Morgunblaðið - 28.09.1975, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.09.1975, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975 Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins á Allsherjarþinginu ákveðnir ÁKVEÐIÐ hefur verið, hverjir verði fulltrúar þingflokks Sjálf- stæðisflokksins á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna að þessu sinni. Samkvæmt upplýsingum Gunnars Thoroddsens, iðnaðar- ráðherra og formanns þingflokks Sjálfstæðisflokksins, verður Pét- ur Sigurðsson alþingismaður fyrri hluta þi^igsins frá miðjum október og fram i miðjan nóvem- ber, en síðari hluta þingsins situr Elín Pálmadóttir borgarfulltrúi Allsherjarþingið. Samkvæmt upp- lýsingum, sem Morgunblaðið hefur aflað sér, munu Sjálfstæðis- kvenfélagið Hvöt og Lands- samband sjálfstæðiskvenna hafa óskað eindregið eftir þvi við þing- flokk Sjálfstæðisflokksins að kona yrði tilnefnd einn af fulltrú- um á SÞ-þingi. Var sú áskorun tekin upp innan þingflokksins af þeim Ragnhildi Helgadóttur og Sigurlaugu Bjarnadóttur og ein- róma samþykkt í þingflokknum að tilnefna Elinu Pálmadóttur. snæuglu og fálka fækkar Hafsteirm sýnir á Lofttnu VETRARSTARF Fuglaverndar- félags tslands er að hefjast um þessar mundir og verður haldinn fræðslufundur f Norræna húsinu n.k. þriðjudagskvöld kl. 20.30. Þar verða sýndar sænskar mynd- ir, m.a. af haferninum, sem orð- inn er mjög fágætur f Svíþjóð. I frétt frá félaginu segir, að árangur af arnareftirlitinu hafi verið góður í ár, en stofninn sé þó enn i mikilli hættu. Fálka og snæ- uglu hefur líka fækkað. Fuglaverndunarfélag Islands stendur að friðunaraðgerðum og stefnir að þvi að fá fleiri áhuga- menn um náttúru- og fuglalff i lið með sér, m.a. til þess að félagið verði þess megnugt að standa straum af þeim kostnaði, sem frið- unarráðstafanir hafa í för með sér. Fuglaverndarfélag íslands heldur fundi í lok hvers mánaðar yfir veturinn, eins og verið hefur undanfarin ár. Upplýsingar um fundi og starf félagsins fást í sima 19995 kl. 9— lOf.h. 1 gær opnaði Hafsteinn Aust mann sýningu á 33 vatnslita myndum á Loftinu við Skóla vörðustíg. Myndirnar eru mál- aðar á árunum 1951—1975, en f viðtáii við Mbl. kvaðst lístamað- urinn vilja taka fram, að hér væri þó ekki um yfirlitssýn- ingu að ræða. Nokkrar mvndannar eru I eink- aeign, en flestar eru til sölu og er verð þcirra 30—65 þúsund krónur. Sýningin verður opin á verzlun- artíma og kl. 14--18 laugar- daga og sunnudaga, en henni lýkur 10. október. Rá&iafamefndarfundur EFTA Vetrarstarf Fuglavernd- arfélagsins að hefjast — Arnarstofninn enn í hættu — hefst á Loftleiðum á morgun Nýr leikskóli I RÁÐI er að nýr leikskóli taki til starfa í Reykjavík á þessu hausti. Leikskóli þessu verður starfrækt- ur af KFUM og KFUK í félags- heimilinu að Langagerði 1. Verið er að innrétta neðri hæð hússins til þessara nota. Hægt verður að taka á móti 2 x 30 börnum til vistunar á aldrinum 2—6 ára þeg- ar leikskólinn verður fullbúinn. Ekki er enn fullvist hvenær skól- inn getur tekið til starfa, en inn- ritun verður auglýst á næstunni. Rétt er að taka fram að leikskól- inn er ekki eingöngu ætlaður börnum félaga í KFUM og KFUK heldur opinn öllum. Forstöðu- kona hins nýja leikskóla verður Ragnhildur Ragnarsdóttir fóstra. Nýjar flugregl- ur taka gildi FLUGMÁLASTJÓRN hefur nú gefið út sérstaka bók, sem ber nafnið „Flugreglur." Eins og nafnið bendir til er hér um nýjar flugreglur að ræða, og eiga þær að taka gildi 9. október n.k. Regl- ur þessar eru íslenzk þýðing á „viðbæti nr. 2 við stofnskrá AI- þjóðflugmálastofnunarinnar" (ICAO Annex 2 „Rules of Air), en tiltekin breyting við þær al- þjóðareglur tekur gildi ofan- greindan dag. Reglurnar gilda innan lofthelgi fslands svo og fyrir loftför skrá- sett á íslandi, hvar sem þau eru stödd, svo fremi að þær brjóti ekki x bága við reglur, sem út hafa verið gefnar af því