Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Síða 48
48 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28.9. 2013
VIKING POLAR KULDASTÍGVÉL
Fjólublá, bleik, svört og blá.
Stærðir: 21–39.
8.990 KR.
DIDRIKSONS BIGGLES LÚFFUR
Grænar, fjólubláar, bláar, svartar,
rauðar og dökkbláar.
2.990 KR.
25%
AFSLÁTTUR
Á FLÍSFÖTUM
STÆRÐIR 80–170
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
1
3
2
5
8
5
ALLIR ÚT
AÐ LEIKA!
Full búð af vönduðum vörum fyrir hressa krakka.
Úttekt
„Guðni Kolbeins-
son er með gríð-
arlega slakandi
rödd og djúpa.
Hann notar þagnir
sem hefur þau
áhrif að maður
meðtekur það sem
hann segir.
Lög unga fólks-
ins með Gerði G. Bjarklind koma
einnig upp í hugann.Vinaleg rödd
sem maður vill hlusta á,“ segir Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir borg-
arfulltrúi.
„Djúp rödd Péturs Einarssonar er
þá alveg einstaklega minn-
isstæð í svo mörgum hlut-
verkum. Þeir sem yngri
eru þekkja hann helst
sem Mufasa í Konungi
ljónanna. Gleðin í rödd
Guðrúnar Gunn-
arsdóttur kætir mig og
hlátur hennar er smit-
andi. Af þeim sem eru
farnir var Helgi Skúlason
heitinn með einstaka
rödd.“
Pétur Einars-
son í eftirlæti
Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir
Jón Viðar Jónsson leiklistargagnrýnandi segist hafa alist
upp við raddir afburða upplesara á Rás 1. Hann nefnir
fólk eins og Helgu Bachmann, Rúrik Haraldsson, Krist-
björgu Keld, Erling Gíslason, Róbert Arnfinnsson, Flosa
Ólafsson, Lárus Pálsson og Þorstein Ö. „Kristín Anna
Þórarinsdóttir var líka með heillandi rödd, að ég tali
nú ekki um hana Helgu Valtýsdóttur, gædd bæði
mýkt, kynþokka og sterkum karakter; ef ég ætti að
nefna þá kvenrödd sem hefur heillað mig mest í út-
varpi hugsa ég að ég myndi nefna hana.
Af núlifandi útvarpsmönnum myndi ég helst nefna Gunn-
ar Stefánsson og Hjalta Rögnvaldsson. Mér finnst
enginn leikari af yngri kynslóð hafa náð upp í eldra
fólkið; þeir eru allir í bíómyndunum, útvarpið er
að týnast og endurnýjun hefur ekki orðið sem skyldi,
því miður.“
Endurnýjun skortir
Jón Viðar
Jónsson
„Það er alltaf fallegur tónn í rödd Gerðar G. Bjarklind,
alveg sama hvað hún er að lesa. Vinaleg og þægileg
rödd. Svo er hún líka bara svo dæmalaust yndisleg,“
segir Hjörtur Hjartarson fréttamaður.
„Atli Freyr Steinþórsson, þulur á Rás eitt, er með ein-
hverja fallegustu röddina í útvarpi í dag. Djúp, stór og
kraftmikil en um leið skýr, blíð og viðkvæm. Kristófer
Helgason á Bylgjunni er með rödd sem er gerð fyrir út-
varp. Hljómar vel, alltaf „jöfn“ og einhvern veginn alltaf
í sömu tóntegund, sem er mikill kostur.
Það vill oft gleymast hvað Logi Bergmann er með góða rödd vegna
þess hversu góður sjónvarpsmaður hann er. Þetta tvennt hangir auðvit-
að saman. Það er ekki hægt að setja saman svona lista án þess að hafa
Brodda Broddason á honum.“
Gleymum ekki Loga
Hjörtur
Hjartarson
„Nú fyrst ber að
nefna klassískar
raddir; Jón Múla
Árnason og Gerði
G. Bjarklind,“ seg-
ir Sigríður Heim-
isdóttir iðnhönn-
uður.
„Ein rödd sem
ég sakna af ljós-
vökunum er rödd Evu Maríu Jóns-
dóttur. Hún er hlýleg og mjúk og
svo er konan svo fjandi klár. Önnur
rödd sem ég vil nefna er rödd Völu
Matthíasdóttur. Það er svo mikill
hlátur og jákvæðni í henni enda kon-
an óvenju skapgóð. Að lokum vil ég
nefna Jónas Jónasson. Það var ein-
faldlega gott að hlusta á hann.“
Sakna Evu
Maríu
Sigríður
Heimisdóttir
„Það væri hægt að nefna ýmsar raddir en ég ætla að nefna
fjórar,“ segir Þórunn Sigurðardóttir, leikstjóri og fyrrv.
stjórnandi Listahátíðar. „Tveir þeir fyrrnefnu voru þekktir
fyrir afar persónulegar og sérkennilegar raddir. Þorsteinn
Ö. Stephensen hafði hása, djúpa rödd sem gat verið bæði
ógnandi og bljúg.
Þá nefni ég Lárus Pálsson, sem hafði svo blæbrigðaríka og
munúðarfulla rödd að það var sagt að konur yrðu ástfangnar
af honum bara af því að hlusta á hann. Báðir voru þeir miklir
bókamenn og raddir þeirra báru það með sér.
