Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 7
Leó Kristjánsson
Dr. Þorbjörn Sigurgeirsson,
prófessor - minningarorð
Þorbjörn Sigurgeirsson, emeritus
prófessor við Háskóla íslands, lést í
Reykjavík hinn 24. mars 1988. Bana-
mein hans var hjartabilun. Með hon-
um er genginn einn merkasti frum-
kvöðull eðlis- og jarðvísinda á íslandi.
Þorbjörn Sigurgeirsson var fæddur
að Orrastöðum í Húnavatnssýslu hinn
19. júní 1917, elstur fimm bræðra. For-
eldrar hans voru hjónin Sigurgeir
bóndi Björnsson, Eysteinssonar, og
Torfhildur Þorsteinsdóttir frá Mána-
skál, Péturssonar. Er margt mætra
dugnaðar- og lærdómsmanna meðal
ættmenna Þorbjörns.
Þorbjörn gekk í Menntaskólann á
Akureyri og lauk þaðan stúdentsprófi
úr stærðfræðideild 1937. Þar kenndi
dr. Trausti Einarsson honum stærð-
fræði og eðlisfræði, og lágu leiðir
þeirra saman síðar. Þorbjörn hélt síð-
an til Kaupmannahafnarháskóla til
náms í eðlisfræði. Styrjöldin, og ekki
síst hernám Þjóðverja vorið 1940, olli
mikilli röskun á starfsemi háskólans,
en Þorbjörn lauk magistersprófi þar
1943. Hann vann einnig á eðlisfræði-
stofnun skólans, sem var undir stjórn
Níelsar Bohr, við rannsóknir á geisla-
virkni, þar sem miklar framfarir voru
að eiga sér stað. Seint á árinu 1943
komst Þorbjörn til Svíþjóðar á ævin-
týralegan hátt, og hélt þar áfram
rannsóknum sínum um hríð.
Vorið 1945 fór Þorbjörn Sigurgeirs-
son til Bretlands og þaðan til Islands
og Bandaríkjanna. Mun hann upphaf-
lega hafa ætlað að kynna sér lífeðlis-
fræði vestan hafs og ritaði eina vís-
indagrein á því sviði, en tók fljótlega
til við athuganir á eðli geimgeisla.
Birtust sumar niðurstöður rannsókna
hans ásamt öðrum greinum í sérstöku
hefti af tímaritinu Reviews of Modern
Physics (jan. 1949) og eru margir
heimsfrægir eðlisfræðingar meðal höf-
unda. A eintak af því hefti sem var í
fórum Þorbjörns hafði einn þeirra,
John A. Wheeler, skrifað : „To Thor
- With pleasant memories of Princet-
on’s first cosmic ray experimentalist“;
segir þetta sína sögu um framlag Þor-
björns til þessa sviðs, þótt hann stæði
þar stutt við.
Haustið 1947 kom Þorbjörn til ís-
lands og gerðist stundakennari við
Háskóla Islands og Menntaskólann í
Reykjavík, en tók einnig fljótlega til
við rannsóknir, m.a. á geislavirkni í
bergi, þótt aðstaða til slíkra hluta væri
harla ófullkomin. 1949 varð hann jafn-
framt framkvæmdastjóri Rannsókna-
ráðs ríkisins, og vann að fjölbreytileg-
um verkefnum svo sem við athugun á
þaravinnslu á Breiðafirði, þyngdar-
sviðsmælingar í samvinnu við fransk-
an leiðangur, og könnun á hitastigi í
Geysi og Heklu. Hann hélt þó áfram
Náttúrufræðingurinn 59 (1), bls. 1-7, 1989.
í