Morgunblaðið - 28.09.1975, Síða 24
INNGANGSORÐ
Buckminster Fuller er Leonardo da
Vinci okkar tíma. Hann er listamaður,
stærðfræðingur, uppfinningamaður,
hugsuður. Eins og Leonardo er hann
ekki síður samtímamaður þeirra, sem
eiga eftir að lifa á jörðinni en okkar sem
nú lifum. Hann sér inn i framtíðina og
heimssýn hans er byggð á traustum
grunni, þ.e. nýjustu niðurstöðum í vfs-
indum, og þá ekki sízt stærðfræði,
stjörnufræði og heimsmyndarfræði, ef
svo mætti að orði kveða.
Leonardo var ekki einasta einn mesti
listamaður sem lifað hefur, heldur gerði
hann ótal teikningar af hugmyndum
sínum. Sumar þeirra urðu ekki að veru-
leika fyrr en mörgum öldum siðar.
Allan tímann sem við Buckminster
Fuller töluðum saman var hann síteikn-
andi til að skýra hugmyndir sinar um
allífið og altilveru, staérðfræðiformúlur,
uppfinningar'og heimsmynd. Sem sagt:
jafnframt þvi, sem hann talaði teiknaði
hann hugmyndir sínar eins og Leonardo.
Hinn síðarnefndi hugsaði sér flugvélar
og ýmiss konar fyrirbæri sem við höfum
nú daglega fyrir augum. Buckminster
Fuller gerði fyrir hálfri öld uppdrátt að
baðkérum, sem nú loks eru að komast í
notkun. Hann hefur hugsað mikið um
flugvélar, geimför; teiknað þríhjóla
straumlinubíl, ólíkan öllum öðrum bif-
reiðum sem við þekkjum og á vafalaust
eftir að setja svip sinn á mannlífið ein-
hvern tíma i framtíðinni, báta o.sv.frv.
Hann segir að tæknin í flugi sé komin
langtum lengra en t.a.m. tækni og
hönnun bílsins, enda skiljanlegt þar sem
loftför verði að vera fullkomin til að
koma í veg fyrir stórslys, en hver sem er
geti ekið bíl án þess að nauðsynlegt sé að
leggja í hann alla tækniþekkingu sam-
tímans. Hann hefur gert uppdrætti að
fljótandi brimbrjótum sem nú eru i
reynslu og eiga áreiðanlega eftir að
koma við sögu Islands, ekki síður en
annarra landa. Nú er unnið að þvi að
gera þá svo fullkomna, að þeir vinni
orku úr sjávarföllunum samtimis því
sem þeir verja hafnir. Hann gerði á
sínum tíma áætlun um milljarðaborg á
jörðinni, hefur komið fram með tillögu
um að setja hvolfþak yfir Manhattan, og
hanna fljótandi borgir sem liggja eins og
skip fyrir akkerum, Baltimore hefur
haft áhuga á að byggja fyrstu1 fljótandi
borgina á sjó og bandaríski flotinn hefur
staðfest útreikninga og uppdrætti Buck-
minster Fullers, en kostnaðaráætlun er
mun minni en þegar byggt er á landi.
Hann er einnig með ráðagerðir um að
senda burðarvirki i borgarhvolf með eld-
flaugum. Það yrði sfðan formað með því
að láta það snúast um sjálft sig í geimn-
um og myndaði hálfkúluborg sem yrði
allt að þrir kílómetrar í þvermál.
Hann hefur einnig teiknað fljótandi
kúlulaga loftborgir úr álstöngum, um
V/í km í þvermál. Borgin mundi svifa
með eftirfarandi hætti: álgrindin er
hjúpuð með glæru efni sem hleypir
sólargeislunum í gegnum sig. Sólargeisl-
arnir fara í gegnum grindina, endurkast-
ast frá andstæðum innra fleti hennar og
vegna þess að þetta er kúla endurkastast
sömu geislarnir allir að einum brenni-
depli í miðju kúlunnar, en þar yrði þá
mörg hundruð gráða hiti. Frá þessum
hitagjafa hitnar loftið inni i kúlunni, en
vegna stærðar hennar getur þetta loft,
sem dreifist um alla kúluna, lyft henni
frá jörðu. Til þess að þetta sé unnt má
kúlan ekki vera minni en VA km í þver-
mál. í slíkri kúlu gætu 5000 manns haft
aðsetur. Þetta fyrirbrigði kallar hann
niunda himin.
Þarna getur m.a. verið lausn þess,
hvernig maðurinn færi að því að lifa af
isöld.
Buckminster Fuller hefur einnig hugs-
að um krabbamein og orsakir þess og
sett starfsemi og gerð krabbameinsfrum-
unnar í samband við alheimslögmálin,
sem hér verða skýrð á eftir.
Hann hefur einnig hugsað mikið um
orku vindsins og gert uppdrætti að vind-
myllum sem reynzt hafa árangursrikar.
