Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975
• Um 800 milljónir Kfnverja eru nú hægt og treglega að gera sér
ljóst, að þeir tveir menn, sem hafa verið fremstu leiðtogar þeirra
undanfarna hálfa öld, — gegnum byltingu, borgarastríð og full-
veldi — eru ekki ódauðlegir. Nokkrum sinnum síðustu vikur hafa
þeir séð á sjónvarpsskermum sfnum Maó Tse-tung, formann, nú 81
árs og veiklulegan útlits, og þó að Chou forsætisráðherra, sem er 77
ára að aldri, virðist vera jafn frfsklegur og andlega hress og áður,
hefur hans opinbera heimili frá því f júlf verið sjúkradhús.
• Stjórn rfkisins frá degi til dags er nú þegar komin f hendur
fyrsta varaforsætisráðherrans, Teng Hsiao-ping, 71 árs að aldri, sem
einnig hefur tekið við ýmsum störfum Chous, eins og að hitta
erlenda leiðtoga á flugvellinum og stýra veizfum þeim til heiðurs.
Teng gegnir einnig mikilvægri stöðu yfirmanns herráðsins, en
herinn telur þrjár milljónir manna. Þá er hann einn af fimm
varaformönnum kommúnistaflokksins. Teng gegnir þvf forystu f
þremur helztu valdgreinum Kfna, — rfkisstjórn, her og flokki.
Ennfremur er talið að Teng
hafi tekið við því hlutverki
Chous, forsætisráðherra, að
bera ábyrgð á kjarnorku
sprengjuhnappnum, sem að
eins má þrýsta á þegar eld
flaugar sem stefnt er til Kina
eru komnar f loftið. Siðan i
„menningarbyltingunni" sem
hófst fyrir áratug hefur enginn
nema Maó formaður og Chou
tekið meiri háttar ákvarðanir.
Reyndar er ekki lagt út i neinar
aðgerðir í minni háttar vanda-
málum í verksmiðjum eða
kommúnu jafnt sem mikilvæg-
um þjóðmálum nema með
fjöldasamþykki.
Teng er f forsæti fyrir æðstu
valdastofnuninni, — fasta-
nefnd stjórnmálaráðs flokks-
ins, sem í eru nú aðeins þrfr
virkir nefndarmenn, Chang
Chun-chiao, 64 ára að aldri, sem
var forystumaður fyrir „menn-
ingarbyltingunni" og er frá
Shanghai, Yeh Chien-ying, 76
ára, varnarmálaráóherra og
dyggur stuðningsmaður Chous
forsætisráðherra, og loks hinn
ungi Wang Hung-wen, 38 ára að
aldri, sem, eins og Chang,
komst til frama í Shanghai sem
róttæklingur í „menningarbylt-
ingunni.“
„Faðir Rauða hersins", Chu
Teh, 89 ára að aldri, mætir að-
eins á brýna fundi, og við hátíð-
legar athafnir. Sama er að segja
um Kang Sheng, fyrrum yfir-
mann öryggismála, sem er 71
árs og heilsulaus, en Li Teh-
seng var hins vegar látinn
hætta sem félagi i þessari
„innri stjórn" skömmu eftir að
hann var útnefndur yfirmaður
hinnar mikilvægu herdeildar í
Manchuriu í desember 1973.
Þrátt fyrir ólfkar skoðanir
þessara fjögurra virku meðlima
fastanefndarinnar í „menning-
arbyltingunni", eru þeir nú al-
gjörlega einhuga um að Kína
skuli fylgja þeirri pólitísku línu
sem Maó formaður hefur lagt
og þeir munu halda áfram við-
námi gegn „sovézkri endur-
skoðunarstefnu". Enginn veit
styrk „endurskoðunarsinna"
innan hersins og flokksins, en
eftir óendanlegum straumi and-
sovézks áróðurs sem kemur frá
opinberum heimildum í Peking
að dæma, er Ijóst að yfirvöld
þar óttast aó enn séu margir
embættismenn ríkis og hers
sem leynilega fylgja Moskvulfn-
unni.
