Jón á Bægisá - 30.09.2004, Blaðsíða 130
Gert Kreutzer
„Bókmenntaparadís með áhyggjur af nýliðun?“ var almenns eðlis, en
greinar á borð við „Nonni og íslenskar bókmenntir“ (1995), „Fyrstu upp-
köst Steins Steinarrs að Tímanum og vatninu ‘ (1996) eða „Syngdu, Detti-
foss, syngdu hátt ... Fossar í íslenskri ljóðlist 19. aldar“ (1998) snerust um
sérhæfðara efni. Mér hefur alltaf þótt mikilvægt hið vanþakkláta verk (þeg-
ar plássið er naumt skammtað) að skrifa greinar í alfræðirit. Þannig birtust
styttri og alllangar greinar um Einar Benediktsson, Guðberg Bergsson,
Gunnar Gunnarsson, Jónas Hallgrímsson, Snorra Hjartarson, Svövu
Jakobsdóttur, Matthías Jochumsson, Halldór Laxness, Hallgrím Péturs-
son, Hannes Pétursson, Ólaf Jóhann Sigurðsson, Stein Steinarr, Þórberg
Þórðarson, Steinunni Sigurðardóttur og Jóhann Sigurjónsson í Rowohlts
Literaturlexikon des 20. Jahrhunderts, í Brockhaus, í Kindlers Neuer Literatur
Lexikon og í Lexikon der Weltliteratur. Við þetta bætast ritdómar um
íslenskar bækur í tímaritum og dagblöðum auk álitsgerða fyrir forlög.
Kennsla
Reynslan hefur sýnt að hjá yngri nemendum er alveg nauðsynlegt að
kenna þeim fyrst grundvallaratriðin og vekja hjá þeim áhuga og forvitni á
bókmenntum — að mínum dómi eru þetta einhver mikilvægustu og þakk-
látustu verkefni háskólakennara. Ég hef ævinlega gætt þess að bjóða upp á
námskeið í íslenskum samtímabókmenntum, fyrst í Kiel, þar sem ég
starfaði milli 1970 og 1990, og síðan í Köln. Nemendur hafa ævinlega sýnt
þessum námskeiðum mikinn áhuga. Nokkrir nemendur lögðu meira að
segja á sig að fara frá Bonn til Kölnar til að sækja tíma í þessum nám-
skeiðum. Bæði í Kiel og Köln hefur íslenskt nútímamál fengið sömu stöðu
í námsáætlunum og danska, norska og sænska. Þegar hafa nokkrir nem-
endur lokið magistersprófi með íslensku sem aðalgrein í Köln.
Fyrirlestrar og aörir opinberir atburðir
Ég hef alltaf verið fús til að fjalla um íslenskar samtímabókmenntir í fyrir-
lestrum í Þýskalandi eða erlendis. Oft hefur líka gefist færi á að stjórna
upplestrum með íslenskum skáldum - í háskólanum, í bókaverslunum, í
námsflokkum o.s.frv. Ég minnist með ánægju upplestra með Thor Vil-
hjálmssyni, Einari Má Guðmundssyni, Einar Kárasyni, Gyrði Elíassyni,
Steinunni Sigurðardóttur og Sjón. Þau tvö síðastnefndu voru þátttakendur
í norrænu ljóðaþingi sem skor mín og vestur-þýska svæðisútvarpið (WDR)
stóðu fyrir. Það var mér sérstakur heiður að fá að halda ræðu í tilefni þess
að Svövu Jakobsdóttur voru afhent FVS-verðlaunin í Lubeck.
128
á .93a?ý’Áiá — Tímarit þýðenda nr. 8 / 2004