ríki, sem lög- sögu hefur á því svæði, er loftfar- ið flýgur yfir. Akránesi, 27. september. LISTAVERK Ásmundar Sveins- sonar, Píramidisk abstraktion, var afhent Akurnesingum síðast- liðinn föstudag. Kvenfélag Akra- ness gekkst fyrir kaupum á lista- verkinu í samvinnu við Menning- arsjóð Akraness og Sementsverk- smiðju ríkisins. Ásmundur lauk RAÐGJAFARNEFNDARFUND- UR Fríverzlunarbandalags Evrópu, EFTA, hefst á Hótel Loftleiðum á morgun, mánudag. Fundurinn hefst klukkan 16,30 á mánudag og í forsæti á honum verður Ólafur Jóhannesson við- skiptaráðherra, sem nú er for- maður EFTA-ráðsins. Fundinn sitja um 40 fulltrúar aðildarlanda EFTA, sem eru Austurríki, Is- land, Noregur, Portúgal, Svfþjóð, Sviss og Finnland, sem á auka- aðild að bandalaginu. Nefndin er SAMTÖK Amnesty International hafa að undanförnu ásamt fjöi- mörgum samtökum öðrum gert sér far um að beina athygli manna um heim allan að atburð- unum á Spáni. í fréttatilkynningu frá íslands- deild Amnesty International seg- ir að Franco-stjórnin hafi í æ rik- ara mæli beitt aðferðum, sem brjóta algjörlega f bága við mann- réttindaskrá Sameinuðu þjóð- anna og fjölmargar alþjóðasam- þykktir aðrar, til þess að berja niður andstöðu gegn því stjórnar- fari, sem hún heldur uppi. Samtökin Amnesty Internation- við frumgerðina árið 1959, en verkið var stækkað fjórum sinnum og stendur nú við Still- holt á Akranesi. Þetta er annað útilistaverk, sem Akurnesingar eignast, en fyrir stendur höggmynd Marteins Guðmundssonar af Sjómanninum við Akratorg. — Fréttaritari. skipuð fulltrúum atvinnugreina I löndunum, vinnuveitenda og launþega. Ráðgert er að fundin- um ljúki sfðari hluta þriðjudags. Fulltrúar á fundinum svo og ýmislegt starfslið EFTA, sem hingað kemur sem starfsfólk fundarins, kom flestallt til lands- ins f gær, þar á meðal fram- kvæmdastjóri Fríverzlunarbanda- lagsins B. Rabaeus. Ráðgert var — ef veður leyfði að þátttakendur færu f dag í skoðunarferð til Akureyrar og Mývatns á vegum al hafa staðfest að hundruð manna og kvenna sitja nú í dýflissum á Spáni vegna þess eins að skoðanir þeirra eru í andstöðu við ríkjandi stjórnarfar. Staðfest- ar skýrslur hafa einnig borizt til Amnesty um miklar pyntingar f pyntingar eru í vissum tilfellum taldar hafa leitt til þess, að sak- borningar hafa saklausir játað á sig sakir. Ellefu andófsmenn biða nú af- töku, sem samkvæmt ákvörðun herdómstóls á að fara fram í dag, laugardag. Hinum grimmúðlegu aðferðum Francó-stjórnarinnar við að halda uppi lögum og reglu, sem ofan á allt annað eru f andstöðu við spænsku stjórnarskrána, hefur verið mótmælt um alla Evrópu að undanförnu. Islandsdeild Amnesty Inter- national hvetur alla einstaklinga og samtök á Islandi til þess að sýna hug sinn til dauðadómanna og pyntinga fanga á Spáni með kröftugum mótmælum. íslands- deild Amnesty kréfst þess, að öll- um pólitiskum föngum á Spáni og annarsstaðar verði sleppt úr haldi og minnir á að almenningsálitið í heiminum hefur áhrif á allar rfk- isstjórnir. íslenzku ráðgjafartjefndarinnar. Hins vegar — ef veður væri slæmt — var fyrirhugað að þátt- takendur færu til Vestmanna- eyja. Fundir hefjast svo árdegis á mánudag og eru þeir óformlegir. Verða það fundir með þátttöku- ríkjum EFTA og fulltrúum Breta og Dana, sem áður voru í Fríverzlunarbandalaginu, en eru nú aðilar að Efnahagsbandalagi Evrópu. Á þeim fundi verður rætt um samband EFTA-Iandanna og Efnahagsbandalagsins og einnig verður rætt um vandamál þróun- arlandanna. Hinn formlegi fundur ráð- gjafarnefndarinnar hefst svo eins og_áður sagði klukkan 16,30 á morgun. Fyrsta umræðuefni á þeim fundi verður efnahags- ástandið í heiminum og EFTA- löndin. Fleira er ekki á dagskrá fundarins þann daginn, en fundir hefjast á þriðjudagsmorgun aftur klukkan 10. Verður þá rætt um efnahagsástandið í Protúgal og hugsanlega aðstoð EFTA- landanna. Þá flytur formaður