XX
Allar hafa þessar hugmyndir Buck-
minster Fullers miðað að því að gera
manninum kleifara en ella að lifa ham-
ingjusömu lífi á jörðinni. Hann kallar
sjálfan sig venjulegan mann (og má ekki
heyra annað), ópólitískan þó að hann sé
að eigin sögn einstaklingshyggjumaður
að því leyti að hann trúir á mátt hugs-
unar einstaklingsins og ekki síður þessa
sjaldgæfu hugljómun, sem er forsenda
allrar meiri háttar reynslu og mikilla
uppgötvana í sögu mannsins. Hann að-
hyllist engin sérstök trúarbrögð heldur
eru alheimslögmálin forsenda hugsunar
hans. Og vegna þess að með stærðfræði-
legum útreikningum er hægt að komast
að ákveðnum niðurstöðum eða stað-
reyndum mætti vel ætla að reikningslist-
I
fðtspor
in sé að hans dómi æðst allra trúar-
bragða, a.m.k. að hann telji að með henni
einni geti maðurinn aflað sér þeirrar
þekkingar um sjálfan sig og alheiminn
sem er takmark hans. Fullviss er hann
um það, að við eigum eftir að uppgötva
ýmis alheimslögmál sem gjörbreyta
heimsmynd okkar og lifi mannsins á
jörðinni og utan hennar. Þegar ungt fólk
i Bandarlkjunum bað hann um að fara
með þá bæn, sem næst stendur hjarta
hans, skrifaði hann hana niður eins og
XX
Ljósmynd: Brynjólfur.
seglr BUCHMINSTER FULLER, snliiingurlnn,
sem fðr næslum bvl framhið íslendlngum
Buckminster Fuller er heimsfrægur
fyrir hvolfþakið sitt eða kúluna og að
sjálfsögðu töluðum við mest um það, en
þó varð hann að skýra forsendur hennar,
því að hann hefur löngun til að fólk
skilji sig, en misskilji ekki, enda þótt
hann fjalli um tölur og hugmyndir af
stærðargráðu langt fyrir ofan skilning
hvers venjulegs manns. Á sama hátt og
hann varð fyrstur til að tala um „geim-
farið jörð“, sem snýst umhverfis orku-
birgðastöðina sól, talar hann um hús sem
Ijóð. Honum er heldur illa við að tala um
guð, svo stærðfræðilega sinnaður sem
hann er. En hann segir í þessari bæn:
Faðir vor, sem jafnvel ert í oss ...
XX
Buckminster Fuiler er einn merkasti
brautryðjandi húsagerðarlistar á þessari
öld, kannski sá merkasti. Sagt hef-
ur verið að með honum hafi þessi
listgrein i fyrsta skipti eignast hönn-
uð sem fylgir fast i fótspor Einsteins
úti í geiminn. Hann er óumdeil-
anlegur brautryðjandi og meistari í
þessari grein, og hann er skáld eins
og Michaelangelo. Hann setur ekki-
aðeins bæn sina i ljóðrænt form, held-
ur hefur hann einnig ort merkilegt
atomljóð sem hann kallar Ethies. Það
fjallar um hugmyndir hans og er ekki
sfzt óður til æskunnar og framtíðarinnar,
sem hann trúir á, þvi að hann er sízt af
öllu úrtölumaður. En hann segir að
mannkynið sé nú i e.k. lokaprófi og
framtiðin blasi við i allri sinni dýrd, ef
við stöndumst þetta próf.
Rómarsamþykktin sem virðist einna
helzt hafa fjallað um það að maðurinn sé
að syngja sitt síðasta og standi andspæn-
is heimsendi (ekki í fyrsta skipti!), er
andstæð hugmyndum hans og stórbrot-
inni framtíðarsýn: mannkynið eigi
þvert á móti óendanlega merkilegt ævin-
týri fyrir höndum, bæði á þessari jörð og
annars staðar í tilverunni, og mögu-
leikar þess séu ekki sizt bundnir þeirri
óhemjuorku sem hvarvetna er geymd
um alla vetrarbrautina: galdurinn sé
ekki sízt sá, að leysa hana úr læðingi,
beizla hana, nota hana eins og hvítar
særingar öllu mannkyni til hagsbóta í
framtíðinni; vindinn er hægt að beizla
án þess nokkurn tima gangi á neinar
birgðir og vatnið getur þjónað mannkyn-
inu á margvíslegan hátt, orkan er alls
staðar og óþrjótandi; 86% af öllum
málmum hverfa aftur inn í hringrás
náttúrunnar, en rotna ekki eins og göm-
ul jarðarber, hefur hann sagt. Og
mengun er óþarfur fylgikvilli tækni- og
iðnaðarmenningar: mengunina eigi að
virkja eins og hverja aðra orku.
Orkumassi sólarinnar er svo mikill og
yfirborðið í raun og veru svo lítið að hún
heldur hita sínum og orku á hagkvæm-
astan hátt, „sólin hefur nú þegar varað í
tíu milljarða ára og verður áfram i
marga áramilljarða til viðbótar,“ og
kenning hans er sú, að eftir því sem
stærðarhringur kúlunnar er meiri, því
betur sé hún fallin til að varðveita orku.
„Þetta lögmál sýnir okkur hvers vegna
alheimurinn geymir orkubirgðir sínar i
svo ríkum mæli í stórstjörnum, en sumar
þeirra eru tíu milljón sinnum stærri en
sólin og milli þeirra allra eru fjarlægðir
sem einungis er hægt að mæla í ljós-
árum.“^
Sumir vilja halda því fram að Buck-
minster Fuller hafi með kenningum
sínum um samverkandi orku (Synergy)
fundið alheimslögmál. Kjarni kenningar
hans er sá að ef orkugjafi verði fyrir
utanaðkomandi áhrifum, breytist eigin-
leikar hans. Dæmi: Sambandið króm-
nikkel, stál er keðja sem er næstum því
níu sinnum sterkari en veikasti hlekk-
urinn
Maðurinn er byrjaður
að br jðta skurnið
og lella nýs umhverfls
EINSTEINS
inn í
nýja
verdld
„Buckminster Fuller, vinur alheimsins, boðberi
hamingju, bjargvættur," — Esra Pound