Enginn vafi leikur á því að
tilraun sú til valdaráns sem
gerð var af Lin Piao heitnum,
fyrrum varnarmálaráðherra,
sem einnig var valinn eftirmað-
ur Maós, átti mikinn stuðning
meðal hundruða yfirmanna og
hermanna sem þjálfaðir höfðu
verið af Sovétmönnum. Sfðan
hafa þessi öfl haldið kyrru fyrir
til þess að gefa ekki höggstað á
sér í herferðinni í fyrra gegn
hinum forna spekingi Konfúsí-
usi og Lin Piao. En diplómatar
frá Austur-Evrópulöndum í
Peking stæra sig £&því að sam-
skipti Kínverja og Sovétmanna
muni fara hraðbatnandi eftir
lát Maós.
Þó að engar líkur séu á þvf að
snúið verði aftur til kapítalisma
í Kína í einhverju formi, notar
stjórnin gamla landsherrann
ennþá sem grýlu númer eitt, —
eftir M.
Hollingworth
Daily Telegraph
Chou — enn hress, en
býr ásjúkrahúsi.
Teng — með valdaftök á
flestum sviðum.
Wang — unglingurinn
meðal valdamannanna.
<ii.l - , ' * ■ >■ í- > í ^ x ^ 5 J
* r ^
■* ~2P * * |i: | mm | * *«■ Iky 4ij L11 *: mm » * w
ef til vill til að komast á snoðir
um grunlausa „endurskoðunar-
sinnaða Rússavini".
Sú herferð til að varna ein-
ræði öreiganna, sem hafin var
eftir fjórða þjóðarþingið i janú-
ar s.l., er gerð undir forystu
allra leiðtoganna. Aúk þess sem
henni er ætlað að hafa ofan af
fyrir „obba þjóðarinnar" og
halda honum stjórnmálaiega
virkum eftir vinnudag, á hún
sér tvenns konar tilgang. I
fyrsta lagi að auka framleiðsl-
una f landbúnaði og iðnaði, og f
öðru lagi að ryðja brautina fyr-
ir frekari þróun frá sósfalisma
til virkilegs kommúnisma.
1 mörgum landbúnaðar-
kommúnum er þegar mikil til-
hneiging í átt til afnáms einka-
landsvæðis, en það hefur verið
helzti ásteytingarsteinn milli
hinna hægfara og róttæku frá
því fyrir „menningarbyltingu."
I kommúnum nálægt stórborg-
um er fjölskyldum með einka-
landsvæði leyft að selja fram-
leiðslu sína á mörkuðum.
I iðnaði hefur átta stiga
launakerfið orðið fyrir gagn-
rýni 'frá róttækum öflum og
ungu fólki. Verksmiðjuveggir,
einkum f hinum nýja iðnaði í
Sian, Wuhan, Cheng Chou og
Loyang eru þaktir veggspjöld-
um þar sem krafizt er „allsherj-
arlauna“ og úthlutun húsnæðis
og annarra hlunninda á grund-
velli „þarfa hvers og eins“, en
ekki samkvæmt getu og hæfi-
leikum.
En þróunin f átt til virkilegs
kommúnisma mun ekki verða
þrautalaus með tilliti til þeirrar
heildaráætlunar ríkisins sem
Chou forsætisráðherra til-
kynnti á fjórða þjóðarþinginu
um að breyta Kína í nútímalegt
iðnaðarríki snemma á níunda
áratug aldarinnar. Því að þrátt
fyrir opinbera andstöðu innan
flokksins gegn „gróðavon ein-
staklinga", og þrátt fyrir trú-
mennsku þeirra milljóna smá-
bænda sem eru a.m.k. 80%
þjóðarinnar við vinnu sfna, þá
er eftirvinna ekki alltaf litin
óhýru auga af verksmiðjufólki,
sem vinnur án aukagreiðslna.
I Peking neita hins vegar bíl-
stjórar og aðrir að vinna nema
þeir fái tvöfalt kaup 1. maf eða
á vorhátíðinni. Ríkið styður
þessar kröfur.
