Morgunblaðið - 16.09.1975, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1975 27
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
fcíisna601
Til leigu
4ra herb. íbúð við Kapla-
skjólsveg. Laus strax. Leigist i
eitt ár i senn.
Uppl. hjá Fasteignahúsinu,
Bankastræti 11,2. hæð.
Keflavik
Til sölu 2ja og 3ja herb.
ibúðir. Sumar með
bilskúrum. Höfum á biðlista
kaupendur af ýmsum gerðum
ibúða og einbýlishúsa.
Eigna- og verðbréfasalan,
Hringbraut 90, Keflavik, simi
92-3222.
Landakotsspítali
óskar eftir 1 til 2ja herb. ibúð
fyrir hjúkrunarkonu, helst i
nágrenni spitalans.
Uppl. hjá starfsmannahaldi.
Vil kaupa eða
leigja sumarbústað eða eitt-
hvert húsnæði til geymslu á
húsgögnum á veturna og
hægt að búa í á sumrin. Sími
75690.
Iðnaðarhúsnæði
til leigu í Hafnarfirði.
Uppl. i síma 1 1868 —
53949 — 75296.
^ S3'a
K&^
Til sölu
svefnsófi og tveir stólar (sam-
stætt) notað en i góðu standi.
Ódýrt. Uppl. i s. 83314.
Verðlistinn
Munið sérverzlunina með
ódýran fatnað, Laugarnes-
vegi 82, sími 31 330.
Uppþvottavél
Husqvarna uppþvottavél fyrir
4 litið notuð til sölu. Verð kr.
55 þúsund, kostar ný kr.
85.775,—
Upplýsingar i sima 1 3469.
Dömur
Buxur
Dömu- og drengjabuxur úr
terylene. Framleiðsluverð.
Saumastofan, Barmahlið 34.
Sími 14616.
Dragtin
Terelynesloppar mikið úrval.
Dragtin, Klapparstig 37.
Til sölu eldavél
Rafha ódýr. Uppl. í síma
42153.
Páfagaukur og búr
til sölu. Uppl. i sima 41 738.
Rennibekkur
til sölu. Uppl. i sima 93-
7326.
Ólafsvik nágrenni
Til sölu notað mótatimbur
1100 af 2X4, 500 m af
1X6. Upplýsingar i sima
6140.
Hjónarúm
springdýnur
Höfum úrval af hjóna- og
einstaklingsrúmum. Erum
með svefnbekki fyrir börn og
unglinga. Framleiðum
springdýnur gerum við
notaðar springdýnu^
samdægurs. Opið frá S—7
laugardaga 10— 1.
K.M. springdýnur,
Helluhrauni 20, Hafn.
simi 53044.
Hjólhýsi til sölu
óinnréttað, mjög vandað,
smíðað á skipasmíðastöð hér-
lendis, hentugt sem söluskúr,
vinnuskúr o.fl. Uppl. í síma
75690.
Áklæðisútsala
Verð frá kr. 400. Damask frá
kr. 700., Opið frá 2—6.
Blönduhlið 36. Stakkahliðar-
megin.
Til sölu
góð leikgrind á kr. 4.500.
Bensín miðstöð og toppgrind
áVW. Uppl. isima 74775.
Brotamálmur
Kaupi allan brotamálm lang-
hæsta verði. Staðgreiðsla.
NÓATÚN 27, simi 25891.
Rauðhetta Iðnaðar-
mannahúsinu
Útsalan heldur áfram. Allt
nýjar vörur. Mikið úrval
sængurgjafa og fallegur
fatnaður á litlu börnin. Notið
þetta einstæða tækifæri. Hjá
okkur fáið þér góðar vörur
með miklum afslætti.
Rauðhetta, Iðnaðarmanna-
húsinu, Hallveigarstíg 1.
Til sölu
nýlegt Apache hjól á
30.000. Til sýnis að
Sóleyjargötu 1 1 i dag og á
morgun.
Gastæki og kútar
AGA tæki og minni gerð af
kútum ásamt vagni litið not-
að til sölu. Verð kr. 60 þús-
und, kostar ca. kr. 70 þús-
und ný.
Upplýsingar i sima 53078.
Armbandsúr
tapaðist sl. föstudag frá
Hæðarg. 40 að Hólmgarði.
