Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2004, Blaðsíða 48

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2004, Blaðsíða 48
SERLYFJATEXTAR ZARATOR - Pfizer. Hvertafla inniheldur: Atorvastatinum INN, kalsíumsalt (þríhýdrat), samsvarandi Atorvastatinum INN 10 mg, 20 mg, 40 mg eða 80 mg. Ábendingar: Of hátt heildarkólesteról, LDL-kólesteról, apólípóprótein B og þríglýseríð hjá sjúklingum með kólesterólhækkun af ókunnri orsök,arfgenga(fjölskyldutengda) kólesterólhækkun.blandaöa blóöfituhækkun(svo sem lla- og llb-gerð skv, Flokkun Fredericksons), þegar viöunandi árangur hefur ekki náðst með sérstöku mataræöi eða öðrum ráðstöfunum en lyfjagjöf. Skammtar handa fullorðnum: Sjúklingur á að byrja á stöðluöu kólesteróllækkandi mataræði áður en honum er gefið atorvastatín og ætti að halda því áfram á meðan á meöferö meö atorvastatíni stendur. Venjulegur upphafsskammtur er 10 mg einu sinni á dag. Skammta á að ákveðafyrir hvern einstakling með tilliti til upphaflegs LDL-kólesterólgildis, markmiði meöferöarinnar og svörun sjúklings. Skammta skal aðlaga (leiörétta) með 4 vikna millibili eða sjaldnar. Hámarksskammtur er 80 mg einu sinni á dag. Lyfið má taka hvenær sólarhringsins sem er með eða án fæöu. Ekki þarf að breyta skömmtum vegna aldurs eða nýrnastarfsemi. Börn: Takmörkuð reynsla er af notkun aton/astatins hjá börnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins, virkur lifrarsjúkdómur eða óskýrð viðvarandi þreföld hækkun á transamínösum I blóði, vöðvakvillar (myopathia), meðganga, brjóstagjöf. Konur á barneignaraldri verða að nota getnaðarvarnir. Varnaðarorð og varúðarreglur: Áhrif á lifur. Rannsaka skal lifrarstarfsemi áður en meðferð hefst og síðan reglulega meðan á meöferö stendur. Gera skal prófanir á lifrarstarfsemi sjúklinga ef merki eða einkenni um hugsanlegar lifrarskemmdir koma fram. Hækki transamínasagildi skal fylgjast með sjúklingum þar til gildi verða eðlileg. Hækki transamínasar meira en þrefalt miðað viö efri mörk meðalgilda er mælt með því að minnka skammta eöa stöðva Zarator gjöf. Nota skal Zarator með varúö hjá sjúklingum sem neyta mikils magns áfengis og/eða hafa fengið lifrarsjúkdóm. Áhrif á beinagrindarvöðva Atorvastatín, eins og aðrir HMG CoA redúktasa hemlar, getur í einstaka tilvikum haft áhrif á beinagrindarvööva og valdið vöðvaþrautum, vöðvaþrota og vöðvakvillum sem geta leitt til rákvöðvalýsu, sem er lífshættulegt ástand sem einkennist af hækkuðu CPK-gildi (meiri en tíföld efri mörk mæligilda), vöðvarauða í blóði (myoglobinaemia) og vöðvarauðamigu (myoglobinuria) sem getur valdið nýrnabilun. Gera þarf sjúklingum grein fyrir mikilvægi þess að tilkynna strax ef þeir finna fyrir vöövaverkjum, stífni eöa máttleysi sérstakelga ef lasleiki eöa hiti fylgir. Ef klinisk merki um hækkaö CPK-gildi (meiri en tíföld efri mörk mæligilda) eöa rákvöðvalýsu eða grunur um rákvöðvalýsu koma fram á aö hætta notkun atorvastatins. Eins og á við um aðra HMG CoA