Morgunblaðið - 03.12.1974, Side 26

Morgunblaðið - 03.12.1974, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. DESEMBER 1974 íslandsmótið 2. deild ÍBK-KA15-20 Á LAUGARDAG var einn leikur háður I 2. deild Islandsmótsins í handknattleik. Það voru KefIvíkingar, sem fengu lið K.A. frá Akureyri i heimsókn, og heim sneru Akureyringar með tvö dýrmæt stig, dýrmæt, því baráttan um sigur i 2. deild virðist ætla að verða jöfn og hörð. Leikurinn f heild var fremur illa leikinn. Það kom þó fljótt I Ijós, að Akureyringarnir voru mun sterkari. Þó kom klístursreglan fræga illa niður á liðinu i fyrri hálfleik, en þegar líða tók á jöfnuðu leikmennirnir sig á klfstursmissinum. í fyrri hálfleik skiptust liðin á um að skora, og þegar biásið var til hlés höfðu K.A.-menn tveggja marka forskot, 8 mörk gegn 6. í sfðari hálfleik fóru Akureyringarnir svo að siga fram úr, og sigruðu örugglega með 20 mörkum gegn 1 5. Margir höfðu beðið spenntir eftir að sjá K.A.-liðið f leik hér sunnan heiða, þar sem liðið hefir verið nefnt sem hugsanlegur sigurvegari f deildinni. Frammistaðan f þessum leik gaf þó ekki tilefni til slfks, en þess ber að gæta, að daginn eftir átti liðið að leika gegn Þrótti, og hefur ef til vill sparað kraftana fyrir þau átök, sem f vændum voru. Beztu menn K.A. f leiknum voru þeir Þorleifur Ananiasson, sem er mjög laginn Ifnumaður, og í vörninni áttu Hermann Haraldsson og Haraldur Haraldsson ágætan leik. Þá er og vert að geta um frammistöðu mark- varðarins Magnúsar Gauta Lið Keflvíkinga hefir ekki mörgum snjöllum handknattleiksmönnum á að skipa. j þessum leik var Þorsteinn Ólafsson, sem verið hefir ein styrkasta stoð liðsins, illa fjarri góðu gamni, og hefir það efalaust veikt liðið að mun. Beztir f þessum leik voru Steinar Jóhannsson, Sigurbjörn Gústafsson og Einar Leifsson. Mörkin: K.A. Þorleifur 9 (3v), Hörður 6 (3v), Halldór 2 (1v), Guð- mundur, Jóhann og Sverrir eitt mark hver. ÍBK. Steinar 7 (2v), Sigurbjörn 3 (1v), Einar og Sigurður 2 hvor og Þorsteinn eitt. Dómarar voru Jón Sigurðsson og Guðmundur Þorbjörnsson. Þeir voru vel samkvæmir sjálfum sér, en hefðu mátt vera röggsamari. Siab. G. HaJldór Bragason skorar fyrir Þrótt I leiknum við KA Þróttur — KA 20—22 STÓRLEIKUR fór fram f 2. deild íslandsmótsins f handknattleik á sunnudag. Þá mættust Þróttur og K.A. en þessi tvö lið ásamt K.R. og Þór frá Akureyri hafa verið tfttnefnd sem þau lið, sem berjast mundu um sigurinn í deildinni. Leikur liðanna var fjörugur frá upphafi. Þó gerðu bæði liðin sig sek um mistök f byrjuninni, einkum þó Akureyringarnir. Þegar taugaspennan fór að minnka var leikurinn oft laglega leikinn. í fyrri hálfleik hafði Þróttur oftast frumkvæðið. Þó tókst K.A.-mönnum ávallt að jafna, og var jafnt á öllum tölum upp f 7—7, en í lok hálfleiksins tóku Þróttarar mikinn sprett, og höfðu fjögurra marka forystu f leikhléi, 1 2 mörk gegn 8. Framan af siðari hálfleik hélzt þessi munur. en þá fóru K.A.-menn að taka verulega við sér. Og þeir gerðu meira en að jafna, þvf þegar tfu minútur voru til leiksloka voru Akureyringarnir komnir yfir. Þegar aðeins tvær mfnútur voru eftir höfðu þeir enn bætt um betur og voru fjögur mörk yfir, en lokaorðið f leiknum áttu Þróttarar, skoruðu tvisvar hjá K.A. Leiknum lyktaði þvf með sigri K.A., 22 mörk gegn 20 Þróttara. Eins og fyrr getur var leikurinn á köflum hinn skemmtilegasti, mikil barátta og ekkert gefið. Lið K.A. virðist f góðri æfingu, og ætti hæglega að geta blandað sér f toppbaráttuna, sem það hefir reyndar þegar gert. Borið saman við lið félagsins frá f fyrra rekur maður fyrst augun f að markvarzlan hefir lagazt til mikilla muna. Sóknarleikurinn er á köflum ágætur. Aftur á móti mætti vörnin batna. Beztu menn K.A. voru Halldór Rafnsson, Hörður Hilmarsson og Þorleifur Ananfasson. Þá var markvörð- urinn Magnús Gauti Þrótturum erfiður. T.d. varði hann þau tvö vftaköst, sem Þróttararnir fengu. i þessum leik brotnuðu Þróttararnir gjörsamlega þegar K.A.