Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975
3
Talsmenn Framsóknarflokks og Alþýðuflokks:
Draga úr ásökunum í
garð siálfstæðismanna
^ a >■■■ - -m • Arvar“ cppir1 F'vrstll víð-
— vegna Ármannsfellsmálsins
BERSÝNILEGT er, að tals-
menn minnihlutaflokkanna í
borgarstjórn Reykjavíkur og
málgögn þeirra eru að byrja að
draga úr staðhæfingum um, að
tengsl hafi verið á milli lóðaút-
hlutunar til Ármannsfells og
framlags byggingarfélagsins til
byggingarsjóðs Sjálfstæðis-
hússins. Á þetta einkum við um
talsmenn Alþýðuflokksins pg
Framsóknarflokksins og mál-
gögn þeirra.
I Tímanum hinn 19. septemb-
er sl. birtist viðtal við Kristján
Benediktsson, borgarráðsmann
Framsóknarflokksins. Undir
mynd af honum birtist texti,
sem ekki er fyllilega Ijóst,
hvort hafður er eftir Kristjáni
eða líta ber á sem staðhæfingu
Tímans, en annað hvort er.
Textinn er svohljóðandi: „Ekki
nokkur vafi á þvf, að beint sam-
band er milli greiðslu Ár-
mannsfells hf. f húsbyggingar-
sjóðinn og úthlutunar á svæð-
inu, en þvf miður er þetta ekki
eina málið af þessu tagi, þau
eru fleiri.“ Hér er þvi fullyrt,
annað hvort af talsmanni Fram-
sóknarflokksins eða málgagni,
að beint samband hafi verið á
milli.
1 Tímanum sl. föstudag birt-
ist hins vegar viðtal við
Kristján Benediktsson á for-
síðu í tilefni af greinargerð
borgarstjóra. 1 viðtali þessu
virðist Kristján Benediktsson
ekki jafn viss og ofangreind
tilvitnun bendir til, um að sam-
band hafi verið á milli er hann
segir: „Sé ekkert samband
milli lóðaúthlutunarinnar og
peninganna, er þarna um mjög
óheppilega tilviljun að ræða
fyrir SjáIfstæðisflokkinn.“
í grein undir dulnefni á bak-
síðu Alþýðublaðsins hinn 23.
september sl. er því ákveðið
slegið föstu, að samband hafi
verið á milli fjárframlags og
lóðaúthlutunar er höfundurinn
,,#rvar“ segir: „Fyrstu við-
brögðin við afhjúpunum Al-
þýðublaðsins um mútuþægni
byggingarnefndar Sjálfstæðis-
hússins... “
I viðtali við sjónvarpið sl.
miðvikudag, sagði Björgvin
Guðmundsson, borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins hins vegar:
„Ég vil þó ekkert fuliyrða um á
þessu stigi, hvort samband sé á
milli fjárframlags Ármanns-
fells til Sjálfstæðishússins og
ióðarúthlutunar til félagsins."
Alþýðublaðið s-egir f forystu-
grein í fyrradag: „Alþýðublað-
ið ætlar að svo komnu ekki að
fella neinn dóm um það, hvort
tengsl séu á milli fjárgjafar
Armannsfells hf. til Sjálf-
stæðisflokksins og lóðaúthlut-
unarinnar til fyrirtækisins.“
Og enn segir Alþýðublaðið í
forystugrein i gær: „Alþýðu-
blaðið fær ekki séð að unnt
verði að sanna áþreifanlega, að
bein tengsl hafi verið þarna á
milli, þar eð aðilar málsins
neita þvf staðfastlega.“
Karlakór Reykjavíkur í söngför
til Bandaríkjanna og Kanada
— Heldur tvenna hljómleika í Háskólabíói
NÆSTKOMANDI miðvikudag, 1.
október, heldur Karlakór Reykja-
víkur f söngför til Vesturheims og
kemur fram á allmörgum hljóm-
leikum f Kanada og Bandarfkjun-
Kórinn fer með þotu frá Air
Viking, sem tekur 150 manns og
er hún fullskipuð farþegum. Flog-
ið verður beint til Winnipeg, þar
sem fram fer f vikunni menning-
armálaráðstefna á vegum stofn-
unarinnar Island — Kanada, en f
sambandi við ráðstefnuna verða
jafnframt listsýningar og hljóm-
leikar.
Ráðstefna þessi er síðasti hluti
hátíðahalda Vestur-íslendina í til-
efni 100 ára afmælis byggðar
þeirra í Kanada.