redúktasa hemla hefur verið greint frá tilvikum um rákvöövalýsu (sem sum leiddu til bráðrar nýrnabilunar vegna vöðvarauðamigu) eftir notkun atorvastatins. Líkur á rákvöövalýsa aukast þegar atorvastatín er gefiö samtímis lyfjum eins og ciklósporini, erýtrómýsini, klaritrómýsíni, ítrakónasóli, ketókónasóli, nefasódóni, niasín fíbrötum og HlV-próteasa hemlum. Milliverkanir: Hætta á vöðvakvilla eykst við meðferð með öðrum lyfjum í þessum flokki ef cýklóspórín, fíbröt, erýtrómýsín, azól-sveppalyf eða niasín eru tekin inn samtímis og hefur í örfáum tilvikum leitt til rákvöðvasundrunar (rhabdomyolysis) auk skertrar nýrnastarfsemi af völdum vöðvarauðamigu (myoglobinuria). Atorvastatín umbrotnar fyrir áhrif cýtókróm P450 3A4. Með hliösjón af reynslu við notkun annarra HMG-CoA hemla skai gæta varúðar þegar Zarator er gefið samtímis cýtókróm P450 3A4 hemli (t.d. cýklóspórini, makróliðsýklalyfjum og azól-sveppalyfjum). Áhrif efna, sem ön/a cýtókróm P450 3A4 (t.d. rifampicín eðafenýtóin), á atorvastatín eru ekki þekkt. i klínískum rannsóknum sáust engar klinískt marktækar milliverkanir þegar atorvastatín var gefiö samtímis blóðþrýstingslækkandi lyfjum eða blóðsykurlækkandi lyfjum. Við notkun atorvastatíns og dígoxíns samtimis um nokkurt skeið eykst stöðug blóöþéttni dígoxíns um það bil um 20%. Fylgjast skal náiö með sjúklingum á dígoxinmeðferð. Viö samtímis notkun atorvastatíns og getnaðarvarnalyfs til inntöku jókst þéttni noretíndróns og etinýlestradióls. Hafa skal þessar hækkanir á þéttni í huga þegar skammtar getnaðarvarnalyfja til inntöku eru ákveönir. Blóðþéttni atorvastatins lækkaöi (u.þ.b. 25%) þegar kólestípól var gefið með Zarator. Verkun á lipíö varð hins vegar meiri þegar atorvastatín og kólestipól voru gefin saman en þegar efnin eru gefin hvort fyrir sig. Viö samtímis gjöf atorvastatíns og sýrubindandi mixtúra, sem innihalda magnesíum og álhýdroxíð, lækkaði blóöþéttni atorvastatíns u.þ.b. 35%; lækkun á LDL-kólesteróli breyttist hins vegar ekki. Við samtímis notkun atorvastatins og warfaríns styttist prótrombintími lítillega fyrstu daga meöferöarinnar en varö aftur eðlilegur innan 15 daga. Engu að síður skal fylgjast náið meö sjúklingum á warfarín meðferö þegar atorvastatíni er bætt við. Meðganga og brjóstagjöf: Lyfið getur valdið fósturskemmdum og meðganga og brjóstagjöf eru frábendingar við notkun atorvastatíns. Konur á barneignaraldri eiga að nota öruggar getnaöarvarnir. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir sem búast má við eru einkenni frá meltingarfærum þar á meðal hægöatregða, vindgangur, meltingartruflanir, kviöverkir sem venjulega lagast við áframhaldandi meðferð. Innan við 2% sjúklinga hættu þátttöku í klínískum rannsóknum vegna aukaverkana, sem tengdust Zarator. Eftirfarandi listi yfir aukaverkanir er byggður á niðurstöðum klíniskra rannsókna og aukaverkunum sem skráðar hafa veriö eftir markaðssetningu lyfsins. Áætluö tíðni tilvika e r flokkuð samkvæmt eftirfarandi