Vinsamlegast skilist i
Hæðarg. 40 gegn fundar-
launum. Simi 36052.
Klæðningar —
Bólstrun
Blönduhlið 2, simi 12331.
Jarðýtuvinna
S. 41516
Jafna lóðir útvega mold, og
þökur.
Barnagæzla
Kona eða unglingsstúlka ósk-
ast til að gæta 6 mánaða
barns i Efstalandshverfi frá
10—5 eða 1—5.
Upplýsingar í síma 42467
eftir kl. 5.
atvinpa
Atvinna
Ungur maður óskar eftir
framtiðaratvinnu. Hef áður
unnið við húsgagnasmíði. Ég
er til í alla vinnu. Einnig
mikla vinnu. Þeir, sem áhuga
hafa sendi tilboð til Mbl. fyrir
23. 9. merkt: „Góð laun —
4899".
Reglumaður óskar
eftir
herbergi nálægt Háskóla og
miðbæ.
Simi 32776.
17 ára stúlka
óskar eftir vinnu annan
daginn. Margt kemur til
greina. Uppl. i sima 33049.
Skrifstofumaður
óskast. Verzlunarskóla- eða
hliðstæð menntun æskileg.
Eiginhandarumsóknir með'
uppl. um aldur menntun og
fyrri störf sendist i pósthólf
206 Hafnarfirði.
Atvinna óskast
Fertugur maður með reynslu
i viðskiptum toll/verðútreikn-
ingi enskum viðskiptabréfum
o.fl. óskar eftir atvinnu hálfan
eða allan daginn. Hefur bil.
Tilboð sendist Mbl. merkt:
„Noil — 6717".
Stúlkur óskast
strax til eldhússtarfa. Vakta-
vinna. Uppl. i sima 1 7758.
Veitingahúsið Naust.
Stúlka
helzt vön óskast til afgreiðslu
í sælgætisverzlun. Umsækj-
endur leggi nöfn sin inn á
auglýsingadeild Mbl. merkt
„Sjoppa — 671 8".
bíiar
Citroén station '71
DS 21 Brake fallegur bíll til
sölu. Verð 750 þús. Uppl. i
síma 75472 eftir kl. 17 i
dag.
Til sölu Opel Record
1971 vegna utanfar-
ar, uppgerður frá verksmiðju
fyrir 2 árum. Aðeins ekinn
20 þús. km á íslandi.
Nýsprautaður og lagfærður.
Uppl. is. 74168.
Til sölu er nýr
Alison gir á 115—240 ha.
bátavél. Flans nr. 3. Upplýs-
ingar i sima 94-3383.
Til sölu
Chevrolet bilvél 6 cyl. árg.
’71 ekinn 24 þús. km. Uppl.
i sima 96-41236.
Kenösla
Dönskukennsla
Danskur bókmenntafræðP
nemi kennir.
Upplýsingar í sima 71031
frá 5—7.
IOOF 8 = 1 5791 78V2
IOOF Rb =
1 249168V2
I.O.O.F. = Ob. 1P.
= 1 569168V2
Kristniboðsfélagið
í Keflavík
fyrsti furrdur á þessu hausti
verður í Kirkjulundi, í kvöld
kl. 20.30. Gunnar Sigurjóns-
son hefur Bibliulestur. Allir
velkomnir.
Stjórnin.
Flladelfia
Almennur Bibliulestur 1 kvöld
kl. 20.30. Ræðumaður Einar
Gislason.
Lýður Kristinn
Jónsson—Kveðja
Fæddur 13. marz 1924
Dáinn 5. septcmber 1975.
„Ekkert Hf án dauða
enginn dauði án Iífs“
Það olli mér undrunar og
hryggðar þegar ég frétti fyrir
rúmum mánuði að vinur minn og
frændi, Kristinn Jónsson, gengi
með vanvænan sjúkdóm, en ég
bjóst ekki við að dauða hans bæri
svo skjótt að, sem raun varð á.
Það má segja að skammt sé stórra
högga á milli í fjölskyldunni, því
á liðnum vordögum var faðir hans
til moldar borinn, en þannig er
gangur dauðans, að enginn veit
hvar eða hvenær hann vitjar
okkar.
