Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2004, Blaðsíða 10

Læknablaðið : fylgirit - 01.06.2004, Blaðsíða 10
ROFAR TIL! r ^ Gabapentin NM Pharma ÖFLUGT LYF VIÐ FLOGAVEIKI OG TAUGAVERKJUM Gabapentin NM Pharma Hvert hylki innheldur ibapentin, 300 mg, 400 mg. MM Pharma Ábendingar: Viöbótarmeðferö viö hlutaflogum (partial epileptic seizures) þegar ekki hefur náðst viöunandi árangur með öörum flogaveikilyfjum. Til meðferðar á einkennum taugahvots í kjölfar herpessýkingar (post-herpetic neuralgia). Skammtar og lyfjagjöf: Venjulegur skammtur er 1200-2400 mg/dag, gefið í þremur jöfnum skömmtum yfirsólarhringinn. Sumum sjúklingum nægir900 mg/dag. Til að fyrirbyggja flog á ekki aö liöa lengri tími en 12 klst. milli lyfjagjafar að kvöldi og skammts næsta morgun. Gabapentin má taka inn óháð máltíðum. Fullorðnir og börn eldri en 12 ára: Upphafsskammtur er 900 mg eða minni, gefið í þremur jöfnum skömmtum yfir sólarhringinn. Síðan má auka skammtinn um 300- 600 mg/dag þar til hæfilegum viðhaldsskammti er náö. Ef stærri skammtar eru notaðir og skammtaaölögun er hröö eykst hættan á svima meðan á aölögun stendur. Ekki er nauðsynlegt aö fylgjast með plasmaþéttni Gabapentin til aö ná viöunandi meðferð. Taugahvot eftir herpessýkingar (post-herpetic neuralgia): Aðlaga þarf viöhaldsskammt eftir klíniskum áhrifum og samkvæmt leiðbeiningum hér aftar. Viöunandi árangur næst vanalega með notkun 1800-2400 mg/dag, en í sumum tilvikum gæti þurft skammta allt að 3600 mg/dag. Fullorðnir, eldrien 18ára.'Aðlögun að réttum viðhaldsskammti næst með eftirfarandi hætti: Dagur 1: 300 mg að kvöldi. Dagur 2: 600 mg, gefið í tveimur jöfnum skömmtum yfir sólarhringinn. Dagur 3: 900 mg, gefiö í þremur jöfnum skömmtum yfir sólarhringinn. Síöan er skammturinn aukinn um 300 mg/dag þar til viðunandi viöhaldsskammti er náð. Ekki eiga að líða meira en 12 klst. milli kvöldskammts og morgunskammts næsta dags. Aldraðirogsjúklingar meðskerta nýrnastarfsemi: Sjúklingar með skerta nýrnastarfsemi þurfa minni skammt. Mögulega þarf að minnka skammta hjá öldruðum þar sem nýrnastarfsemi er oft skert. Sjúklingariblóðskilun: I upphafi blóðskilunar er gefið 100-300 mg sem viðhaldskammtur eftir hverjar 4 klst. í blóðskilun. Nánari upplýsingar um skammta og skammta aölögun eru í sérlyfjaskrártexta. Frábendingar: Ofnæmi fyrir gabapentíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins. Varnarorö og varúöarreglur við notkun: Gabapentin er venjulega ekki taliö áhrifarikt viö meöferð störufloga (absence seizures) og getur jafnvel valdið versnun þessara floga hjá sumum sjúklingum. Þvi skal nota gabapentín með varúö hjá sjúklingum meö blönduö flog, þar með talin störuflog. Nauðsynlegt er að aðlaga skammt gabapentíns hjá sjúklingum með skerta nýrnastarfsemi. Hætta á flogum minnkar hjá sumum sjúklingum sem ekki hafa svarað fyrri meðferð. Ef viðunandi árangur næst ekki skal hætta meðferð með gabapentíni smám saman. Ef meöferö er snögglega hætt getur það leitt til aukinnar tíðni floga og jafnvel valdið flogafári. Milliverkanir: Sýrubindandi lyf draga úr aðgengi gabapentins um allt aö 24%. Þvi er ráölagt að taka gabapentín inn um tveimur klst. eftir töku sýrubindandi lyfja. Engin breyting veröur á nýrnaútskilnaði gabapentíns við gjöf próbeneciðs. Sú örlitla minnkun á nýrnaútskilnaði gabapentíns sem sést hefur viö samtímis gjöf cimetidins er ekki talin hafa kliniska þýöingu. Niöurstööur prófa á prótíni i þvagi geta ranglega oröið jákvæðar. Gabapentin milliverkar ekki viö fenýtóin, valpróin