Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGyR 28, SEPTEMBER 1975
Tónlistarkvöld M.H. no.
SPILVERK l'JllhAMA
fslenzk tónlistarkvöld eða aðrar
kvöldsamkomur byggðar upp í
kringum tónlist virðast undanfarin
ár nær eingöngu koma frá fram-
haldsskólum höf uðborgarinnar
s.s. menntaskólunum. í þeim efn-
um verður Menntaskólinn við
Hamrahlið að teljast fremstur,
enda húsakynni skólans mjög góð
fyrir slika starfsemi, ef hugað sé
að húsplássi. Hljóð er svo aftur á
móti likt og i öðrum samkomu-
sölum borgarinnar vægast sagt lé-
legt.
Þetta fyrsta tónlistarkvöld M.H.
þennan veturinn skiptist i tvo
hluta. Sá hinn fyrri byggði á fram-
lagi nemenda til tónlistarinnar.
Þrjár ungar stúlkur fluttu sitthvert
verkið fyrir einleikspianó. Fyrst
kom inn á sviðið Ingibjörg Lofts-
dóttir, sem lék verk eftir Debussy.
Siðan lék Steinunn Birna Ragnars-
dóttir rómönsu eftir Sibelius.
Þessum fyrri hluta lauk svo með
etiðu eftir Chopin fluttri af
Hrafnhildi Steinarsdóttur. Leikur
hennar var áberandi beztur hvað
fimi og öryggi snertir. Hrafnhildur
var t.d. sú eina, sem lék án nótna.
Virtist hún sem sagt greinilega
miða efnisval sitt við flutnings-
getu. Verkin voru annars tiltölu-
lega létt og skemmtileg nema
verk Hrafnhildar, etíða Chopins,
var aII tilbreytingarlaust og fullt
endurtekninga.
Að loknu um það bili 20
mínútna prógrammi klassískrar
tónlistar kom 10 minútna hlé,
sem varð svo 20—30 minútur.
Framhald þeirrar samkomu er átti
sér stað í upphafi tónleikahalds-
ins. Tók nú við Spilverk þjóðanna
búið i klæði eftirvæntingarfulls
augnabliks. Hafið upp úr meðal-
mennsku áhugamannsins, sem
segja má að stúlkurnar þrjár hafi
skipað i upphafi tónleikanna,
sama hlutverk og Spilverkið gerði
meðan meðlimir þess voru nemar
við M.H. fyrir nokkrum árum.
Spilverk þjóðanna verður i dag að
teljast eini flokkur islenzkra tón-
listarmanna, er byggir afkomu
sina eingöngu á tónleikahaldi og
hljómplötuútgáfu. Lítill sem
enginn kostnaður á tækjaflutningi
er án efa sá grundvöllur, er Spil-
verkið starfar á. Einnig verður að
telja hinn nokkuð svo sérstæða og
upprunalega stil, er þeir Egill, Val-
geir og Sigurður hafa níð að
skapa með sér, stuðla að áður-
nefndum starfsgrundvelli fyrit
Spilverkið. Hinn upprunalegi tón
stíll Spilverksins sem örugglega 1.
engan sinn lika á meðal íslenzkrz
áhrifagjarnra tónlistarmanna hef
ur sannað að vissu marki grund
völl fyrir tónleikahaldi hér á landi.
Sá fjöldi, sem komst á tónleika-
kvöld. M.H. siðastliðinn þriðjudag
ásamt þeim tugum eða jafnvel
nokkrum hundruðum manna er
þaðan urðu frá að hverfa vegna
húsfyllis eru talandi tákn þessa.
Spilverkið hefur augljóslega
gert sér grein fyrir þeirri stað-
reynd, að það er í upphafi verk
tónlistarmannanna sjálfra að
byggja upp grundvöll tónleika-
halds en ekki fólksins sem kemur
til með að hlýða á þá.
Spilverkið hóf tónleikana með
lagi i islenzkum þjóðlegum stil og
þar af leiðandi sungið á islenzku.
