Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2004, Blaðsíða 5
AVARP FORMANNS / XVI. ÞING FÉLAGS ÍSLENSKRA LYFLÆKNA
XVI. þing Félags íslenskra lyflækna
á Sauðárkróki
Þing Félags íslenskra lyflækna sem nú fer í hönd
er hið sextánda í röðinni og að þessu sinni haldið
á Sauðárkróki. Þing félagsins eru helsti vettvang-
ur fyrir lyflækna hér á landi til að kynna vísinda-
rannsóknir og fjalla um mikilvæg málefni sem
lúta að starfi þeirra. Einnig gefa þing þessi kost
á skemmtilegum samverustundum með starfs-
félögum og vinum í heillandi íslenskri náttúru,
enda hafa þau ævinlega verið haldin úti á lands-
byggðinni.
Samþykkt hafa verið 79 ágrip til kynningar á
þinginu. Endurspeglar sá fjöldi verulega grósku
í vísindastarfi lyflækna og er ekki að sjá að þeir
erfiðleikar sem steðja að Landspítala hafi dregið
úr virkni lækna á þessum vettvangi. Haldið verður
áfram á þeirri braut sem mörkuð var á síðasta
þingi, að leggja aukna áherslu á kynningu vísinda-
rannsókna með veggspjöldum og verða þau alls
55. Samhliða fækkar munnlegum kynningum og
verða þær nú 24. Að venju verða veitt verðlaun
fyrir framúrskarandi rannsókn ungs læknis og
fyrir besta framlag læknanema.
A þessu þingi verður sú nýbreytni að ungir
vísindamenn úr röðum lyflækna verða kynntir
og mun Sigurður Guðmundsson landlæknir
stjórna þeirri dagskrá. Að þessu sinni verður
fjallað um tvo lækna sem unnu til verðlauna
fyrir rannsóknir sínar á þingi Félags íslenskra
lyflækna fyrir 10 árum og munu þeir greina frá
vísindastörfum sínum. Læknamir sem hér um
ræðir eru Helga Ágústa Sigurjónsdóttir sem
undanfarin ár hefur stundað sérfræðinám í inn-
kirtla- og efnaskiptasjúkdómum á Sahlgrenska
háskólasjúkrahúsinu í Gautaborg og Magnús
Karl Magnússon, sérfræðingur í blóðmeinafræði,
sem stundaði nám í Bandaríkjunum og er nú
kominn til starfa á Landspítala.
Tveir gestafyrirlestrar verða á þinginu. Vil-
mundur Guðnason, forstöðulæknir Hjartavernd-
ar, mun fjalla um hugmyndafræði og fram-
kvæmd öldrunarrannsóknar Hjartavemdar og
fyrstu niðurstöðum hennar. Þá mun Yogen Saun-
thararajah, sérfræðingur í blóð- og krabbameins-
lækningum við University of Illinois í Chicago,
flytja fyrirlestur er nefnist New insights into the
pathophysiology of myelodysplastic syndrome.
Á þinginu verður málþing um lyflækningar í
Evrópu þar sem m.a. verður greint frá starfsemi
European Federation of Internal Medicine
(EFIM) en Félag íslenskra lyflækna hlaut form-
lega aðild að þessum samtökum í september
2003. Undirritaður mun fjalla um hlutverk og
stefnu Félags íslenskra lyflækna og síðan mun
Christopher Davidson, ritari EFIM, fjalla um
meginviðfangsefni og stefnu EFIM auk þess að
varpa ljósi á stöðu lyflækninga í Evrópu. Einnig
verður haldið málþing sem ber yfirskriftina
Heilbrígðiskerfi í uppnámi - hvernig geta lœknar
sparað? Á undanförnum árum hefur sívax-
andi kostnaður vegna heilbrigðisþjónustu verið
ofarlega á baugi hér á landi eins og annars staðar á
Vesturlöndum. f okkarsamfélagi hefurspjótunum
verið beint að læknum og því jafnvel verið haldið
fram að mikla aukningu í lyfjakostnaði megi
að hluta rekja til óskynsamlegra lyfjaávísana
þeirra. Vaxandi útgjöld til heilbrigðismála eru
að sjálfsögðu viðkvæmt málefni því hafa verður
í huga að læknar eru skuldbundir til að veita
sjúklingum sínum bestu meðferð sem völ er á.
Jafnframt er það skylda lækna að stuðla að því
að fjármunum sem varið er til heilbrigðismála
sé ráðstafað á hagkvæman hátt. Á málþinginu
munu valinkunnir íslenskir lyflæknar fjalla um
ýmsar hliðar þessa rnáls, s.s. hvort klínískar
leiðbeiningar geti leitt til aukinnar hagkvæmni,
skynsamlega notkun lyfja, markvissa notkun
greiningarrannsókna og stöðu læknisins sem
kjölfestu í heilbrigðiskerfinu.
Vísindaþing eins og það sem hér er fjallað
um yrði vart haldið ef ekki kæmi til rausnarlegur
stuðningur lyfjafyrirtækja og eru þeim færðar
þakkir fyrir. Að venju munu lyfjafyrirtæki standa
fyrir kynningu á lyfjum sínum í tengslum við
þingið.
Samhliða þinghaldi verður efnt til vandaðar
skemmtidagskrár á síðkvöldum. Er það von
mín að þátttakendur þessa XVI. þings Félags
íslenskra lyflækna muni eiga góðar stundir í
Skagafirði þar sem saman fer mikil náttúrufegurð
og stórbrotin saga sem nær allt aftur til daga
landnámsmanna.
Sjáumst á Sauðárkróki!
Runólfur Pálsson
formaður Félags íslenskra lyflækna
Runólfur
Pálsson
Læknablaðið/Fylgirit 49 2004/90 5