sýru, karbamazepín, fenóbarbital eða getnaöarvarnarlyf. Neysla fæöu hefurengin áhrifá lyfjahvörf gabapentíns. Meöganga og brjóstagjöf: Meðganga:Engar rannsóknir hafa verið gerðar á notkun gabapentíns hjá þunguöum konum. Rannsóknir á dýrum hafa sýnt fram á hættu fyrir fóstriö við gjöf gabapentíns. Almennt hefur verið sýnt fram á hærri tiðni vanskapana (2-3 föld) hjá börnum þegar flogaveikilyf eru notuð á meögöngu miðað við börn mæöra sem ekki hafa flogaveiki. Algengustu gallarnir eru: I miðtaugakerfinu (heilaleysi (anencephaly), vatnshöfuð (hydrocephaly), höfuösmæö (microcephaly), klofinn hryggur), hjartagallar, vansköpun beina, þvagrásargalli (hypospadi) og skarð í vör. Skert greind eða seinkun andlegs þroska og hreyfigetu getur komið fram hjá börnunum. Ómeðhöndluð flog geta þó valdiö bæði móöur og barni meiri skaða. Hætta á fósturskaða er í lágmarki þegar aðeins eitt flogaveikilyf er gefið í lágum skömmtum ásamt fólinsýru uppbót fyrir getnaö og á meðgöngu. Meta skal kosti og galla meöferöar áöur en gabapentín er gefiö þungaöri konu. Brjóstagjöf: Gabapentín berst í brjóstamjólk og ekki er hægt að útiloka áhrif gabapentíns á brjóstmylking. Þvi ættu konur meö barn á brjósti ekki að nota gabapentín. Gabapentín berst i brjóstamjólk og er mjólkur/plasma hlutfalliö að meöaltali 0,73. Aætlaöur skammtur sem brjóstmylkingur er útsettur fyrir er talinn vera 1,2 mg/kg/dag. Akstur og notkun véla: Gabapentin getur dregið úr hæfni til aksturs eða notkunar véla. Gabapentín hefur áhrif á taugakerfið og getur valdiö sljóleika, svima og öðrum svipuðum einkennum. Aukaverkanir: Aukaverkanir eru algengar við meðferð flogaveikilyfja, einkum minnkuö árvekni, einbeitingarhæfni og ósamhæföar hreyfingar. Þegar gabapentín hefur veriö notað meö öðrum flogaveikilyfjum hafa aukaverkanir komið fram hjá um 50% sjúklinga. Aukaverkanir minnka venjulega eftir 2 vikur. Algengar(1-10%): Almennar: Svefndrungi, sljóleiki, þreyta, syfja, svimi, höfuöverkur, svefnleysi, þyngdaraukning, lystarleysi. Taugakerfi: Ósamhæfðar hreyfingar, augntin (nystagmus), skjálfti, minnisleysi, truflanir i miötaugakerfi, náladofi (paresthesia). Meltingarfæri: meltingartruflanir, uppköst, ógleði. Geðræn vandamál: taugaveiklun, tilfinningarlegur sljóleiki. Augu: Tvisýni, sjóntruflanir. Stoðkerfi: liöverkir, vöðvaþrautir, bakverkur. SjaldgœfarfO, 7-7%J:Almennar: Útlimabjúgur (peripheral oedema). Meltingarfæri: munnþurrkur, afmyndaðar tennur. Geðræn vandamál: Þunglyndi. Blóö-og eitlakerfi: Hvítfrumnafæð. Húð: Kláði. Mjög sjaldgœfar (0,01-0,7%j;Meltingarfæri: brisbólga. Ofnæmisviöbrögö (Steven-Johnsone heilkenni og regnbogaroðasótt (erythema multiforme)) vegna gabapentin meðferðar eru mjög sjaldgæf. Klinisk áhrif á rannsóknarstofumœlistœrðir: Skýrt hefurverið frá aukinni virkni lifrarensima þegar gabapentín er notaö í samsetningum með öðrum flogaveikilyfjum. Ofskömmtun: Ekki hefur orðið vart viö bráöa, lífshættulega eitrun við ofskömmtun gabapentíns i skömmtum allt að 49 g á dag. Einkenni ofskömmtunar eru: Svimi, tvisýni, þvoglumæli, svefndrungi, sinnuleysi og vægur niöurgangur. Sjúklingar ná sér eftir meðferö við einkennum. Hægt er að fjarlægja gabapentín meö blóöskilun. Pakkningar og hámarksverö í smásölu 1. apríl 2004: Hylki, hörö 300 mg: 100 stk. 8.586 kr. Hylki, hörð 400 mg: 100 stk. 11.130 kr. Afgreiöslutilhögun: R. Greiðsluþátttaka: E. Markaösleyfishafi: Generics [UK] Ltd. HVÍTA HÚSIÐ / SÍA

x

Læknablaðið : fylgirit

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.