagi, t.d. með því að ákveða matseð-
ilinn gróflega fram í tímann og fara sjaldan í matarbúðir. Eiga
þó alltaf nóg af mat til að bægja frá hættunni á að þurfa að
leita á náðir skyndibitastaða.
Góð regla er einnig að bjóða upp á grjónagraut einu sinni í
viku.
ANNA GUNNHILDUR HJÁ GEÐHJÁLP
Vikulegur grjónagrautur
Anna og Emil, yngsti heimilismeðlimurinn. Hún leitast við að
skipuleggja matseðil heimilisins fram í tímann til að spara.
Morgunblaðið/Rósa Braga
Nú þegar styttist í jólin eru marg-
ir farnir að huga að því að
skreppa í eins og eina versl-
unarferð til útlanda. Aurapúkinn á
það stundum til að skjótast út
fyrir landsteinana og er löngu bú-
inn að læra að langsamlega snið-
ugast er að halda til Bandaríkj-
anna ef ætlunin er að þræða
verslanirnar.
Búðirnar í Evrópu eru síst
ódýrari en verslanirnar sem finna
má á Laugaveginum og Kringlunni
og vandséð að hægt sé að spara á
innkaupunum í London eða Kö-
ben. Í Bandaríkjunum er verðlagið
hins vegar lágt á flestu sem hug-
urinn girnist og munar þar ekki
síst um lága söluskatta.
Sá kostur fylgir líka flugferðum
til Bandaríkjanna að þar er farang-
ursheimildin tvöfalt drýgri en á
Evrópuleiðunum. Fátt spælir
Aurapúkann meira en að borga
fyrir yfirvigt úti á fugvelli og fátt
stressar hann meira en nagandi
óvissa um það uppi á hótelher-
bergi hvort taskan er yfir þyngd-
armörkunum.
púkinn
Aura-
Betra að versla
vestanhafs
E
f vandlega er leitað má
finna á netinu heilan fjár-
sjóð af fyrsta flokks
menningar- og kennslu-
efni. Þökk sé fórnfúsu hug-
sjónafólki og kröftugum sam-
félögum sjálfboðaliða er hæglega
hægt að nota netið til að læra
nánast hvað sem er, og upplifa
listir og afþreyingu á heimsklassa
fyrir ekki neitt.
Hér er samantekt á mörgum
af bestu vefsíðunum fyrir þá sem
vilja næra andann og efla heilann
en hafa ekki úr mörgum krónum
að spila.
Besti skólinn á netinu
Þegar kemur að því að læra eitt-
hvað nýtt undir góðri leiðsögn
eru fáar vefsíður sem komast
með tærnar þar sem Khan Aca-
demy hefur hælana (www.kha-
nacademy.org). Um er að ræða
verkefni sem hleypt var af stokk-
unum árið 2006 af fræðimann-
inum Salman Khan, sem sjálfur
menntaði sig við MIT og Har-
vard.
Khan-akademían býður upp á
mjög aðgengilegar kennslustundir
í ótal mörgum námsgreinum.
Spannar kennslan jafnólík svið og
hagfræði, sögu, líffræði, eðlisfræði
og stærðfræði svo aðeins séu
nokkur dæmi nefnd. Bæði hentar
vefurinn þeim sem vilja mennta
sig á eigin spýtur, á eigin hraða,
en hefur líka reynst ómetanegt
tæki þeim sem vantar aukinn
stuðning meðfram hefðbundnu
námi.
Hver kennslustund er knöpp og
skýr og framvindan þannig að
auðvelt er hreinlega að gleyma
sér í fræðunum og læra alltaf
meira og meira. Til að auka á
metnaðinn safna notendum stigum
eftir því sem þeir hlýða á fleiri
erindi og allt er þetta ókeypis.
Allir geta lært að forrita
Annar góður og ókeypis kennslu-
vefur er forritunarskólinn Codec-
ademy (www.codecademy.com).
Forritun er lykillinn að tækifær-
um á öllum sviðum en lengi vel
var heimur forritunartungumál-
anna hulinn öðrum en þeim sem
höfðu þrjóskuna til að olnboga
sig í gegnum flóknar bækur eða
fjárfesta í dýrum námskeiðum.
Codecademy leggur áherslu á
kennslu í grunnatriðunum fyrir
þá sem eru algjörir byrjendur í
forritun og er nemandinn leiddur
áfram á mjög þægilegan hátt.
Rétt einsog hjá Khan-akademí-
unni er framvinda námsins vand-
lega útpæld og lærir nemandinn í
mörgum smáum skömmtum. Þeg-
ar einu verkefni er lokið er því
erfitt að hemja sig um að taka
einn skammt í viðbót, og svo
annan og annan og klára á end-
anum stóra pakka af kennsluefni.
Hljóðbækur á færibandi
Eflaust myndum við öll vilja lesa
meira, en amstur daglegs lífs
leyfir oft ekki þann lúxus að
slaka á yfir góðri bók. Þá sjaldan
sem næði gefst er líka gjarnan
meira freistandi að glápa á imba-
kassann eða hugsa um maka og
börn. Hljóðbókin kemur þá til
bjargar og er alveg bráð-
merkilegt hvað má komast í
gegnum mikið magn af texta með
því að hlýða á lesturinn á „dauða
tímanum“ sem svo mikið er af.
Næsta ferð með strætó, eða akst-
urinn til og frá vinnu, nú eða
skokktúrinn og jafnvel heim-
ilistiltektin eru kjörið tækifæri til
að hlusta á góðar bækur.
Verst að hljóðbækur geta verið
dýrar.
Nema hvað LibriVox
(www.librivox.org) er vefsíða þar
sem sjálfboðaliðar setja inn upp-
tökur af bókum og deila með
umheiminum án þess að taka
krónu fyrir. Lesturinn er alla
jafna vandaður og titlarnir skipta
þúsundum. Ekki vantar heims-
bókmenntirnar enda eru þær
flestar ekki lengur verndaðar
með höfundarrétti og kjörnar fyr-
ir svona vef. Má hlusta t.d. á
Stríð og frið í fullri lengd,
gleyma sér yfir verkum Jane
Austen, nú eða leggja á ráðin á
meðan hlýtt er á Furstann eftir
Machiavelli.
Er hægt að hlusta á í tölvunni
eða hlaða upptökunum niður og
setja inn á snjallsímann.
AUSTEN, TOLSTOJ OG ALGEBRA
Menning og fróðleikur
fyrir ekki neitt
HUGSJÓNAFÓLK HEFUR GERT ÓGRYNNI AF KENNSLUEFNI OG HEIMSBÓKMENNTUM
AÐGENGILEGT Á NETINU, ÓKEYPIS OG AUÐFÁANLEGT HANDA HVERJUM SEM ER
Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is
Netið er uppspretta ókeypis fræðsluefnis og menningar, ef maður kann að
leita á réttu stöðunum. Nokkrar valdar gæðasíður skara þar fram úr.