Jón á Bægisá - 30.09.2004, Blaðsíða 57
Fjöltyngdar bókmenntir: Útópía eða veruleiki?
Snöggsoðnar, tilbúnar þýðingar á íslenskri ljóðlist í neytendapakkning-
um á ensku á vefnum gætu borið með sér tálsýnina um fjöltyngda útópíu.
En eins og við höfum séð er veruleikinn flókinn: síbreytilegt mynstur skyld-
leika og bandalaga, drottnunar og undirskipunar, samsinnis og yfirtöku.
Brasilísk módernísk skáld á öndverðri tuttugustu öld eins og Carlos
Drummond de Andrade og Manuel Bandeira bjuggu til setningarnar „Só
a antropofagia nos une. Socialmente. Economicamente. Filosoficamente.“
(Aðeins mannátið sameinar okkur. Félagslega. Efnahagslega. Heimspeki-
lega.) Mannát, að eta og melta aðrar manneskjur, er sterk mynd af menn-
ingarlegum tengslum og samskiptum og þá ekki síst þýðingum. Manifesto
Antropófago, þ.e.a.s. Mannátsstefnuyfirlýsingin, reyndi að skapa eyðingu
evrópskrar siðmenningar og setja í stað hennar óbælda, andvaldsskipaða
menningu. Eins og Candido segir: „Neste sentido, combateram a mania
gramatical e pregaram o uso da língua segundo as caraterísticas diferencais
do Brasil, incorporando o vocabulário e a sintaxe irregular de um país
onde as raq:as e as culturas se misturam."16 (I þessum skilningi börðust þeir
við æðið eftir málfræðileikanum og hvöttu til þess að tungumálinu væri
beitt út frá ólíkum einkennum Brasilíu, og tóku þá til orðaforða og
óreglulegrar setningagerðar í landi þar sem mikil blöndun á sér stað milli
kynþátta og menninga.) Þetta gæti verið lýsing á slam-ljóðlist: Berst gegn
valdi, er fyrst og fremst munnleg, óregluleg að setningagerð og málfræði og
óbælanleg. Þessi höfnun evrópskrar nýlendumenningar í Brasilíu á
öndverðri tuttugustu öld getur, þótt kaldhæðnislegt sé, einnig þjónað sem
slagorð fyrir síðari tíma margmenningu Evrópusambandsins. Samkennd
með samsinnandi mannáti á kannski langt í land til hinnar fjöl-
menningarlegu útópíu en slík samkennd endurspeglar þó kannski mun
nákvæmar þau tengsl milli menninga sem stunduð eru með ljóðlist í dag.
Garðar Baldvinsson þýddi
16 A. Candido (1998). Iniciafao d Literatura Brasileira (Resumo para principantes). 2. útg.
Háskólinn í Sao Paulo, Humanitas Publicagoes, bls. 70.
— Menninga(r)miðlun í ljóði og verki
55