Morgunblaðið - 14.07.1974, Side 18

Morgunblaðið - 14.07.1974, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JULt 1974 Fjölhæf og síung listakona Um Júlíönu Sveinsdóttur listmálara og vefara, Eyjastúlkuna, sem alltaf fór nýjar leiðir Teppi í sýningarskrá á þessari minningarsýningu sagði Björn Th. Björnsson m.a. í grein um listakonuna: „Júlíana Sveinsdóttir fyllir flokk þeirra íslenzku lista- manna sem fóru utan til náms fyrir heimsstyrjöldina fyrri og komu fram með verk sln á hinu mikla nýmótunar- skeiði fyrir 1920. í þessum hópi voru Jón Stefánsson, Jóhannes Kjarval, Kristín Jónsdóttir og Guðmundur Thorsteinsson, auk hennar sjálfrar. Þrátt fyrir þetta eiga verk Júlíönu stílsögulega heima á talsvertsíðara skeiði, hins litþunga og innhverfa expressionisma undir og um 1930. Enn miklu slðar skip- uðu verk hennar myndugan sess við hlið hins yngsta I norrænni list, verk, þar sem eðli efnisins, áþreifanleiki þess og huglæg myndgildi voru orðin að samheilli tján- ingu. Á sjöunda áratugi ald- arinnar, þegar Júllana var komin á áttræðisaldur, völdu einhverjir framsæknustu Á þeim tíma, sem prentaraverkfallið stóð í vetur, var haldin yfirlitssýning á verkum Júlíönnu Sveins- dóttur listmálara á Kjarvalsstöðum en ættingjar hennar stóðu að þessari sýningu. Hún nam fyrst listmálun hjá Þórarni B. Þorlákssyni, en síðan nam hún hjá ýmsum listmálurum í Kaupmannahöfn og einnig við Konunglegu akademíuna þar. Einnig nam hún m.a. á Ítalíu og í Noregi. Á sýningunni á Kjarvalsstöðum voru 94 málverk, 2 mosaikverk, 1 fresco-mynd, 5 teikningar, 8 teppi og 1 frummynd að skrautglugga í olíulitum. Við eldsumbrotin í Vestmannaeyjum 23. janúar, 1973, flúði þorri Vestmannaeyinga til meginlands- ins, þar á meðal 14 fjölskyldur úr frændliði Júfíönu heitinnar Sveinsdóttur. Mörg listaverk Júlíönu voru í eigu þessa fólks, og fengu nokkrir ættmenn hennar þá hugmynd, að nú væri einstætt tækifæri til þess að stofna til minningarsýningar um Júlíönu, þar sem saman væru komin listaverk bæði Eyjamanna og þau verk, er til næðist á meginlandinu. Þrír menn skipuðu sýningarnefnd, þeir Lárus Ársælsson útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum, Sveinn K. Sveinsson verkfræðingur og Leifur Sveinsson lögfræðingur, báðir úr Reykjavík. Fengu þeir þá Einar Hákonarson listmálara og Guðmund Benediktsson myndhöggvara til þess að setja upp sýninguna, en nefndarmenn sáu um útvegun mynda og annarra listaverka. Júliana Sveinsdóttir var fædd í Vestmannaeyjum 31. júll, 1889 og andaðist í Kaupmannahöfn 17. apríl, 1966. Hún fór utan til náms 1909 og dvaldi lengst af í Danmörku eftir það, utan áranna 1 928—31, að hún bjó að mestu hér heima. Hún átti sæti í Akademíráðinu I Kaupmannahöfn um tíma eftir síðari heimsstyrjöldina og gegndi fleiri trúnaðarstörfum fyrir listamenn í Danmörku. Baldur Johnsen barn að aldri Frá sýningunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.