Þetta er það sem efnahags-
sérfræðingar og þaulreyndir
skriffinnar stjórnvalda í Pek-
ing miða við þegar þeir leggja
sfðustu hönd á fimmtu fimm-
áraáætlunina, sem hefst í janú-
ar á næsta ári, og mun
ásamt hinni metnaðarmeiri tíu-
áraáætlun sem ætlað er að
breyta Kína í nútímalegt iðnað-
arríki, ákveða framleiðslutak-
mörk næsta árs. I öllum tilvik-
um eru hinar upphaflegu áætl-
anir, sem koma frá Peking,
ræddar og gagnrýndar í ein-
stökum héruðum, hreppum,
kommúnum og verksmiðju-
deildum. Athugasemdir verka-
fólksins eru teknar til athugun-
ar í ráðuneytum í Peking áður
en lokatakmörk eru tilkynnt
fyrir olíuvinnslusvæði, skipa-
smfðastöðvar, verksmiðjur og
kommúnur.
Þó að verðlag innanlands á
nauðsynjafatnaði og mat sé ná-
kvæmlega það sama og var fyr-
ir 20 árum hefur samdráttur
efnahagslffsins í heiminum að
undanförnu haft alvarleg áhrif
á útflutning Kinverja. Reyndar
voru Kínverjar í fyrra með
óhagstæðan viðskiptajöfnuð
sem nam 550 milljón sterlings-
pundum, en það er ákaflega
alvarlegt fyrir ríki sem neitar
að taka lán eða greiðslufrest á
grundvelli sjálfsbjargarstolts.
Þess vegna reyna Kínverjar
nú að róa öllum árum að þvf að
framleiða hráolíu sem þeir geta
selt til Japans. Hingað til hefur
bensfniðnaðurinn og eldri iðn-
aðarstofnanir ekki orðið illa úti
vegna óánægjuöldu þeirrar sem
valdið hefur alvarlegum sam-
drætti f járn- og stálframleiðslu
og kemur niður á starfsemi
járnbrautanna um vor og árla
sumars.
Teng Hsiao-ping hefur viður-
kennt að fréttir um deilur milli
andstæðra stjórnmálahópa og
óánægju séu ekki tilhæfulaus-
ar. Reyndar hefur borið á aukn-
um deilum milli þessara hópa
sem snerust hver gegn öðrum í
,,menningarbyltingunni“. Deil-
urnar eru venjulega milli rót-
tækra og hægfara, — vinstri og
hægri —, innan kommúnista-
flokksins, en stundum eru þær
milli flokksbrota sem berjast til
valda á ákveðnum stað án þess
að um hugmyndafræðilegt
ósamkomulag sé að ræða.
Deiíur milli stjórnmálahópa
og launadeilur hafa komið upp
á yfirborðið í mörgum iðnaðar-
borgum á veggspjöldum sem
hin nýja stjórnarskrá leyfir að
Iímd séu á veggi. Þessi spjöld
þjóna prýðisvel útrásarhlut-
verki og enginn vafi er á þvf að
,,yfirmaður“ byltingarnefndar-
innar fær fljótt að vita um mis-
tök og afglöp sfn. Margir með-
limir byltingarnefndarinnar
birta reyndar opinberlega
gagnrýni á sjálfa sig, en það
segir sína sögu að fáir ef nokkr-
ir valdamenn innan hers, sveit-
ar eða verksmiðju hafa misst
stöðu sína vegna kvartana á
undirrituðum veggspjöldum.
Hinir eldri embættismenn
rikis og flokks sem sneru aftur
til að hjálpa hernum við að end-
urreisa stjórnina í lok „menn-
ingarbyltingarinnar“ eru enn
við völd þrátt fyrir þá yfirlýs-
ingu sem Chou hefur gefið út
hvað eftir annað að „þúsundnr
eftirmanna", ungir, miðaldra
og aldraðir, væri i þjálfun til að
taka við af núverandi valda-
mönnum á öllum valdstigum.
En „gamlingjarnir“ hafa
reynsluna, og ekki er búizt við
neinni skyndilegri upplausn
eða stjórnmálakreppu þegar
Maó formaður „fer á fund guða
sinna“, eins og hann orðar það
sjálfur. Hundruð milljóna
manna munu syrgja er þau
reyna að ná þeim markmiðum
sem hann hefur sett.