Morgunblaðið - 28.09.1975, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. SEPTEMBER 1975
19
Isinki?
Willy Brandt, fyrrverandi
kansfari Vestur-Þýzkalands:
„Það rennur engin gullöld upp
með Helsinkifundinum. Plógför
in í Evrópu verða ekki sléttuð og
múrar verða ekki brotnir niður.
Herir, gráir fyrir járnum, munu
eftir sem áður standa augliti til
auglitis. Togstreita mismunandi
þjóðfélagsskipunar og gerólíks
gildismats heldur áfram . .. Þó
gæti hugsazt, að öryggismálaráð-
stefnan verði upphaf og hvati að
meiri samvinnu ... Kalda strfðið
var ekki svo unaðslegt, að nokk-
ur eftirsjá sé að því.“
Michel Jobert, fyrrverandi ut-
anríkisráðherra Frakklands:
„Það er aldrei til ills að tala um
öryggi, og það er betra að tala um
öryggi en stríð. Frá árinu 1954
hefur þessi ráðstefna verið tak-
mark sovézkra ráðamanna og
leiðtoga f Austur-Evrópu, bæði
með tilliti til utanrfkis- og innan-
ríkismála. Hefði ráðstefnan ekki
verið haldin, hefði það skoðazt
sem mistök þeirra, þannig að ráð-
stefnan ber því fyrst og fremst
vitni, að þeir hafa náð góðum
árangri. Nú heyrir Helsinkifund-
urinn fortíðinni til. Þeir vildu ná
mynd af Evrópu eins og hún var
fyrir 30 árum. En myndin sýnir
allt annað en menningarlega vit-
und Evrópu. Það er miklu meira
samband milli fólksins en milli
ríkjanna. Rfkin standa fólkinu
langt að baki.“
Robert Conquest, brezkur sov-
étfræðingur:
„Það andrúmsloft, sem nú rfk-
ir, er slæmt. Tillit hefur ekki
verið tekið til vilja almennings
og alið er á kenningunni um að
„þetta séu ágætis skinn“. Þetta
isleysi okkar sem þjóðar liggur í
atvinnuleysi og verðbólgu —
ekki í hræðslu við kjarnorku-
styrjöld. Samt sem áður hafa
Bretar alltaf staðið sig ágætlega í
þessum heimsmálum. Við erum
sérfræðingar í þeim, enda þótt
við séum ekkert heimsveldi á þvi
sviði. Mér finnst Harold Wilson
hafa verið Bretlandi til sóma í
Helsinki. Hann er glúrinn ná-
ungi, og ég hugsa að honum hafi
þótt barnaleikur að fást við
Brezhnev og kompaní samanbor-
ið við verkalýðshreyfinguna okk-
Margaret Thatcher, leiðtogi
brezka ihaldsflokksins:
„Vitaskuld viljum við reyna að
gera heiminn þannig, að sam-
skipti okkar við Sovétríkin bygg-
ist á friði og trausti. En sé heim-
urinn ekki þannig — sem hann
er augljóslega ekki — þá er að-
eins það að segja það, að aðeins
það að látast að heimurinn sé
bannig — jafn heimskulegt og
það er hættulegt.
Staðreyndirnar blasa við, — sú
staðreynd að á þessum áratug
slökunarstefnu hefur herveldi
Sovétríkjanna eflzt, er enn að
eflast og engin merki eru sjáan-
leg um samdrátt að því leyti.
Þegar rakinn er ferill samninga
við Sovétríkin má draga af þann
lærdóm, að ef látið er að vilja
þeirra án þess að krefjast ein-
hvers í staðinn, þá líta þeir ekki á
það sem endurgjaldsverðan
greiða, heldur veikleika, sem
sjálfsagt sé að hagnýta.
Orðaflaumur frá leiðtogafundi
hefur enga þýðingu, nema í kjöl-
farið komi aðgerðir, sem bera
bess vott, að rótgróið hugarfar
Sovétleiðtoganna hafi raunveru-
lega breytzt.“
SÍÐAST
INNRITUN ARDAGUR
um nú veitast erfiðara en áður að
koma sér upp leppstjórnum. En
það gerir bara andskotann ekk-
ert til því að þeir eru hvort sem
er með hersveitir sínar allsstað-
ar, svo að það þarf ekkert að
kalla í þá. Þegar maður les yfir-
lýsinguna, þá kemur f ijós, að
hún er ekkert annað en afrit af
mannréttindayfirlýsingu Sam-
einuðu þjóðanna og ekkert fram
yfir það. Eina málið, sem ríkis-
stjórnir skilja, er valdapólitík.
Finnland hefur fengið huggu-
lega diplómatíska viðurkenningu
og Kekkonen hefur fengið
skemmtilega afmælisgjöf. Að
öðru leyti hefur þetta ekki bætt
hag Finnlands neitt, ekki með
þennan nágranna. Við vitum um
græðgi austursins í tækniþekk-
ingu Vesturlanda. Vesturlönd
verða að halda yfirburðum sín-
um á tæknisviðinu. Það er bezta
vörnin gegn fleiri styrjöldum."