reglu: algengar (>1/100, <1/10); sjaldgæfar (>1/1.000,<1/100); mjög sjaldgæfar (>1/10.000,<1/1.000); koma örsjaldan fyrir (<1/10.000). Meltingarfæri: Algengar: Hægöatregða, vindgangur, meltingartruflun, ógleði, niðurgangur. Sjaldgæfar: Lystarleysi, uppköst. Blóð og eitlar: Sjaldgæfar: Blóðflagnafæð. Ónæmiskerfi: Algengar: Ofnæmi. Koma örsjaldan fyrir: Bráðaofnæmi. Innkirtlar: Sjaldgæfar: Hárlos, of miklll eöa of litill blóðsykur, brisbólga. Geðræn vandamál: Algengar: Svefnleysi, Sjaldgæfar: Minnisleysi. Taugakerfi: Algengar: Höfuðverkur, sundl, breytt húðskyn. Sjaldgæfar: Úttaugakvilli. Lifur og gall: Mjög sjaldgæfar: Lifrarbólga, stíflugula. Húð og undirhúð: Algengar: Húðútbrot, kláöi. Sjaldgæfar: Ofsakláði. Koma örsjaldan fyrir: Ofsabjúgur, útbrot með blöðrum (þ.m.t. regnbogaroðasótt, Steven-Johnsons heilkenni og drep í húðþekju). Stoðkerfi: Algengar: Vöðvaþrautir, liðverkir. Sjaldgæfar: Vöðvakvilli. Mjög sjaldgæfar: Vöðvaþroti, rákvöðvalýsa. Æxlunarfæri: Sjaldgæfar: Getuieysi. Almennar: Algengar: Þróttleysi, brjóstverkur, bakverkur, bjúgur á útlimum. Sjaldgæfar: Lympa, þyngdaraukning. Rannsóknir: Hækkun á transamínösum í sermi hefur verið skráð hjá sjúklingum sem fá Zarator líkt og af völdum annarra HMG- CoA redúktasa hemla. Þessar breytingar voru oftast vægar og timabundnar og ekki reyndist þörf á að hætta meðferð. Hækkun á transamínösum í sermi sem hafði klíníska þýðingu (hærri en þreföld efri mörk meðalgilda) kom fram hjá 0,8% sjúklinga sem fengu Zarator. Þessar hækkanir voru skammtaháðar og gengu til baka hjá öllum sjúklingunum. I klinískum rannsóknum kom fram hækkun á kreatin fosfókínasa í sermi (CPK)-gildum (hærri en þreföld efri mörk meðalgilda) hjá 2,5% sjúklinga sem fengu Zarator sem er sambærilegt og af völdum annarra HMG-CoA redúktasa hemla. Meira en tíföld gildi umfram efri meðalgildi komu fram hjá 0,4% sjúklinga sem fengu Zarator. Pakkningar og verð 1. mars 2004: Töflur 10 mg: (þynnupk.), 30 stk. 4.756 kr., 100 stk. 13.339 kr. Töflur 20 mg: (þynnupk.), 30 stk. 6.805 kr., 100 stk. 19.389 kr. Töflur 40 mg: (þynnupk.), 30 stk. 10.039 kr., 100 stk. 29.503 kr. Töflur 80 mg: (þynnupk.), 30 stk. 10.219 kr., 100 stk. 29.541 kr. Sjá nánari upplýsingar um lyfið í Sérlyfjaskrá. Lyfið er lyfseöilsskylt og greiðist samkv. greiðslufyrirkomulagi 0 í lyfjaverðskrá. Pfizer, einkaumboö á íslandi: PharmaNor hf., Hörgatúni 2, 210 Garðabær. Heimildir: 1) The CURVES Study. Jones P, et al. Am Jour Cardiol 1998;(81):582-587. 2) STELLAR. Jones, et al. Am J Cardiol 2003;93:152-160. 3) Law, et al. BMJ 2003. 326;28 JUNE:1-7. 4) Effekt mált pá maksimal reduction af LDL. 5) Athyros V, et al. Curr Med Res Opin 2002.18(4):220-228. 6) Huninghake D, et al. J Fam Pract 1998;(47)349-356. 7) Aguilar-Salinas AC, et al. Atherosclerosis 2000;152:489-496. 8) The ASCOT study. Sever PS, et al.Lancet 2003:361:1149-1158. 48 Læknablaðið/Fylgirit 49 2004/90

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.