-menn tóku að sækja í sig veðrið. Þó að lyktir leiksins hafi orðið þær, sem raun ber vitni, er mótið til þess að gera nýhafið, og allt getur gerzt þegar á Ifður veturinn. í 2. deild verður þvi ekkert lið afskrifað enn sem komið er. Beztir Þróttara voru þeir Bjarni Jónsson og Halldór Bragason. Mörkin. K.A.: Halldór 9 (5v), Hörður 5, Geir 5 (1v), Þorleifur 2 og Ármann eitt. Þróttur: Bjarni, Halldór og Jóhann 4 hver, Friðrik 3, Björn og Trausti 2 hvor og Sveinlaugur eitt. Leikinn dæmdu Valur Benediktsson og Gunnlaugur Hjálmarsson og gerðu það ágætlega. Sigb. G. RAGNARI ()K Afíl MARKINII OG ÁRMANN VANN14—13 SNILLDARMARKVARZLA Ragnars Gunnarssonar I Ar- mannsmarkinu varð öðru fremur til þess að Ármenningar hlutu bæði stigin I viðureign sinni við Vfkinga í 1. deildar keppni ls- landsmótsins f handknattleik á sunnudaginn. Fyrstu 25 mfn. leiksins hélt Ragnar marki sfnu hreinu, og var ekki laust við að menn væru farnir að vorkenna stórskyttunum f Víkingi sem ætl- uðu aldrei að finna leiðina fram- hjá honum. Var það ekki fyrr en Sigfús Guðmundsson smaug inn úr horninu, að Ragnar átti ekkert svar, en Víkingunum tókt þó ekki að bæta nema einu marki við það sem eftir var hálfleiksins. En vörn Armannsliðsins átti líka stóran hlut að máli. Hún er gífurlega sterk og dugnaður leik- mannanna takmarkalaus. Var vörnin á stöðugri hreyfingu og skyttur Víkinganna stöðvaðar áður en þær náðu að komast f sketstöðu. Jafnframt var svo vel gætt að línumönnunum. Slíkur varnarleikur sem þessi er gífur- lega erfiður, enda mátti glöggt sjá þreytumerki á Ármenningum í seinni hálfleiknum og þá loks byrjuðu Víkingarnir að skora. Tókst þeim að vinna upp sex marka forskot sem Ármenningar höfðu náð meðan vörnin var hvað bezt og jafna 13:13, þegar 2 mínútur voru eftir. En Ármenn- ingar höfðu svo heppnina með sér og Jens Jensson skoraði sigur- mark þeirra á siðustu minútunni. En til þess að vinna leiki þurfa Ármenningarnir á sinni góðu vörn og markvörzlu að halda. 1 sókn er þetta lið ekki atkvæða- mikið, og það skorar aldrei mjög mörg mörk. Að þessu sinni gekk þeim sérstaklega erfiðlega að ráða við Sigurgeir Sigurðsson sem var í Víkingsmarkinu lengst af og varði oft með mikilli prýði. Verður það Víkingsliðinu örugg- lega mikill styrkur að Sigurgeir skuli aftur hafa bætzt í hópinni, jafnvel þó svo að Rósmundur hafi staðið sig með ágætum í markinu, það sem af er. Þetta var greinilega ekki dagur Víkingsliðsins. Má vera að það hafi talið sigur i leiknum visan fyrirfram. Þegar svo á móti blés í upphafi og Ragnar Gunnarsson tók öll skot þeirra virtust leik- mennirnir flestir hverjir missa móðinn og voru mjög óákveðnir í aðgerðum sínum. Þannig hleypti t.d. Einar Magnússon aldrei í sig verulegri hörku til þess að stökkva upp og skjóta. Þegar fyrstu skot hans misheppnuðust lét hann þar við sitja. Einu Vík- ingarnir, sem börðust leikinn út, voru þeir Sigfús Guðmundsson og Stefán Halldórsson, og það var einungis fyrir þá baráttu að Vík- ingarnir unnu upp forskot Ar- menninga og stóðu jafnt að vígi þegar leiknum var að ljúka. Annars er greinilegt að Víking- arnir leika nú betri vörn en þeir hafa gert aó undanförnu, en ein- mitt það atriði hefur löngum orðið liðinu að falli. Hreyfan- leikinn er miklu meiri, og fá- tíðara að stórar gloppur myndist. Ármenningar verða örugglega öllum liðum erfiðir í vetur. Verði Ragnar Gunnarsson í öðru eins formi og hann var í lengst af þessum leik, er ákaflega erfitt að leika á móti liði hans. Það helzta sem Ármenninga virðist skorta er meira úthald, en leikur liðsins hefur viljað detta niður þegar á líður. Ungu mennirnir í liðinu eru flestir hverjir bráðefnilegir og nægir þar að nefna Jens Jens- son, Hörð Harðarson og Stefán Hafstein, en sá síðastnefndi er mjög góður varnarleikmaður, en hefur þó þann