Morgunblaðið - Sunnudagur - 29.09.2013, Blaðsíða 53
28.9. 2013 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 53
„… þrælspennandi, bráð-
skemmtileg og hjartnæm“
sagði rýnir um áhugaverða
barnasýningu Sölku Guð-
mundsdóttur, Hættuför í Hul-
iðsdal. Hún er sýnd tvisvar sinnum í
Kúlu Þjóðleikhússins á laugardag.
2
Forvitnileg sýning Guð-
rúnar Kristjánsdóttur
myndlistarkonu, Vatn, var
opnuð í Hallgrímskirkju á
Kirkjulistahátíð og stendur fram í
nóvember. „Ég valdi vatn sem við-
fangsefni vegna mikilvægis þess í líf-
ríkinu öllu, í umhverfi mannsins og
menningu,“ segir hún.
4
Fjörug tónlistin úr Skila-
boðaskjóðunni verður flutt
á upphafstónleikum Litla tón-
sprotans í Eldborg klukkan
14 og 16 á laugardag, með vinsælum
söngvurum, í nýrri útsetningu tón-
skáldsins Jóhanns G. Jóhannssonar.
5
Um helgina eru síðustu for-
vöð að sjá sýningu Sigrúnar
Eldjárn, „Teiknivísindi - Sjö
níu þrettán“, í Listsafni ASÍ
við Freyjugötu. Uppistaða sýning-
arinnar er teikningar og er hún eins
konar óður til blýantsins; teiknað er á
pappír, léreft og tré. Myndirnar rað-
ast saman og kallast á við barna-
bókaheim í Arinstofunni.
3
Þessa dagana er sannkölluð
bíóveisla í borginni. Fjöldi sýn-
inga er á Alþjóðlegu kvik-
myndahátíðinni RIFF, Í Há-
skólabíói, Tjarnarbíói og Norræna
húsinu, og einnig gæðamyndir á EFFI-
hátíðinni í Bíó Paradís. Allir í bíó!
MÆLT MEÐ
1
Það er mjög sterkur pólitískur undirtónn í þessu verki, þó efniðsé sett fram með gamansömum hætti. Innihald verksins ájafnmikið erindi nú og fyrir átta árum,“ segir María Reyndal
um leikritið Best í heimi sem flutt verður í Útvarpsleikhúsinu á Rás
1 á morgun, sunnudag, kl. 13. María er bæði leikstjóri og höfundur
útvarpsleikgerðarinnar sem byggist á leikriti eftir Hávar Sig-
urjónsson, Maríu og leikhópinn Rauði þráðurinn sem sett var upp af
leikhópnum 2006.
Að sögn Maríu fjallar verkið um samskipti nýrra Íslendinga við þá
sem eru innfæddir og ákveðna árekstra sem það hefur stundum í för
með sér. „Í verkinu er sögð saga Kim, en tengdamóðir hennar er
ósátt við val sonarins á maka. Þegar Kim síðan eignast barn er hún
blekkt til að semja frá sér forræðið,“ segir María og bendir á að leik-
ritið byggist á persónulegum reynslusögum.
Leikendur verksins eru Arndís Hrönn Egilsdóttir, Brynhildur
Guðjónsdóttir, Elma Lísa Gunnarsdóttir, Dimitra Drakopoulou, Hall-
dór Gylfason, Kristbjörg Kjeld, Pierre Alan Giraud, Sólveig Guð-
mundsdóttir, Tuna Dís Metya, Waraphorn Chanse, Hekla Kormáks-
dóttir og Hrafnhildur Orradóttir. „Leikararnir koma auk Íslands frá
Taílandi, Tyrklandi, Frakklandi og Grikklandi. Það er frábært að
geta auðgað íslenskt leikhúslíf með erlendum starfskröftum. Einnig
er það mikill fengur fyrir hlustendur Útvarpsleikhússins að heyra ís-
lenskuna í meðförum leikara sem ekki hafa íslensku að móðurmáli,“
segir María og bætir við: „Þegar við settum sýninguna upp fyrst árið
2006 ætluðu erlendu leikararnir varla að trúa því að þeir gætu leikið
á íslensku á íslensku leiksviði. En þegar til kastanna kom tókst þetta
með miklum ágætum, sem kom þeim ánægjulega á óvart og jók
sjálfstraust þeirra við að tala íslensku til muna.“
Þess má að lokum geta að leikhópurinn Rauði þráðurinn er þegar
farinn að leggja drög að næstu uppsetningu sinni undir stjórn Maríu
Reyndal, en sú sýning nefnist Næstbest í heimi. silja@mbl.is
LEIKRITIÐ BEST Í HEIMI FLUTT Í ÚTVARPSLEIKHÚSINU
Sterkur pólitískur undirtónn
BEST Í HEIMI FJALLAR UM SAMSKIPTI NÝRRA ÍSLEND-
INGA VIÐ ÞÁ SEM INNFÆDDIR ERU OG ÁKVEÐNA
ÁREKSTRA SEM STUNDUM VERÐA.
