Morgunblaðið - 14.07.1974, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JULt 1974
Fjölhæf
og
síung
listakona
Um Júlíönu Sveinsdóttur
listmálara og vefara,
Eyjastúlkuna,
sem alltaf fór nýjar leiðir
Teppi
í sýningarskrá á þessari
minningarsýningu sagði
Björn Th. Björnsson m.a. í
grein um listakonuna:
„Júlíana Sveinsdóttir fyllir
flokk þeirra íslenzku lista-
manna sem fóru utan til
náms fyrir heimsstyrjöldina
fyrri og komu fram með verk
sln á hinu mikla nýmótunar-
skeiði fyrir 1920. í þessum
hópi voru Jón Stefánsson,
Jóhannes Kjarval, Kristín
Jónsdóttir og Guðmundur
Thorsteinsson, auk hennar
sjálfrar. Þrátt fyrir þetta eiga
verk Júlíönu stílsögulega
heima á talsvertsíðara skeiði,
hins litþunga og innhverfa
expressionisma undir og um
1930. Enn miklu slðar skip-
uðu verk hennar myndugan
sess við hlið hins yngsta I
norrænni list, verk, þar sem
eðli efnisins, áþreifanleiki
þess og huglæg myndgildi
voru orðin að samheilli tján-
ingu. Á sjöunda áratugi ald-
arinnar, þegar Júllana var
komin á áttræðisaldur, völdu
einhverjir framsæknustu
Á þeim tíma, sem prentaraverkfallið stóð í vetur,
var haldin yfirlitssýning á verkum Júlíönnu Sveins-
dóttur listmálara á Kjarvalsstöðum en ættingjar
hennar stóðu að þessari sýningu. Hún nam fyrst
listmálun hjá Þórarni B. Þorlákssyni, en síðan nam
hún hjá ýmsum listmálurum í Kaupmannahöfn og
einnig við Konunglegu akademíuna þar. Einnig nam
hún m.a. á Ítalíu og í Noregi. Á sýningunni á
Kjarvalsstöðum voru 94 málverk, 2 mosaikverk, 1
fresco-mynd, 5 teikningar, 8 teppi og 1 frummynd
að skrautglugga í olíulitum.
Við eldsumbrotin í Vestmannaeyjum 23. janúar,
1973, flúði þorri Vestmannaeyinga til meginlands-
ins, þar á meðal 14 fjölskyldur úr frændliði Júfíönu
heitinnar Sveinsdóttur. Mörg listaverk Júlíönu voru
í eigu þessa fólks, og fengu nokkrir ættmenn hennar
þá hugmynd, að nú væri einstætt tækifæri til þess
að stofna til minningarsýningar um Júlíönu, þar
sem saman væru komin listaverk bæði Eyjamanna
og þau verk, er til næðist á meginlandinu.
Þrír menn skipuðu sýningarnefnd, þeir Lárus
Ársælsson útgerðarmaður frá Vestmannaeyjum,
Sveinn K. Sveinsson verkfræðingur og Leifur
Sveinsson lögfræðingur, báðir úr Reykjavík.
Fengu þeir þá Einar Hákonarson listmálara og
Guðmund Benediktsson myndhöggvara til þess að
setja upp sýninguna, en nefndarmenn sáu um
útvegun mynda og annarra listaverka.
Júliana Sveinsdóttir var fædd í Vestmannaeyjum
31. júll, 1889 og andaðist í Kaupmannahöfn 17.
apríl, 1966. Hún fór utan til náms 1909 og dvaldi
lengst af í Danmörku eftir það, utan áranna
1 928—31, að hún bjó að mestu hér heima.
Hún átti sæti í Akademíráðinu I Kaupmannahöfn
um tíma eftir síðari heimsstyrjöldina og gegndi fleiri
trúnaðarstörfum fyrir listamenn í Danmörku.
Baldur Johnsen
barn að aldri
Frá sýningunni