Við Kristinn, eða Kiddi eins og
hann var ávallt kallaður, þekkt-
umst frá barnsaldri, fyrst frá því
að hann dvaldi sem barn á sumr-
um hjá foreldrum mínum og síðar
er ég bjó hjá foreldrum hans hér f
borg og þá nánast sem éinn af
hinni stóru fjölskyldu. Það eru
því margar minningar, sem leita á
hugann við þessi tímamót, þegar
Kiddi hverfur héðan til feðra
sinna.
Ýmislegt brölluðum við Kiddi
saman eins og gengur hjá ungum
mönnum, hann var hinn reyndi
borgarbúi, en ég eins og hver
annar sveitamaður sem þurfti
margt að læra, svo ég félli inn í
nýtt umhverfi og Kiddi var góður
leiðsögumaður ávallt glaðsinna og
laus við alla illkvittni.
Þegar ég minnist hans er mér
einmitt efst í huga þeir höfuð-
kostir, sem hann hafði í svo rfkum
mæli og fylgdu honum alla hans
ævi, á hverju sem gekk, en það
var létt lund og óvenjulega
aðlaðandi framkoma, enda átti
hann auðvelt með að afla sér vin-
áttu samferðamanna sinna. Kiddi
var mjög handlaginn maður eink-
um við allskonar vélar, hann vann
ýmis störf en oftast við vélknúin
tæki og lengst af sem leigubif-
reiðarstjóri hér í borg, þar til
hann kenndi banameins síns, en
fram til þess tima mun hann
aldrei hafa leitað læknis, veikind-
um sínum tók hann með karl-
mennsku og ró, þó mun honum
snemma hafa verið ljóst að hverju
dró.
Ég sat eina kvöldstund hjá hon-
um nokkru áður en til úrslita dró
og ræddum við allmikið saman,
hann gerði að gamni sinu í byrjun
en tal okkar barst síðan að
veikindum, dauða og framlífi,
hann sagði eitthvað á þá leið að
hann tæki því sem að höndum
bæri með jafnaðargerði hvort sem
það væri bati eða dauði, þannig
var eðli hans.
Kiddi var sonur hjónanna Jóns
Lýðssonar og Guðrúnar Gisla-
dóttur, Grettisgötu 73, næstelztur
fimm systkina. Hann giftist 1947
eftirlifandi konu sinni, Bryndísi
Emilsdóttur, og eiga þau sex dæt-
ur og einn son. Öll eru börnin
uppkomin nema yngsta dóttirin
sem er 11 ára. Kiddi naut þeirrar
hamingju að eignast góða konu og
indæl börn, sem studdu hann með
ástúð og umhyggju i veikindum
hans, ásamt aldraðri móður og
systkinum.
Það er mikill missir hjá móður
Kidda að sjá á bak eiginmanni og
syni með svo stuttu millibili, en
hún ber harm sinn vel enda styrk
kona og óbrotgjörn.
Það er auðsætt að dauði eigin-
manns og föður er mikið áfall og
markar stórt skarð í fjölskylduna,
sem erfitt er að fylla, en ég veit að
ró og sálarstyrkur Bryndísar og
barna hennar mun deyfa sárasta
harminn, sem nú hefur sótt þau
heim. Ég vil að lokum, um leið og
ég votta þeim, ásamt móður og
systkinum, samúð mína, minna á
yfirskrift þessarar fátæklegu
kveðju. „Ekkertlffándauöa,
enginn dauði án Iífs“.
Bergsteinn Sigurðarson.
— Doktor Bomm
Framhald af bls. 10
og afkvæmið getið á sjálfu
hnakknefinu með þeirri virðu-
legu og sómakæru hefðar-
freyju, skáldgyðjunni. Læknar
hafa löngum sýnt mikla leikni í
getnaði og nægir að vísa til ný-
legs Læknatals, stórfróðlegs
og skemmtilegs. Björn fer geyst
með skáldgyðjunni og þeytist
um al-íslenzkar lendur og
strendur. Og það er undravert
hversu hann nær vlða góðum
tökum á máli og stíl I bókinni,
eftir öll þessi mörgu vestur-
dvalar ár.