Viðar Eggertsson, leikhússtjóri Útvarpsleikhússins, og María Reyndal
leikstjóri (lengst til vinstri) ásamt hluta leikhópsins Rauða þráðarins.
Morgunblaðið/Eggert
kvikmynda hana – myndin er bókstaflega
tekin í myrkri að talsverðu leyti. En ég var
mjög ánægð með útkomuna, og eins með
móttökurnar og þá ekki síst í Póllandi.“
En hana langaði hinsvegar til að segja
sögu tékkneska námsmannsins Jan Palach
sem kveikti í sér árið 1969, til að mótmæla
stjórnmálaástandinu í Tékkóslóvakíu. Hún
var við nám í Prag á þessum tíma.
„Mig hefur lengi langað til að segja þá
sögu á einhvern hátt. Við Milan Kundera
vorum miklir vinir þegar hann var að skrifa
Óbærilegan léttleika tilverunnar, ég var
fyrsti lesari bókarinnar og langaði að gera
mynd byggða á henni, en síðan komu banda-
rískir framleiðendur til sögunnar. En þessi
reynsla mín í Tékklandi, af því að búa undir
oki kommúnismans, reynslan af þessari þrúg-
andi kúgun og spillingu, og hugrekki ein-
staklinganna þar, mótaði sýn mína á heiminn.
Ég fékk gott handrit upp í hendurnar og
tókst að gera þessa mynd á þann hátt sem
ég tel að ég ein hefði getað gert.“
Erfiðara fyrir konur en karla
Holland segir konur eiga erfiðara uppdráttar
en karlar í heimi kvikmyndanna.
„Það er erfiðara fyrir konur að sýna fram-
leiðendum, dreifingaraðilum og gagnrýn-
endum fram á mikilvægi verkefna; að maður
hafi eitthvað mikilvægt að segja. Þá er fyr-
irkomulagið við kvikmyndagerð ekki fjöl-
skylduvænt. Konur þurfa að gera miklu bet-
ur en karlar til að fá frábæra gagnrýni og til
að myndum þeirra sé boðið á mikilvægustu
hátíðirnar. Ég þekki margar sem náðu ekki
að komast gegnum þennan múr, þrátt fyrir
mikla hæfikleika, þeim fannst þetta einfald-
lega of erfitt og gáfust upp.“
„Konur þurfa að gera miklu betur en karlar til að fá frábæra gagnrýni og til að myndum þeirra sé
boðið á mikilvægustu hátíðirnar,“ segir Agnieszka Holland um stöðu kvenna í kvikmyndaheiminum.
AFP
Kvikmyndaleikstjórinn og handritshöf-
undurinn Agnieszka Holland er heið-
ursgestur Evrópskrar kvikmyndahátíðar
(EFFI) sem nú stendur yfir í Bíó Paradís.
Kl. 15 á laugardag verður kvikmynd
hennar Í myrkri (2011) sýnd með sjón-
lýsingu og verður Holland viðstödd og
ræðir við gesti. Á sunnudag verður nýr
þríleikur hennar, Brennandi runni,
sýndur í þremur hlutum og hefst sýn-
ingin klukkan 16. Mun leikstjórinn ræða
við áhorfendur að sýningu lokinni..
Holland leikstýrði fyrstu kvikmynd
sinni árið 1978 og hefur síðar komið að
fjölda mynda og sjónvarpsþátta austan
hafs og vestan. Meðal kunnustu mynda
hennar eru Angry Harvest (1985),
Europa Europa (1991) og Olivier,
Olivier (1992). Hún hefur nokkrum
sinnum verið tilnefnd til Óskars-
verðlauna. Holland hefur skrifað hand-
rit að kvikmyndum kollega sinna, vann
til að mynda með Kieslowski að hand-
riti Þrír litir: Blár, og að þremur kvik-
myndum Andrzejs Wajda.
Einn virtasti
leikstjóri Evrópu