Segja má að þessi hressilega
byrjun upphafslags hafi i mörgu
minnt mig á upphaf miðlags
gamals sjónvarpsþáttar með Spil-
verkinu, þ.e. all þjóðleg byrjun.
Næst tók við hið skemmtilega lag
Sigurðar bjólu, Lazy Dazy.
Konsertinn leið svo áfram með
rólegum og liflegum sveiflum,
sem enduðu svo með lagi Sigurðar
bjólu. All Hands on Deck. Þetta
lag hefur Jakob Magnússon
nýlega gefið út á litilli plötu eins
og kunnugt er. Flutningur Spil-
verksins á þessu lagi sannar samt
sem áður greinilega hvar eða öllu
heldur hvernig á að lifa. Hljóm-
leikunum lauk svo með uppklappi
tvivegis, og svo söng dýranna i
Týról.
Lagavalið byggir Spilverkið
annars vegar á a11 auðmeltum og
líflegum lögum, hins vegar er hinn
hluti þess róleg og oft á tíðum a11
tormelt lög, a.m.k. við fyrstu
áheyrn. Rólegi kaflinn fannst mér
að mörgu leyti spila of stórt hlut-
verk á tónleikunum i Hamrahliðar-
skólanum (s.s. langur kafli á und-
an lcelandic Cowboy). Þetta hafði
all slævandi áhrif á athygli fólks-
ins I salnum og gerði þvi erfiðara
um vik að taka þátt i tónleikahald-
inu. Vil ég jafnframt lýsa söknuði
minum yfir vöntun lagsins Plant
no Trees in The Garden i laga-
prógramminu að þessu sinni.
Raddsetning, og söngur þeirra
Spilverksmanna hefur að mestu
ieyti skapað og myndað þann tón-
listarstil, er fram hefur komið hjá
þeim. Samæfðari og nátengdari
söngur en nokkru sinni áður
spilaði þar af leiðandi stórt hlut-
verk þetta kvöld. Sigrún Hjálmtýs-
dóttir (Diddú), sem nú virðist vera
orðinn fastur meðlimur i Spilverk-
inu, hefur undanfarið aukið veru-
lega á fjölbreytni raddsetningar
þess með all jassaðri söngrödd
sinni. Einsöngskaflar hennar voru
aftur á móti ekki eins sterkir, þó
ekki sé hægt að setja út á þá að
neinu marki. Leiðinlegast þótti
mér hve Sigurður bjóla kom veikt
út jafnt i söng sem hljóðfæraleik.
Vekur þetta spurningu hjá manni
hvort rafmagnað kerfi að ein-
hverju marki sé ekki nauðsynlegt
á þetta stórum konsert. Einnig
skal hér i framhaldi geta þess. að
minnkandi notkun slagverkshljóð-
færa minnkar tónlistarlega fjöl-
breytni Spilverksins og gerir tón-
list þeirra flatari eða einhæfari.
Svo litillega sé vikið að hinum
hluta tónleikaprógramms Spil-
verksins, er Spilverkið byggir tón-
leikahald sitt á, þ.e. sviðsfram-
komunnj og öllu þvi tali og sér-
stöku töktum sem henni fylgja,
finnst mér hún oft á tiðum fara út
i algerar öfgar og tók þessi hluti
konsertsins F M.H. t.d. allt of
langan tima. Samt sem áður
skapar sviðsframkoma þeirra oft á
tiðum ákveðna stemningu. En
hinn óþroskaði íslenzki áheyrandi
er oft á tíðum bein afleiðing
fábreytilegs tónleikahalds, og tek-
ur því ekki við henni. Áhorfendur
virðast ekki skynja þá staðreynd
að þeir eru ákveðinn hluti stemn-
ingarinnar.
Þetta var einmitt dæmigert fyrir
þetta tónlistarkvöld. Áheyrendur
tóku eingöngu við þvi sem að
þeim var rétt en létu ekkert I
staðinn.