Karlakór Reykjavfkur kemur
fram á fyrsta degi ráðstefnunnar,
en megintilgangur ferðar kórsins
er að taka þátt f aldarafmælishá-
tíðahöldunum. Fyrstu hljómleik-
arnir eru haldnir f einu af
stærstu hljómleikahúsum Winni-
peg - borgar og er nær uppselt á
þá.
Kórinn hefur tvívegis áður
heimsótt byggðir Vestur-
Framhald á bls. 47.
um.
Nú um helgina lýkur sýningu Rigge Gorm Holten f Bogasal Þjóðminja-
safnsins. Aðsókn hefur verið með ágætum, enda eru myndir listakon-
unnar nýstárlegar. Litagleði hennar er mikil en súrrealisminn er
rfkjandi f myndunum. Nokkrar mynda hennar hafa selzt. Sýningin er
opin til kl. 22 f kvöld.
Omonia í dag
lSLANDSMEISTARAR Akur-
nesinga f knattspyrnu og liðið
Omonia frá Kýpur mætast f
Evrópukeppni meistaraliða á
Laugardalsvellinum í dag
klukkan 15. Þetta er sem kunn-
ugt er seinni leikur þessara
liða, en sá fyrri fór fram á
Kýpur fyrir viku sfðan og lauk
með sigri Kýpurliðsins 2:1. Eru
sigurlfkur Akurnesinga taldir
miklir f dag og þar með mögu-
leikinn fvrir liðið að komast í 2.
umferð keppninnar. Það hefur
aðeins einu fsienzku liði tekizt
áður, Val. Hins vegar hefur fs-
Ienzkt lið aldrei unnið leik á
heimavelli sfnum f Evrópu-
keppni.
Þegar leikið var á Kýpur á
sunnudaginn var hitinn 33 stig
og dró það mátt úr Akurnes-
ingum. Aftur á móti voru
Kýpurbúarnir í essinu sinu við
þessar aðstæður, en kulda eins
og hefur verið hér á landi und-
anfarið eru þeir alls óvanir.
Akurnesingar hafa lagt kapp á
miðasölu fyrir leikinn í dag
enda kostnaður vegna þátttöku
í keppninni mikill. Til dæmis
tóku eiginkonur leikmanna sig
saman og gengu i hvert einasta
hús á Akranesi á föstudags-
kvöld og buðu miða til sölu. Bar
það góðan árangur.
Meðfylgjandi myndir eru frá
leiknum á Kýpur. Á efri mynd-
inni sést litill Kýpurdrengur af-
henda Jóni Alfreðssyni fyrir-
liða Akurnesinga blómvönd, en
Jón skoraði eina mark liðs síns
i leiknum. A hinni myndinni
sést hvar menntamálaráð-
herrann á Kýpur heilsar upp á
leikmenn Akurnesinga og aftan
við hann er forseti
Knattspyrnusambands Kýpur.
Akumesingar
mœta KýpurUðinu
Allir fara í ferð með ÚTSÝN
London
Ódýrar vikuferðir:
7erð með vikugistingu
og morgunverði
VerSfrá kr. 38.000 -
Októþer.
5 , 12.. 18.
Sýningar í Kaupmannahöfn Costa
Elektronik '75 Del Sol
1 0— 1 6 okt. TORREMOLINOS
Scandinavian Sport BENALMADENA
article & Clothing fair 1 2.— 1 4 okt. Lengið sumarið
Verð: Laus sæti 5 okt
gisting og morgunverður frá kr. 38.300 — 2, 3 eða 4 vikur
Glasgow
Helgarferðir
Verð með gistingu
og morgunverði
frá kr. 24.840 —
Október 10 og 24.
Nóvember 7. og 21.
KAIMARÍEYJAFERÐIR
1975 — 1976
30. okt. 1975 3 vikur 5. febr 1976 3 vikur
20. nóv. 1975 3 vikur 12. feb 1976 3 vikur
4 des 1975 2 vikur 26. feb 1976 2 vikur
1 1 des. 1975 19 dagar 4 mar 1976 3 vikur
1 8. des 1975 3 vikur 1 1. mar. 1976 3 vikur
29. des 1 975 1 8 dagar 25. mar. 1976 3 vikur
8 jan. 1 976 3 vikur 1 apr. 1976 3 vikur
1 5 jan 1976 3 vikur 1 5 apr. 1976 ' 2 vikur
29 jan 1976 2 vikur 22. apr. 1976 3 vikur
Verð o o 00 CT> co k.'
AUSTURLÓND
Jólaferð til
Bangkok
Brottför 1 9. desember
7 dagar Bangkok
7 dagar Pattaya
2 dagar Kaupmannahöfn