Georg Ball, fyrrv. aðstoðarut-
anríkisráðherra Bandaríkjanna:
„Eins og hvert skólabarn ætti
að vita, þótt of fá geri það, þá lét
Potemkin prins hrófla upp
bráðabirgðaþorpum meðfram
bökkum Dnjepr áður en Katrín
mikla sigldi niður eftir fljótinu
með erlenda erindreka til að
sýna þeim veldi og viðgang „rúss-
nesku mömmu".
Að mörgu leyti var Appollos-
Soyus-leikritið jafn fullkomin
blekking, en að þessu sinni var
það Ameríka, sem lék hlutverk
Potemkins og hengdi upp leik-
tjöldin. Við kostuðum uppfærsl-
una, það var Apollo-geimfarið,
sem gerði stefnumótið mögulegt,
tengdist Soyuzi og hélt síðan
haldið geimförunum tveimur á
réttri braut, meðan amerísk fjar-
skiptatæki voru 1 gangi í báðum.
Enda þótt tækniþróun okkar hafi
þarna verið ómissandi þá tókum
við þátt í að gefa umheiminum
þá mynd, að þarna hafi verið um
að ræða árangur tveggja þjóða að
jöfnu. Með táknrænu handtaki
var sfðan gefið í skyn, að Rússar
væru vinveittir samstarfsmenn
okkar i þágu mannkynsins.
Allt var þetta gert í nafni „dét-
ente“ sem er fremur orðið þrá-
hyggja en stefna. Auðvitað getur
Bandaríkjaforseti ekki verið að
eyða tíma sínum í að bjóða til sín
Alexander Solzhenytsin, sem er
óþægilega opinskár um málefni
Sovétríkjanna, þegar hann er að
fara til Helsinki til að faðma
Brezhnev og halda hátíðlega Ör-
yggismálaráðstefnu Evröpu. Og
hvað þetta er nú allt saman hug-
ljúft fyrir Sovét-leiðtogana, sem
eru búnir að stefna að þessari
ráðstefnu í tuttugu ár! Að hafa
leiðtoga 35 ríkja sötrandi kampa-
vfn til dýrðar árangri ráðstefn-
unnar frammi fyrir myndavélum
sjónvarpsstöðva um víða veröld
er sigur Brezhnevs en ósigur
Vesturlanda.
En hver er hin raunverulegi
Framhald á bls. 47.
DMISSIfðLI
SIVRIDSSODDR
m niðurstöðuna?
virðist fyrst og fremst byggjast á
viljaleysi til að gera sér grein
fyrir djúpstæðum sovézkum
skapgerðareinkennum. Tökum
til dæmis „grein þrjú“, þar sem
fjallað er um mannleg samskipti,
upplýsingar og menningu. Þessi
grein er full af loforðum, en þar
er ekki að finna eitt einasta á-
kvæði um að Rússar efni þessi
loforð. Helmingur rússneskrar
menningar er enn neðanjarðar,
eða þá á Vesturlöndum, sbr.
Solzhenitsyn. „Mannréttinda“-
loforðin eru ekki jafnvirði papp-
frsins, sem þau eru rituð á og við
höfum engum teljandi árangri
náð á sviði afvopnunar.“
Martin O’NeiIl, bókari f Lond-
on:
„Ég hef nú bara ekkert verið á
spá í þetta, en það sama held ég
að hægt sé að segja um langflesta
f þessu landi. Ég er hræddur um,
að við höfum nóg af vandamálum
hér innanlands þó að við förum
ekki að gera okkur rellu út af
þvf, sem gerist í Helsinki. örygg-
Jörn Donner, finnskur kvik-
myndastjóri og rithöfundur.:
„Árangur leiðtogafundarins er
sá, að nú geta Sovétríkin ekki
ráðizt inn í 500 lönd, án þess að
samþykki þeirra komi til. Það er
allt og sumt. Að vfsu mun Rúss-
Miehel Jobert
Innritun daglega frá kl 10—1 2 og 1 — 7.
REYKJAVÍK
Brautarholt 4 símar 20345 og 24959
Breiðholt. Kennt verður I nýju húsnæði að
Drafnarfelli 4 slmi 74444.
KÓPAVOGUR
Félagsheimilið sími 84829.
HAFNARFJÖRÐUR
Góðtemplarahúsið simi 84829.
SELTJARNARNES
Félagsheimilið slmi 84829.
KEFLAVÍK
Tjarnarlundur slmi 1690kl. 5 —7.
UNGLINGAR
Allir nýjustu táningadansarnir — svo sem
Hustler, Bump (Boom), Kung Fu, El Bimbo,
Brazilian Carneval, Harlem og margir fleiri.
SÍÐASTI INNRITUNARDAGUR ER Á MÁNUDAG 29. SEPT
i
Margaret Thatcher
George Ball