Að lokum vil ég lýsa þvi yfir að
sjaldan hef ég séð Spilverkið
öruggara i framkomu og lausara
við allt taugastríð.
mmt
ROKKTÉ
- TRIJ ÁS
ROKKTÓNLIST annarsvegar
og trúmál eöa andleg efni hins-
vegar voru lengi talin með öllu
ósamræmanleg vegna þess hve
efnishyggja og jaröbundið líf er
stór þáttur í öllu því umhverfi
er rokktónlist kemur úr, en
þetta sama umhverfi varð svo
einnig til þess að vekja trúar-
áhuga hjá rokkstjörnum.
Fyrstu yfirborðseinkennin
komu fram rétt fyrir 1960, er
Little Richard tilkynnti að
hann væri orðinn þreyttur á
stjörnudýrkuninni og vildi losa
sig við allan auð sinn og snúa
sér að því að syngja gospel-
sálma, kristninni til dýrðar, og í
byrjun sjötta áratugarins lýsti
Cliff Richard því yfir að hann
viidi skipta á ferli sfnum sem
tónlistarmaður og klausturlífi.
Reyndin varð sú að báðir stefna
enn að markmiðum sínum, þ.e.
eru enn í tónlistarlífinu. En
sumarið 1967 urðu ýmsar mikil-
vægar breytingar í rokktónlist-
inni. Meðal annars myndaðist
flower power-stefnan eða —
menningin. Flower power-
stefnan byggðist m.a. á neyzlu
eiturlyfja, opinskáum tjáning-
um, afturhvarfi til náttúrunnar
með flökkulífi og stór þáttur í
henni var af andlegum og
trúarlegum toga spunninn. The
Beatles, The Beach Boys, Dono-
van o.fl. fóru til Indlands og
gerðust lærisveinar Yogi Ma-
harishi Mahesh, og báru með
sér til baka til Evrópu og
Bandaríkjana austurlenzk
hljóðfæri og tónlistaráhrif.
Segja ,má að 1967 og 1968 hafi
dultrú og andleg efni verið
hluti af rokktónlistinni. En
þessí stefna dofnaði fljótt því
margir tóku að sakna fyrra líf-
ernis. Það var svo árið 1970,
með tilkomu rokkóperunnar
„Tommy“ frá The Who, „Jesus
Christ Superstar" eftir Tim
Rice og Lloyd Webber, „All
Things Must Pass“ eftir George
Harrison, að það upphófst hin
svonefnda „Júsú-bylgja,“ sem
dró til sín mikinn fjölda manna
i mörgum löndum. Allstaðar
var óperan Jesus Christ Super-
star setti á svið og síðan
mynduðust ýmsar hliðstæður
því glöggir kaupsýslumenn sáu
sér fljótt leik á borði til að ná í
peninga. Hópar af „Jesú-
börnum“ mynduðust og hrifu
ótrúlegustu menn með sér.
George Harrison söng „My
Sweet Lord“, José Feliciano
söng „Come To Me Jesus", The
Doobie Brothers sungu „Jesus
is Just Allright" o.s.frv.
En bylgjuna lægði um leið og
fólk fékk leið á þeim lögum og
söngleikjum sem komu henni
af stað og sýnir það hversu
innantóm hún var.
Island slapp þó að mestu við
fyrirbærið.
Af árangri þessara hreyfinga
sem urðu 1967 og 1968 og
„Jesú-bylgjunni“ gátu rokk-
hljómsveitir og listamenn
seinni tima þó ýmsan lærdóm
dregið, því með sífelldri fjölg-
un manna, er rokktónlist leika,
og aukinni samkeppni í grein-
inni verður æ erfiðara fyrir ein-
staka menn að skapa sér sér-
stöðu og séreinkenni til að
vekja athygli fjöldans. Hafa því
ýmsir þeirra séð sér leik á borði
og tekið að sýna trúarlegar hlið-
ar á sér og framleiðslu sinni.
Árin 1973 og 1974 komu m.a.
út fjórar plötur með trúarlegu
efni, er mikla athygli vöktu.
Qirbs Sanfana Mahavishnu John McLaughlin
LOVE
DEVOTION