galla að nota hend- urnar of mikió þegar hann er að verjast mönnum. Er það raunar galli, sem margir íslenzkir hand- knattleiksmenn hafa, og hefur orðið hált á. Jens Jensson skorar sigurmark Armenninga í leiknum við Víkinga á sunnudaginn. ÞRÓTTUR OG UMFL SIGRUÐU ÞRÓTTUR og Vfkingur sóttu Laug- vetninga heim um helgina og léku i undankeppni islandsmótsins f blaki. Þróttur og UMF.Biskupstungna léku fyrst og sigruðu Þróttarar örugglega f báðum hrinum 15—9 og 15—1. Leikurinn var ágætlega leikinn af báðum aðilum framan af. Leikur Þróttar var nú allur annar og betri en f Reykjavfkurmótinu á dögunum. Uppspilið var mjög gott hjá Eirfki Stefánssyni og skelltu þeir Guð- mundur Pálsson, Valdimar og Frf- mann oft mjög fallega framhjá hávörn Tungnamanna. Geta Tungna- manna kom nokkuð á óvart og héldu þeir nokkuð í við Þrótt en tauga- spenna óreyndra liðsmanna varð þeim að falli og Þróttur sigldi framúr og sigraði örugglega 15—9. Sfðari hrinan var alger einstefna af hálfu Þróttar og komust þeir f 6—0 og höfðu þá tapað fjórum uppgjöfum en Tungnamenn engri. Guðmundur Pálsson, sem virðist hafa fengið aft- ur sína fyrri leikgleði, átti stórleik og reyndist Austanmönnum erfiður, einnig átti Valdimar góðan leik. í liði Biskupstungna, en það er skipað piltum úr menntaskólanum að Laugavatni, áttu Björgvin, Böðvar, Helgi og Guðjón Arngrfmsson skást- an leik en annars skortir liðið allt betri boltameðferð og er fingurslag og baggerslag ónákvæmt hjá þvf. Uppstilling liðsins þegar tekið er við uppgjöf er mjög þvælin og vissu menn oft ekki hvað þeir áttu að standa og dekkuðu oft tveir upp sama svæði. Sfðari leikurinn var á milli Vikinga og Umf. Laugdæla og bauð hann upp á meiri spennu og skemmtilegheit fyrir hina fjölmörgu áhorfendur. Vfk- inur komst f 3—0 og 4—3 en þá misheppnuðust hjá liðinu sex upp- gjafir og Laugdælir komust f 10—9. Þá unnu Vfkingar boltann og komust I 12—10 en Rafnar átti sfðan fimm uppgjafir, sem allar gáfu stig, og Laugdælir sigruðu 15—13. Það. sem réð úrslitum f þessari hrinu.voru uppgjafirnar. Heimamenn áttu mjög fastar og góðar uppgjafir og mis- heppnaðist aðeins ein en hjá Vfkingi voru þær afleitar og átta misheppn- uðust I sfðari nrinunni tóku Laugdæl- ir fljótlega forystu og komust f 4—1 en sfðan jöfnuðu Vfkingar og komust yfir 8—6. Sfðan tók Páll Skúlason sjö uppgjafir f röð sem gáfu stig, og Laugdælir komust f 13—8 og inn- sigluðu sigurinn sfðan og úrslit urðu 15—9. Hjá Laugdælum átti Anton langbeztan leik og laumur hans eru frábærar auk þess sem hann skellti mjög mikið. Pálarnir, Skúlason og Ólafsson, áttu einnig góðan leik og voru uppgjafir þeirra mjög góðar. Annars er fingurslag mjög óhreint hjá liðinu og sömuleiðis bagger en þeir gátu leyft sér það þvf dómararn- ir dæmdu ekki neitt. Hjá Víkingi var hávörn og uppspili mjög ábótavant. Sókn liðsins var bitlaus og leikmenn hræddir við að skella ef hávörn var á lofti. Annars áttu Víkingar við ramman reip að draga þar sem dómararnir voru. Hin lélega dómgæzla í leiknum fór svo f skapið á Víkingum, að þeir hugsuðu meir um að skammast en spila en höfðu samt ærna ástæðu til. Dóm- gæzlan I leiknum var fyrir neðan allar hellur og sögðu menn eftir leik- inn, að það væri afturför ef hleypa ætti blakinu niður á sama plan og það var fyrir þremur árum, þvl sóp og grip leikmanna Laugdæla var mjög áberandi. Dómara ber fyrst og fremst að fara eftir lögum og reglum en sfðan er það hans að meta getu liðanna og miða sinn dóm við betra liðið þannig að annað liðið geti ekki hagnazt á brotum. sem betra liðið fremur ekki. Þetta fór f skapið á Vfkingum sem von er og gáfust þeir upp við þetta. Hjá Vfkingi átti Elias einna skástan leik en aðrir léku und- ir getu. Dómarar voru Greggviður Norðdahl og Guðmundur Skúli Stefánsson. Áhorfendur voru mjög margir og létu heldur betur f sér heyra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.