Af núlifandi fólki vil ég nefna tvo fjölmiðlamenn, því að það er þrátt fyrir allt
enn sjaldgæfara að heyra raunveruleg raddgæði hjá fjölmiðlafólki en hjá leik-
urum. Afleitar áherslur og innihaldslaus og flöt framsögn er allt of algengt hjá
báðum hópum. Fyrst nefni ég Brodda Broddason og síðan vil ég nefna Eddu
Andrésdóttur, sem hefur ákaflega fallega rödd og kankvísa og góða framsögn.“
Flöt framsögn of algeng
Þórunn
Sigurðardóttir
„Pétur Pétursson þulur er órjúfanlegur hluti af æsku
minni. Röddin sem maður vaknaði og sofnaði við.
Ef einhver einstaklingur hefur borið viðurnefnið
„Röddin“ með rentu, þá er það hann,“ segir Richard
Scobie kvikmyndagerðarmaður.
„Rödd hans var órjúfanlegur hluti af íslenskri menn-
ingu á liðinni öld – þjóðareign. Sjómenn hafa greint frá
því að þegar þeir nálguðust Ísland, náðu útvarpsbylgj-
unum – þá vissu þeir að þeim var borgið. Pétur var þeim
sem viti á bjargi, fastur punktur í tilverunni.“
Aðalröddin
Richard
Scobie
„Ég vil fyrst nefna
rödd Bjarna Felix-
sonar. Að hlusta á
hann lýsa leikjum,
sérstaklega í út-
varpi, var og er
mjög vinalegt. Í
dag þegar ég er
ekki að keppa
sjálfur hlusta ég
oft á KR-útvarpið bara til að heyra
hann lýsa,“ segir Fjalar Þorgeirs-
son knattspyrnumaður. Hann nefn-
ir einnig íþróttafréttamanninn
Guðmund Benediktsson.
„Rödd Jónasar Jónassonar var
seiðandi og djúp og hálfpartinn dá-
leiddi mann.
Að lokum vil ég svo nefna rödd
Jóns Ólafssonar tónlistarmanns.
Hann hefur skírt söngrödd sína
IKEA-röddina. Hann skýrir það
þannig að rödd hans sé ekkert sér-
staklega góð né falleg en það sé vel
hægt að nota hana, líkt og Billy-
bókaskáp frá IKEA. Rödd hans sem
þáttastjórnanda er frábær.“
IKEA-röddin
er góð
Fjalar
Þorgeirsson
„Rödd Lísu Pálsdóttur er afar sérstök og þægileg áheyrnar.
Hún fær mann til að sperra eyrun,“ segir Yrsa Sigurð-
ardóttir rithöfundur.
„Rödd Örnólfs Thorlacius var samnefnari þáttarins Nýj-
asta tækni og vísindi sem var stórkostlegur. Á sinn skýra og
rólega máta kom rödd hans því áleiðis að þótt margt í heimi
sé mislukkað eru tæknin og vísindin aldrei langt undan með
fyrirheit um að bráðum verði allt betra. Þegar Vigdís Finn-
bogadóttir talar þá hlustar maður. Hún er ávallt svo yfirveg-
uð, vitur og faguryrt að maður veit að það er von á góðu þeg-
ar maður heyrir óm af rödd hennar, maður þagnar og leggur við hlustir.“
Tækniröddin
Yrsa
Sigurðardóttir
„Rödd Jóhanns
Sigurðarsonar
kemur strax upp í
hugann. Þessi
djúpi bassi ómar
svo ótrúlega fal-
lega og gæti auð-
veldlega borist
marga kílómetra,“
segir Unnur Egg-
ertsdóttir söngkona.
„Rödd Halldórs Laxness er líka í
sérstaku uppáhaldi hjá mér. Bæði
talandinn og málfarið voru svo ein-
kennandi fyrir hann og engu öðru
lík. Önnur rödd sem ég fæ ekki nóg
af er röddin hennar Sigríðar Thorla-
cius. Ótrúlega þægilegt að hlusta á
hana tala.“
Bassinn sem
berst langt
Unnur
Eggertsdóttir
„Ég er mjög veikur fyrir yfirveguðum kventónlist-
arnördaröddum hjá RÚV. Gerður G. Bjarklind var
alltaf í uppáhaldi og mér finnst þægilegt að hlusta á
Andreu Jónsdóttur, Lönu Kolbrúnu og Unu Margréti.
Svoleiðis raddir fá mig til að slaka á og láta mér líða
vel,“ segir tónlistarmaðurinn Úlfur Eldjárn.
„Þegar kemur að karlpen-
ingnum nefni ég Finnboga
Pétursson myndlist-
armann, sem hefur
talað inn á fjölda auglýsinga, var til
dæmis lengi Vodafone-röddin.
Helgi Skúlason var og verður
alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér
og svo held ég að fáir toppi
hljómbotninn hjá Ólafi Darra.
Ég verð svo að lokum að
nefna Eggert Þorleifsson, mæli
sérstaklega með talsetningu
hans á Tinna-teiknimynd-
unum.“
Vodafone-röddin
Úlfur
Eldjárn