Við fyrsta augnakast hreifst
ég af eldfjörugri frásögn hans
af þeim gáfuðu, framsæknu og
listrænu frændum hans úr
Gönguskörðum, þeim Heiðingj-
unum frá Heiði og Veðramóts-
mönnum. Þá er eftirminnileg
og lifandi frásögnin af skag-
firzkum sægörpum I sjávar-
háska. Björn er kjarnyrtur,
snjallyrtur, hraðkvæður og
fyndinn. Hann fer mikinn og
spýtir mórauðu I allar áttir að
hætti skagfirzkra merakónga,
jafnvel upp i vindinn, með
„Landa“-pela í rassvasanum og
klæmist víða í takt við bók-
menntalegar hræringar nútím-
ans. Skagfirðingar hafa löngum
verið glaðastir, söngvinastir og
mestir skemmtimenn hérlend-
is. Það sýnir Björn með útkomu
þessarar bókar. Eflaust má
þakka umrætt hispursleysi og
frjálslyndi i skagfirzku fasi og
framgöngu hestamennskunni,
hreyfanleikanum, sem leiddi til
aukinna mannlegra samskipta.
Eða er kannski prósenttala
keltneska blóðsins mun hærri í
æðum Skagfirðinga en annarra
hérlendis? Altént eru þeir með
afbrigðum söngvinir, ljóðelskir
og ölkærir likt og frændur okk-
ar Irar. En nú er vinur minn,
Bjössi Bomm, steinhættur að
súpa. Hann hugðist, ekki alls
fyrir löngu, koma alfluttur
heim með stóra fjölskyldu, ef
honum yrði veitt áfengisráðu-
nautastaða rikisins og þurrka
þar með upp landið. Þá hét ég
að flytja alfarinn til Kanada til
að geta drukkið mitt vin óáreitt
ur. Því að allt, sem Björn læknir
tekur sér fyrir hendur, tekst
honum með undraverðum ár-
angri af meðfæddum dugnaði,
áhuga og hæfileikum. Hvort
sem um er að ræða að þurrka
upp land, sporðrenna flösku
fyrr á árum, lækna kranka og
blása lífslofti í volaða, þjóna
konum, fljúga eigin flugvélum
gegnum þrumur og eldingar og
svörtuloft kanadiskra stórhrið-
arbylja, geysast um rennislétt-
ar hraðbrautir á villtum trylli-
tækjum og mótorhjólatíkum,
yrkja langar drápur, jöfnum
höndum á íslenska og enska
tungu, skrifa, teikna og gefa út
eigin bók, sem er nýkomin að
vestan á íslenzkan bókamarkað.
Ég vil skýrt taka fram, að ég er
enginn jústeraður bókmennta-
né listgagnrýnandi, né ætla
mér að ryðjast inn á verksvið
menningarvitanna með þessum
skrifum. Mig langaði aðeins til
að kvitta fyrir og þakka Birni
sendinguna að vestan, sam-
gleðjast og óska Bommaranum
til hamingju með afkvæmið.
örlygur Sigurðsson.
— Minning
Dagur
Framhald af bls. 31
ingjusama samleið. Eg gleymi þvi
aldrei, þegar hann og hin elsku-
lega kona hans tóku á móti mér,
þegar ég flutti hingað til Reykja-
vikur. Ég hafði hann ætið að
leiðarljósi og gat alltaf sótt til
hans föðurlegar ráðleggingar,
sem hafa reynzt mér vel, enn
þann dag i dag. Við höfum átt
margt sameiginlegt, sem yrði of
langt upp að telja. Við viljum öll,
sem samfylgdar hans hafa notið,
þakka af heilum hug.
Ég veit að það mun reynast
okkur erfitt að finna og kynnast
jafn heilsteyptum og trygglynd-
um manni. Megi islenzka þjóðin
eiga kost á að ala upp marga slíka
drengi,.
Guð styrki eftirlifandi konu
Dags og gefi henni kraft og trú.
Börnum þeirra bið ég allrar bless-
unar, megi þau í einu og öllu taka
föður sinn til fyrirmyndar.
Drottinn styrki þá sem erfiði og
þunga eru hlaðnir. Megi minning-
in um góðan fögnuð og eiginmann
verða styrkur'í mikilli sorg.
Kristinn Albertssón.