skýrslu sfðasta fundar nefndar- innar, en síðan verður umræðu- efni um starfsemi EFTA og urn hugsanlega fríverzlun við Miðjarðarhafslöndin. Þá verður og rætt um tollamál o.s.frv. Allan straum af kostnaði við þennan fund, stendur EFTA. Nefndarfundir ráðgjafarnefndar Fríverzlunarbandalags Evrópu hefur einu sinni áður verið hald- inn á Islandi, árið 1971, en þá strax á eftir var haldinn fundur EFTA-ráðsins, en þann fund sitja eingöngu stjórnmálamenn og embættismenn. Mótmæltu dauðadómunum I GÆRMORGUN kl. 11 fyrir hádegi var efnt til útifundar á Lækjartorgi til að mótmæla dauðadómunum á Spáni. Safn- aðist saman hópur fólks og mót- mælti dauðadómunum. Þeir sem stóðu fyrir fundinum voru: Kommúnistasamtökin, Alþýðu- bandalagið í Reykjavík, Eik M-L, MFlK, Fylkingin, SlNE, SHI og Verðandi. Listaverk Asmundar afhent Akurnesingum Islandsdeild Amnesty International mótmælir dauðadómum á Spáni Merkjasöludagur Sjálfsbjargar HINN árlegi merkjasöludagur Sjálfsbjargar, landssambands fatlaðra, er í dag, sunnudag. Þá verður einnig selt blað sambands- ins „Sjálfsbjörg 1975“. Á Reykjavikursvæðinu verða merki og blöð afhent í barnaskól- um í Reykjavík, Kópavogi, Garða- hreppi, Hafnarfirði, Seltjarnar- nesi og Varmárskóla í Mosfells- sveit, auk þess sem afgreiðsla fer fram í anddyri Vinnu- og dvalar- heimilis Sjálfsbjargar, Hátúni 12. Ók á karl og konu og stakk af EKIÐ var á karl og konu á Nes- haga í fyrrinótt, skammt austan við Menningarstofnuii Bandarfkj- anna. Maðurinn slasaðist þannig að hann handleggsbrotnaði og skarst talsvert, en konan fótbrotn- aði og skarst einnig talsvert, er þau bæði lentu í framrúðu bif- reiðarinnar. Ökumaður bifreiðar- innar hvarf af slysstað og skildi bfl eftir með lyklum i. Hann gaf sig sfðar fram um nóttina og var þá ölvaður. Grunur leikur á að hann hafi verið ölvaður er slysið átti sér stað. Fólkið, sem ekið var á, mun hafa verið að koma af dansleik á Hótel Sögu. Bifreiðin, sem ók á það, mun ekki hafa verið á mikl- um hraða að því er verksummerki benda til, en óliklegt er að öku- maður hafi nokkuð verið búinn að slá af hraðanum, er fólkið skall á bflnum. Ökumaður hvarf af staðn- um og þrátt fyrir gaumgæfilega leit og fyrirspurnir um hann, fann lögreglan hann ekki. Siðla nætur gaf maðurinn sig síðan fram og var hann þá ölvaður. Fólkið sem ekið var á, var flutt í slysadeild Borgarspítalans og i gær, er Mbl. fór í prentun var fólkið enn i Borgarspitalanum. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var talið líklegt að karlmaðurinn fengi að fara heim af spitalanum, en ekki var vitað nógu gjörla um fótbrot konunnar og hvers eðlis það væri. Opið hjá Jens Urup um helgina NORRÆNA húsið fór inn á þá braut í sumar að breyta opnunar- tima þeirra sýninga, sem haldnar eru á vegum hússins, til samræm- is við aðra starfsemi hússins, þ.e. bókasafnsins, kaffistofu o.fl. Það þýðir að sýningarnar eru nú að- eins opnar til klukkan sjö á kvöld- in. Þetta á þó aðeins við um þær sýningar, sem haldnar eru á veg- um Norræna hússins. Þeir lista- menn, sem taka sýningarsalinn á leigu, geta eftir sem áður ráðið opnunartlmanum. Ekki virðast allir ánægðir með þessa tilhögun, og hafa nokkrir gestir borið fram kröftug mótmæli. Norræna húsið vill ekki láta þetta bitna á jafn góðum gesti og danska listmálaranum Jens Urup, og verður þvi sýning hans opin til klukkan 22 nú um helgina. Hann verður sjálfur á sýningunni og er fús til að leiðbeina um sýninguna og skýra glermyndirnar. Á sýn- ingunni eru um 30 olfumálverk, auk vatnslitamynda, grafíkmynda og klippimynda, og hafa nokkur verkanna selzt. Þá eru einnig á sýningunni frumdrög að gler- myndum, veggmyndum og mynd- vefnaði, og um 50 litskyggnur af veggskreytingum Jens Urups eru stöðugt sýndar. Á annað þúsund manns hafa séð sýninguna, en henni lýkur á þriðjudagskvöld.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.