Morgunblaðið - 28.09.1975, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.09.1975, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975 21 Rigge Gorm Holten Danskur surrealisti I Bogasal hefur dönsk listakona Rigge Gorm Holten verið með Rigge Gorm Holten. sýningu undanfarna daga og lýk- ur henni 28 september. Er hér um að ræða 29 surrealistískar mynd- ir, þar á meðal eru einnig 3 bóka- kápur og sýnishorn af mynd- skreytingum f barnabækur rithöf- undarins Knut Holten, sem er eig- inmaður listakonunnar. Mynúllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Rigge Gorm Holten er sjálf- menntuð og hefur einungis stund- að myndlist í 8 ár og í ljósi þess koma fram furðu þroskuð tækni- brögð og öryggi. Að vfsu koma fram greinileg áhrif frá surreal- istum líkt og t.d. Réne Magritte en þó er myndmál listakonunnar Tíminn og vatnið Tfminn og vatnið, hinn þekkti ljóðabálkur Steins Steinars, er ortur á myndauðugu máli, sem mjög hlýtur að höfða til hug- myndaflugs myndlistarmanna og er því merkilegt að ljóðabálkur- inn skyldi ekki vera myndskreytt- ur fyrr. En nú hefur Helgafell tekíð af skarið og gefið kvæðin enn einu sinni út og nú með myndskreytingum eftir Einar Há- konarson. Framtakið er mjög lofsvert frá hendi útgáfunnar og hér hefur ekkert verið til sparað hvað vand- aðan frágang og uppsetningu áhrærir, en listamaðurinn mun sjálfur hafa annast hönnun bókarinnar. Litbrá hefur leyst verk sitt vel af hendi hvað prent- un snertir og er áferð myndanna á stundum jafnvel betri en.frum- myndanna, en einnig lakari sem er óhjákvæmilegt. Nýlokið er sýningu í Unuhúsi við Veghúsastíg á frummyndum listamannsins og bókinni og gafst þar gott tækifæri til saman- burðar. Einar sagði I viðtali nýverið: „Að hann hafi gert sér grein fyrir því í upphafi, að myndirnar mættu ekki vera of sterkar þar Framhald á bls. 47. Myndllst eftir BRAGA ÁSGEIRSSON Flýjandi djúpfiski hlaðið glæru ljósi einskis. Ein af myndum Rigge Gorm Holten. á köflum sláandi ferskt og per- sónulegt. Hér virðist um sjálfsaf- hjúpun vitundarlifsins að ræða, — listakonan virðist kafa i undir- meðvitund sina og lýsa veruleik sinum, draumum og þrám sem eru mettaðar vitundinni um á- sókn sterkra holdlegra hvata. Er merkilegt hve langt listakonan kemst I lýsingu á því síðasttalda án þess, að myndir hennar verði grófar, — frekar að þær opinberi fegurð og dulmögn þessara frum- hvata, eindrægni og ást í samlynd- um heimi. Hún blandar austur- Ienzkum áhrifum, fjaðraskreytt- um indíánum, páfagaukum, sæl- legum manngervum með fílshaus og rana en þó mannsaugum, sem kyntáknum inn í myndir sinar, og allt virðist hér svo hreint, sjálf- sagt og saklaust, sem í árdaga. Liturinn er hin sterka hlið lista- konunnar I mörgum myndanna, án þeirra myndu þær næsta líf- vana, þetta kemur fram í þvi hvé bókateikningar hennar eru miklu síðri litmyndunum, og einnig hve bókakápur hennar eru léttar og lifandi í lit, og sláandi er hve typografían er létt og lifandi og i samræmi við myndmálið, og mjög í andstöðu við hina hörðu og ó- vægu typografíu auglýsingaiðnað- arins, gelda og ópersónulega. Sumum mun máski finnast, sem myndheimur Rigge Gorm minni á Flóka, en ég efa að um áhrif sé að ræða, frekar keimlík stefnumörk og áhrif. Ég álít að margur hafi ánægju af að skoða þessa sýningu, ekki síður en af þvi að skoða sýningar Flóka, og sýningin á það skilið að henni sé veitt eftirtekt. BOSCHL^n Vcndió valió -■ veljió BOSCH BRÆÐURNIR ORMSSON HF LÁGMÚLA 9 - SÍMI 38820 £böschJ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.